Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Milla Ósk segir frá fæðingarþunglyndinu: „Mér leið oft eins og ég gæti ekkert gert fyrir hann“

„Þegar ég fór að opna á þessa hluti við fólkið í kringum mig fannst mér nær und­an­tekn­ing­ar­laust vera mæður, og oft feður líka, sem tengdu við þessar til­finn­ingar. Ég fékk að heyra alls konar reynslu­sögur; allir virt­ust tengja. Mér í raun brá að heyra það og þá að fatta hversu lítið þetta er rætt opin­ber­lega. Ég fann líka að það hjálp­aði mikið að skrifa pæl­ing­arnar mínar niður á blað og ákvað því að taka skrefið og opna á þetta opin­ber­lega. Það var mik­ill léttir og hlýjan og stuðn­ing­ur­inn sem því fylgdi gerir mig bara hálf orð­lausa,“ segir Milla Ósk Magn­ús­dóttir sem nýlega lýsti á Facebook-síðu sinni reynslu sinni af fæð­ing­ar­þung­lyndi og kvíða sem hún upp­lifði í kjöl­far fæð­ingar sonar síns og eig­in­manns­ins, Einars Þor­steins­sonar, fyrr á þessu ári.

Þetta voru við­burða­ríkir dagar þarna stuttu eftir fæð­ing­una.

„Með­gangan gekk mjög vel og það var því ákveðið áfall að grein­ast með með­göngu­eitrun. Ég greind­ist á föstu­dags­eft­ir­mið­degi og var sett af stað strax morg­un­inn eftir. Með­göngu­eitrun fylgir oft mik­ill bjúgur sem fer svo fljót­lega eftir fæð­ingu. Það gerð­ist aldrei hjá mér og þannig fatt­að­ist hjarta­bilun. Henni fylgdi mikil vökva­söfnun og mæði þannig ég var lögð inn á hjarta­deild í lyfja­gjöf með Emil sex daga gamlan. Nýrna­steinakast kom svo í kjöl­farið af því. Þetta voru við­burða­ríkir dagar þarna stuttu eftir fæð­ing­una. Ég var í nokkrar vikur að ná fullum styrk og er enn á lyfjum og góðu eft­ir­liti hjá göngu­deild hjarta­bil­unar.“

Þessi skilyrðislausa ást

Milla fór í kjöl­far fæð­ing­ar­innar að finna fyrir and­legri van­líðan og segir hún að ung­barna­verndin og ynd­is­legu hjúkr­un­ar­fræð­ing­arnir hjá heilsu­gæsl­unni hafi gripið sig eins fljótt og hægt var.

Maður var algjör­lega van­mátt­ugur gagn­vart kveis­unni og þá var maður fljótur að sökkva and­lega.

„Það er nær ómögu­legt að lýsa því hvernig þetta var. Allar áhyggjur og kvíði sner­ust aðal­lega um Emil, að reyna að hjálpa honum í gegnum kveisuköst og reyna að finna út hvað væri að ger­ast með litla kropp­inn. Maður var algjör­lega van­mátt­ugur gagn­vart kveis­unni og þá var maður fljótur að sökkva and­lega. Sam­fé­lags­miðla­sam­an­burður hefur svo aldrei hjálpað neinum og hann gerði það svo sann­ar­lega ekki í mínu til­felli. Það var mjög erfitt að sjá allar dug­legu mömm­urnar að stúss­ast með vagn­ana eða í ferða­lögum þegar ég átti barn sem vildi ekki sjá neitt slíkt. Mér leið oft eins og ég gæti ekk­ert gert fyrir hann og það er erfið til­finn­ing fyrir mömmu­hjartað.“

Hvernig er lík­am­lega og and­lega líð­anin í dag?

„Miklu betri. Allt fólkið mitt stóð svo þétt með mér og ég fékk mikla hjálp hjá heilsu­gæsl­unni. Emil er betri af kveis­unni og við förum í göngut­úra á hverjum degi.“

Milla er spurð hvað henni finn­ist hún hafa lært af því að ganga í gegnum þetta – bæði hvað varðar lík­am­legu veik­indin og þau and­legu.

„Annars vegar hvað heil­brigð­is­kerfið okkar er öfl­ugt og hins vegar hvað ég er heppin með ótrú­lega sterkt og gott fólk í kringum mig.“

Emil er hálfs árs og segir móðir hans að hann sé algjör grín­ari og hlæi mikið. „Hann er líka mjög ákveð­inn, með miklar skoð­anir og vill helst mik­inn mat oft á dag. Að mörgu leyti er hann því alveg eins og mamma sín. Hann veit ekk­ert skemmti­legra en stóru systur sínar og miðað við hvað honum finnst gott að naga bækur verður hann von­andi lestr­ar­hestur í fram­tíð­inni.“

Þessi skil­yrð­is­lausa ást kom á óvart.

Hvað kom Millu mest á óvart hvað varðar móð­ur­hluverkið, hvað er auð­veld­ast og hvað er erf­ið­ast?

„Þessi skil­yrð­is­lausa ást kom á óvart. Ég hef auð­vitað vitað að for­eldrar elski börnin sín en almátt­ugur; maður springur af ást nokkrum sinnum á dag. Manni langar hins vegar líka að gef­ast upp oft á dag. Þetta er svaka­legur rússi­bani sem er sem betur fer oft mjög skemmti­legur.“🥰

Spila og hlægja saman

Milla er lög­fræð­ingur frá HR. Hún vann á RÚV í 10 ár og þar af sem frétta­maður í fjögur ár. Hún varð svo aðstoð­ar­maður Lilju Alfreðs­dóttur, sem var þá mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, og við síð­ustu stjórn­ar­myndun varð hún aðstoð­ar­maður heil­brigð­is­ráð­herra.

Það var fyrst og fremst húmor­inn sem heill­aði mig við hann.

Milla kynnt­ist eig­in­mann­inum, Einari Þor­steins­syni, hjá RÚV en hann vann þar einnig sem frétta­maður. „Það var fyrst og fremst húmor­inn sem heill­aði mig við hann. Við hlægjum enda­laust saman. Svo er hann líka ágæt­lega mynd­ar­legur; það hjálp­aði líka.“

Hún er spurð hvað ástin sé í huga hennar.

„Að standa af sér storm­inn saman og lyfta hvort öðru upp.“

Hvað með róm­an­tík­ina?

„Við erum eins róm­an­tísk og hvers­dags­leik­inn býður upp á held ég. Við störfum bæði í stjórn­málum þannig að þau eru mikið rædd á heim­il­inu. Svo elskum við að spila og syngja saman, borða góðan mat og láta okkur dreyma um fram­tíðar Frakk­lands­ferðir.“

Hjónin keyptu ein­býl­is­hús áður en son­ur­inn kom í heim­inn.

„Við fundum mjög óvænt drauma­húsið okkar í Breið­holt­inu og stukkum á það sem betur fer því okkur líður svo vel þarna og þetta hverfi kom okkur mikið á óvart. Svo góðar göngu­leiðir, allt stút­fullt af barna­fjöl­skyldum og ynd­is­legir nágrannar.“

Hetjan

Einar fór í fram­boð fyrir Fram­sókn­ar­flokk­inn, komst áfram og er í dag borg­ar­full­trúi og verður svo borg­ar­stjóri í upp­hafi árs 2024.

„Ég hef alltaf hvatt hann áfram í stjórn­mál­unum og er óend­an­lega stolt af honum og árangri Fram­sóknar í borg­inni í vor. Mér finnst hann óhræddur við að taka erfið mál föstum tökum og hann leysir þau vel. Hann er vak­inn og sof­inn yfir þessu verk­efni svo ég er full­viss um að hann muni klár­lega gera frá­bæra hluti fyrir borg­ina.“

Kaus Milla Fram­sókn­ar­flokk­inn?

„Auðvitað.“

Mamma hefur alltaf verið hetjan mín.

Móðir Millu er Erla Sigríður Ragn­ars­dóttir sem var í hljóm­sveit­inni Dúkkulís­unum og muna margir eftir lög­unum Pamela og Svart­hvíta hetjan mín.

„Mamma hefur alltaf verið hetjan mín og eftir að ég varð sjálf mamma þá finn ég hvað ég ber botn­lausa virð­ingu fyrir henni. Dúkkulís­urnar eru hrika­lega skemmti­legar konur og eiga marga hitt­ara. Fyrst og fremst hefur það mótað mig að sjá hóp af konum syngja og spila á svið­inu og gera allt vit­laust með lög­unum sínum. Það er mjög hvetj­andi fyrir ungar stelpur.

Þær fagna 40 ára afmæli í næstu viku með afmæl­is­tón­leikum og eru frá­bært dæmi um að það þarf ekki að hætta að hafa gaman þó maður verði stór.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi