Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Elísabet er hagsýn og varast freistingarnar: „Ég versla bara það sem er á innkaupalistanum“

Elísabet er hagsýn og varast freistingarnar: „Ég versla bara það sem er á innkaupalistanum“
Elísabet Ósk Sig­urð­ar­dóttir er ótrú­lega hag­sýn og mjög sniðug í mat­ar­gerð

Neytandi vik­unnar, Elísabet Ósk Sig­urð­ar­dóttir er 46 ára gömul, fædd og upp­alin í Reykja­vík en hefur búið í Danmörku síðan 1996. Hún á 2 syni, 28 ára og 19 ára. Elísabet nýtur þess að veita öðrum inn­blástur og aðstoð með sparn­að­ar­ráð. Hún, ásamt vin­konu sinni, stofn­uðu Facebook síðu fyrir mörgum árum síðan sem heitir Ódýrar mat­ar­upp­skriftir og sparn­að­ar­ráð. Hún sér þó ein um hana núna. Fyrir fjórum mán­uðum síðan opn­aði hún Instagram síðu Elisa­bets foods corner,  með sínum eigin mat­ar­upp­skriftum og hefur fengið tæp­lega 5900 fylgj­endur á þessum fjórum mán­uðum sem er nú bara ótrú­legt.

Hún notar Airfryer mjög mikið í sinni mat­ar­gerð sem sparar bæði tíma og raf­magn. Þess  utan finnst henni mat­ur­inn betri með þeirri aðferð. Hún hefur lengi deilt sínum hug­myndum í Airfryer grúppum á Facebook og tók eftir að eft­ir­spurnin var mjög mikil svo hún stofn­aði einnig tvær Instagram síður með sínum eigin Airfryer upp­skriftum. Hún skrifar þó einnig tíma og gráður í venju­legum ofni í upp­skrift­unum sínum svo þær eru ekki ein­ungis bundnar við Airfryer notkun. Síðurnar heita Airfryer upp­skriftir  og Airfryer Danmark . Elísabet hefur aldrei starfað við mat­ar­gerð og hefur aldrei getað fylgt upp­skriftum. Nú er hún farin að þróa sínar eigin.

Hvernig sparar þú í matarinnkaupum?

Ég hef alltaf verið mjög spar­söm og sniðug í mat­ar­inn­kaupum sem kemur sér mjög vel á þessum tímum. Hér í Danmörku og í fleiri löndum finnst app sem heitir Too good to go þar sem maður getur pantað poka með vörum sem eru á síð­asta sölu­degi og er ótrú­lega snið­ugt koncept. Ég panta aðal­lega pok­ana sem inni­halda ávexti og græn­meti sem ég nýti mjög vel í mat­ar­gerð minni. Í byrjum hvers mán­aðar skipti ég ákveð­inni upp­hæð niður í viku­upp­hæðir og það er það sem ég hef þá viku til að versla fyrir. Ég er með lista yfir allt sem ég á í frysti, ísskáp, skápum og skúffum og geri mat­ar­plan út frá því sem ég á og það sem ég fæ í græn­metis­pok­anum mínum.

Ég fer sjaldan út að versla og versla bara það sem er á inn­kaupa­list­anum sem er ágætis sparn­aður þegar að maður sleppir þessum skyndi freist­ingum í búð­inni. Hugsa einnig mitt mat­ar­plan út frá því að þurfa að henda engu. Ef ég til dæmis þarf að nota hálfa dós af sýrðum rjóma í eina mál­tíð í vik­unni verður restin notuð í aðra mál­tíð seinna í vik­unni. Ég hef einnig minnkað magnið af kjöti heil­mikið og bæti t.d. fín­hökk­uðu græn­meti út í alla rétti með hakki, það endar oft í upp­skriftum með t.d. 250 grömm af hakki og 250 grömm af græn­meti sem dugar fyrir þrjá full­orðna.

Endurnýtir þú? Ertu með ráð til annarra?

Ég end­ur­nýti mjög mikið og hef til dæmis búið til rasp úr brauðrestum og kart­öflu- og gul­rót­ar­skræli sem var notað í að gera hrís­grjónakúlur í raspi með afgöng­unum af hrís­grjónum frá deg­inum áður. Einnig hef ég oft hirt hluti sem fólk ætlar að henda, hreinsa það, jafn­vel mála og gef því þar með nýtt líf. Hef meðal ann­ars gert dóta­kassa, stól, kerta­stjaka og þess háttar með þess­ari aðferð.

Hvað hefur þú í huga þegar þú þegar þú kaupir mat, fatnað og gjafir?

Ég er mjög með­vituð um verð og fer til dæmis alltaf eftir kíló- og lítra­verði í matar og drykkj­ar­inn­kaupum. Stundum bjóða búð­irnar upp á stóra kjöt­pakka en ef maður kíkir á kíló­verðið er það oft dýr­ara en minni pakkar.

Ég hef til dæmis gefið systur minni jóla­daga­tal

Vin­sæl­ustu gjaf­irnar sem ég hef gefið eru yfir­leitt per­sónu­legu gjaf­irnar sem kosta lítið annað en tíma, ást og umhyggju. Ég hef til dæmis gefið systur minni jóla­daga­tal þar sem hún átti að draga einn seðil á dag þar sem ég hafði skrifað eitt­hvað upp­byggj­andi eða fal­legt um hana og okkar sam­band. Einnig hef ég útbúið daga­töl, bækur með minn­ingum, litlar sögur um líf og sam­band mitt og mót­tak­and­anna. Annars finn ég góð til­boð á því sem ég veit að ást­vinum mínum vantar. Ég verð að við­ur­kenna að ég kaupi eig­in­lega aldrei föt en ef ég kaupi föt er það yfir­leitt í Rauða kross­búðum og þess háttar. Ég hef einnig fengið mikið af fötum frá systur minni og erfði mikið af fal­legum fötum eftir móður mína.

Hverju átt þú erfiðast með að draga úr kaupum á?

Ég hef alltaf verið svo mik­ill spari­grís að ég hef ekki þurft að draga það mikið úr kaupum mínum en væri nú til í að geta splæst aðeins meira á okkur inn á milli.

Skiptir umhverfisvernd þig máli?

Til að hugsa um umhverfið jafn­framt því að spara hef ég minnkað kjöt­neysl­una og er í augna­blik­inu að prófa mig meira fram í upp­skriftum án kjöts. Hef til dæmis útbúið margar nýjar upp­skriftir af græn­met­is­súpum sem eru bæði hollar og sað­samar. Einnig hef ég minnkað akstur bif­reiðar mjög mikið.

Mín aðferð með að skrifa allt inni­hald frá frysti og þess háttar niður, gera mat­ar­plan út frá því og skipu­leggja getur verið krefj­andi og tíma­frekt í byrjun en marg borgar sig í lengd­ina. Hjá mér endar þetta oft í keppni um að hafa sparað meira þessa viku en síð­ustu og það er svo góð til­finn­ing að sjá sparn­að­inn vaxa þó að sé stundum ekki nema lítil upp­hæð í einu.

Að lokum deilir Elísabet með okkur tveimur hollum og góðum upp­skriftum.

Mexík­önsk mini­fars­brauð með hrís­grjónum, sal­ati og mexíkó ostasósa.

Mexík­anskt mini fars­brauð.

Taco fars­brauð.
500 grömm hakk.
250 grömm fínt hakkað græn­meti.
50 grömm taco krydd.2 egg.
2 dl hafra­mjöl.
1 hvít­lauks­rif.
Hrærið öllum hrá­efnum vel saman og mótið lítil fars­brauð.

Gefið þeim 20 mín­útur á 180 gráðum í air­fryer eða 30 mín­útur á 180 gráðum í for­hit­uðum blást­ur­sofni.Ostasósa.1 Mexíkó ostur.5 dl rjómi.1 kjúklinga bouillion ten­ingur.Rífið ost­inn fínt og bræðið hann í rjóm­anum. Bætið kjúklinga ten­ingnum í og fáið sós­una upp að sjóða, skrúfið niður og látið hana malla í ca 5 mín­útur.

Bauna­súpa
500 grömm frosnar baunir.

Bauna­súpa

2 dl spínat.
1 púrra.
1 laukur.
1 hvít­lauks­rif.
6 dl vatn.
1 og hálfur hænsna ten­ingur.
2 msk rjóma­ostur.
1 tsk þurrkað tim­ian.
salt, pipar og sítrónu­safi eftir smekk.

Hakkið lauk, hvít­lauk og púrru, komið því í pott og steikið í smá olíu í 3-4 mín­útur. Bætið vatni, baunum,ten­ing og tim­ian við græn­metið. Fáið súp­una upp að sjóða, lækkið hit­ann og látið hana malla í 10 mín­útur. Hrærið rjóma­osti og spínat út í, hellið súp­unni yfir í bland­ara og látið hann keyra þangað til súpan er orðin fín og klekk­laus. Hellið súp­unni aftur yfir í pott­inn og bragðið til með salt, pipar og sítrónusafa.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi