Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Sanna berst fyrir leigjendur: „Lítið sem ekkert regluverk utan um réttindi leigjenda hér á landi“

Sanna berst fyrir leigjendur: „Lítið sem ekkert regluverk utan um réttindi leigjenda hér á landi“
Sanna Magda­lena borg­ar­full­trúi sós­í­alista.

Borg­ar­full­trú­inn og bar­áttu­konan Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir ritar áhuga­verða grein er ber yfir­skrift­ina: Stöðvum okrið á leigj­endum.

„Leigj­endur á Íslandi búa við mjög erf­iða stöðu. Á síð­ustu árum hefur leiga farið hækk­andi og var há fyrir. Þegar stærstur hluti heild­ar­ráð­stöf­un­ar­tekna þinna fer í hús­næðið, þá getur þú ekki leyft þér ýmis­legt sem sam­fé­lagið hefur upp á að bjóða,“ segir hún og bætir við:

„Það er skortur á hús­næði, mörg eru í sam­keppni um sömu íbúð­ina og mikið óör­yggi fylgir því að vera á leigu­mark­aði. Það þarf að reiða fram trygg­ingu, sem er erfitt ef þú átt ekki kost á að gera slíkt í gegnum banka og þarft þá að leita á náðir fyr­ir­tækja sem græða á þér í ferl­inu.“

Hún bætir við að „leigj­endur þurfa að skila inn saka­vott­orði þegar sótt er um leigu­í­búð og þú þarft í raun­inni að ber­skjalda þig gjör­sam­lega, bæði hver þú ert sem per­sóna og hvernig fjár­hag­ur­inn þinn lítur út. Ef þú hefur ein­hvern­tíman átt í van­skilum, þá er það skuggi sem fylgir þér lengi og hefur nei­kvæð áhrif á stöðu þína til að útvega trygg­ing­arfé og til að útvega leigu­hús­næði. Leigan getur hækkað fyr­ir­vara­laust, án útskýr­inga, bara geð­þótta­á­kvörðun leigu­sala sem hefur engum skyldum að gegna gagn­vart þér og þinni stöðu. Þú getur misst íbúð­ina skyndi­lega og mis­jafnt er hversu vel er tekið í beiðni þína um við­gerðir og við­hald.“

Sanna færir í tal að „það er lítið sem ekk­ert reglu­verk utan um rétt­indi leigj­enda hér á landi og þeim er gert að bjarga sér á óvin­veittum einka­mark­aði. Stjórn­völd og sam­fé­lagið í heild sinni hafa lengi staðið með sér­eigna­stefn­unni og litið svo á að það sé hark að útvega sér hús­næði en á end­anum hljóti allir að redda sér. Það eru smá­vægi­leg úrræði til fyrir leigj­endur en ekki allir sem fá stuðn­ing þar og leigj­endur búa oftar en ekki við þá stöðu að valið er tekið af þeim, valið um hvar þau vilja búa og hvernig þau vilja búa.“

Hún bendir á þá erf­iðu og vondu stað­reynd að „leigj­endur þurfa oft að flytja á milli skóla­hverfa með börnin sín, því þau grípa auð­vitað það sem er í boði þegar leigu­samn­ingur rennur út eða er breytt fyr­ir­vara­laust, t.a.m. með skyndi­legri hækkun á leigu­fjár­hæð,“ og nefnir einnig að „kröfur leigj­enda­sam­taka víðs­vegar um heim, sem og hér á landi eru þær að við­mið­un­ar­verð fyrir leigu verði sett, þ.e.a.s. hversu hátt leigu­verð á að vera fyrir íbúðir með til­liti til þátta eins og stærðar, stað­setn­ingar, gæða og her­bergja­fjölda.

Kröf­urnar snúa að leigu­þaki og leigu­bremsu; að settar verði hömlur á það hversu mikið leigan má hækka. Leiguþak vísar til þess að hámarks­leigu­verð er gefið út á hús­næði miðað við stærð, gæði og stað­setn­ingu og má leigan þá ekki fara yfir þá upp­hæð sem mörkin eru sett við. Leigu­bremsa vísar til þess að það eru ákveðin við­mið um það hversu mikið leiga má hækka yfir ákveðið tíma­bil.“

Þá segir Sanna að „tak­mark­anir á hækkun hús­næð­is­leigu eru víða við lýði með ýmsum útfærslum. Má þar til að mynda líta til Danmörku, Sviss, Vín­ar­borgar, Parísar og Kali­forníu. Bar­átt­unni lýkur aldrei, en við höfum einnig dæmi um tak­mörkun á hækk­anir leigu sem hafa náð fram að ganga en hefur svo verið snúið við, eins og í Kata­lóníu og Berlín.“

Einnig að „þegar litið er hingað heim hafa Samtök leigj­enda hafa barist fyrir leigu­þaki og leigu­bremsu. Í kjöl­far lífs­kjara­samn­ing­anna voru kynntar aðgerðir sem mið­uðu að því að bæta stöðu leigj­enda. Aðgerð­irnar voru eft­ir­far­andi:

„Ákvæði húsa­leigu­laga verði end­ur­skoðuð til að bæta rétt­ar­stöðu leigj­enda, meðal ann­ars hvað varðar vernd leigj­enda þegar kemur að hækkun leigu­fjár­hæðar og bættri rétt­ar­stöðu leigj­enda við lok leigu­samn­ings.“

Ekki hefur verið staðið við þessi fyr­ir­heit,“ segir Sanna og bætir við:

„Sós­í­alistar í borg­inni lögðu til í ljósi alls þessa að borg­ar­stjórn sam­þykki að skora á ríkið að koma á leigu­þaki og leigu­bremsu. Yfir­gnæf­andi meiri­hluti lands­manna vill að tekið verði upp þak á húsa­leigu­verð og einnig að leigu­bremsa verði sett á.

71% aðspurðra í nýlegri skoð­ana­könnun Maskínu voru mjög eða frekar hlynnt því að leigu­þak yrði sett á húsa­leigu hér á landi. 72% aðspurðra voru mjög eða frekar hlynnt því að leigu­bremsa yrði tekin upp. Leiga hefur hækkað upp úr öllu valdi og leigj­endur oft fastir á milli lágra tekna og okur­leigu. Mik­il­vægt er að mæta þörfum leigj­enda sem eru í erf­iðri stöðu. Stöð­ug­leiki í lífi leigj­enda Leiguþak virkar til að bæta aðstöðumun á milli leigu­sala og leigj­enda, að jafna aðeins valda­hlut­fallið þar á milli.“

Sanna segir að mikið hafi verið talað um að leigu­þak virki ekki:

„En hér þurfum við að stalda við og spyrja okkur, út frá hvaða við­miðum er verið að mæla? Erum við að mæla út frá kröfum þeirra sem leit­ast við að hagn­ast á hús­næð­is­mark­aði og eru með gróða­von? Eða erum við að skoða og mæla árang­ur­inn út frá vellíðan og jákvæðum áhrifum á leigj­endur? Þegar við gerum hið síð­ar­nefnda, þá sjáum við að tak­mark­anir á hækkun húsa­leigu eru leigj­endum til góða því það býður upp á fyr­ir­sjá­an­leika, að fjöl­skyldur geti búið til lang­tíma í leigu­hús­næði sínu með til­heyr­andi öryggi fyrir fjöl­skyld­una í heild. Þannig geta börn átt sam­fellt nám í sama skóla og fylgt sínum vinum, fyr­ir­sjá­an­leiki á leigu­verði og öryggi leiðir til færri flutn­inga. Slíkur stöð­ug­leiki er góður og nauð­syn­legur fyrir leigj­endur, þetta er gott fyrir nær­sam­fé­lagið og skapar stöð­ug­leika í hverf­unum. Leigu­bremsur og leigu­þök virka til að vernda leigj­endur.“

Að mati Sönnu er „nauð­syn­legt að standa vörð um rétt leigj­enda og setja hömlur á það hversu mikið megi hagn­ast á leigj­endum. Á sama tíma þarf að berj­ast fyrir félags­legri hús­næð­is­upp­bygg­ingu, þar sem hagn­að­ar­sjón­ar­mið eru fjar­lægð úr jöfn­unni.

Leiguþak og leigu­bremsu má útfæra með ýmsum leiðum. Slíkt þýðir að tekið er til­lit til ýmissa sjón­ar­miða en grunn­ur­innn snýst um að tryggja fyr­ir­sjá­an­leika og öryggi fyrir leigj­endur. Þau sem eru á móti leigu­þaki tala um að það trufli mark­að­inn. En há leiga truflar leigj­endur og gerir mun meira en að trufla, há leiga heggur stórt skarð í lífs­gæði leigj­enda, hefur áhrif á hvers­dag­leika þús­unda og skerðir mögu­leika barna þeirra til við­un­andi lífs.“

Að lokum bendir Sanna á að „sós­í­alistar í borg­ar­stjórn, lögðu því til að skorað yrði á ríkið að koma á leigu­þaki og leigu­bremsu. Það er miður að borg­ar­stjórn sjái sér ekki fært að senda frá sér áskorun um að þörf sé að setja hömlur á það hversu mikið leigan má hækka. Vitað er að staða leigj­enda er oft mjög erfið og mikið óör­yggi fylgir því að vera á leigu­mark­aði.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi