Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ópíóíðafaraldur á Íslandi: „Á síðasta ári voru andlátin fleiri en nokkru sinni“

Ópíóíðafaraldur á Íslandi: „Á síðasta ári voru andlátin fleiri en nokkru sinni“
Marín Þórs­dóttir.

Marín Þórs­dóttir deild­ar­stjóri Rauða kross­ins á höf­uð­borg­ar­svæð­inu spyr ein­fald­lega í grein sinni:

Þekkir þú Nal­oxone og kanntu að nota það? 

„Árlega lát­ast tugir ein­stak­linga vegna lyfja­eitrana hér á landi. Á síð­asta ári voru and­látin fleiri en nokkru sinni, en þá lét­ust 46 ein­stak­lingar.“

Marín nefnir að „algeng­asta lyfið sem fannst í þeim látnu voru ópíóíð­inn Oxycontin og floga­veik­i­lyfið Prega­balin; níu þeirra látnu voru ein­stak­lingar undir þrí­tugu, jafn mörg og öll þau er lét­ust í umferð­inni hér á landi sama ár.“

Hún bendir á að „þrátt fyrir þennan gíf­ur­lega fjölda fólks á öllum aldri sem lætur lífið vegna ofskömmt­unar á ópíóíðum, svo sem Contalgini, Heróíni, Met­hadoni, Fentanýli, Oxykó­doni eða Búp­renor­fíni, var mótefni við því ekki aðgengi­legt hér á Íslandi fyrr en nú á þessu ári, en þá var eitt stærsta mann­rétt­inda­skref fyrir ein­stak­linga sem nota ólög­leg vímu­efni stigið og lyfið Nyxoid gert aðgengi­legt fyrir öll, þeim að kostn­að­ar­lausu.“

Marín nefnir að Nyxoid lyfið, sem inni­heldur virka efnið Naloxone, „hefur verið til í ára­tugi og marg­sannað gildi sitt víða um heim; mótefnið fæst meðal ann­ars sem nefúði og það er ekki hægt að mis­nota.

Dreifing á Nyxoid hófst hér á Íslandi fyrir alvöru þegar skaða­minnk­un­ar­verk­efni Rauða kross­ins, Frú Ragn­heiður og neyslu­rýmið Ylja, hófu dreif­ingu á því í mars­mán­uði fyrir til­stuðlan styrks frá fjár­sterkum ein­stak­lingum.“

Hún segir að „fljót­lega tók heil­brigð­is­ráðu­neytið við sér og um haustið var mótefnið gert aðgengi­legt öllum þeim sem það þurfa, sem og við­bragðs­að­ilum. Þessu mik­il­væga mann­rétt­inda­skrefi í heil­brigð­is­þjón­ustu á Íslandi ber að fagna.

Skaða­minnk­un­ar­verk­efni Rauða kross­ins hafa nú dreift tæp­lega 200 skömmtum til not­enda og kennt þeim að nota lyfið. Lyfið er í raun er afar ein­falt í notkun og allir Íslend­ingar ættu að þekkja ein­kenni ofskömmt­unar og kunna að bregð­ast við þeim. Áður en lyfið er gefið skal ganga úr skugga um hvort ein­stak­ling­ur­inn sé með með­vit­und, en helstu ein­kenni ofskömmt­unar eru:

Skortur á við­brögðum við snert­ingu og/eða hljóði. Öndunin verður hæg eða jafn­vel stöðvast. Hrotur, hrygglur eða köfn­un­ar­hljóð koma frá við­kom­andi. Neglur og varir verða bláar. Auga­steinar verða agn­arsmáir (e. pin­point).

Ef grunur liggur á ofskömmtun er mik­il­vægt að hringja strax í 112. Síðan er nefúð­inn gef­inn í aðra nös­ina, en í hverju hylki er einn skammtur. Ef sjúk­lingur sýnir engan bata eða ein­kenni ofskömmt­unar hafa komið aftur skal gefa annan skammt af nefúð­anum 2-3 mín­útum síðar og þá í hina nös­ina og úr öðru hylki.“

Hún segir að lyfið virki nokkuð skjótt, og að hjá ein­stak­lingum sem eru háðir ópíóíðum geta frá­hvarfsein­kenni frá þeim gert vart við sig:

„Líkt og hjarta­stuð­tæki sem hanga uppi á flestum opin­berum stofn­unum og fjöl­mennum vinnu­stöðum ætti lítil gul Naloxone taska með tveimur nefúðum að hanga á sama stað. Almenn­ingur ætti einnig að þekkja ein­kenni ofskömmt­unar og kunna að bregð­ast rétt við. Með sam­heldnu átaki getum við fækkað ótíma­bærum dauðs­föllum af völdum ópíóíðum, því hvert manns­líf skiptir máli og við missum því miður alltof marga ein­stak­linga á þennan hátt á hverju ári.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi