Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Sighvatur ver Jón Baldvin: „Hefur það miskunnarleysi, sem þeim er sýnt, valdið mér áhyggjum“

Sighvatur ver Jón Baldvin: „Hefur það miskunnarleysi, sem þeim er sýnt, valdið mér áhyggjum“
Sig­hvatur Björg­vins­son

„Þau eru orðin öldruð, hjónin. Eiga sér að baki langan og merkan starfs­feril. Hún á sviði menn­ingar og listar. Hann sem for­ingi íslenskra jafn­að­ar­manna. Maðurinn, sem ger­breytti íslenska skatt­kerf­inu á nokkrum mán­uðum. Úr gömlu og úreltu kerfi sölu­skatts og eft­iráskatt­greiðslu tekju­skatta. Í heim virð­is­auka­skatts og stað­greiðslu­skatts . Maðurinn, sem náði í samn­ingum að tryggja lands­mönnum mestu efn­is­legu og rétt­ar­fars­legu fram­farir, sem orðið hafa í Íslands­sög­unni.

EES-samn­ing­inn. Maðurinn, sem veitti þjáðum Eystra­salts­þjóðum mestan og bestan stuðn­ing allra vest­rænna þjóð­ar­leið­toga.

Stuðning, sem þær hafa heiðrað Ísland og Íslend­inga fyrir og nýlega var minnst með heim­sókn helstu for­ystu­manna þess­ara þriggja þjóða hingað til Reykja­víkur, þar sem íslenskum ráða­mönnum þótti ekki henta, að mað­ur­inn sjálfur fengi að vera við­staddur. Þessi aldr­aði leið­togi íslenskra jafn­að­ar­manna.“

Svona byrjar mik­ill varn­arp­ist­ill Sig­hvatar Björg­vins­sonar, fyrr­ver­andi Alþing­is­manns til handa Jóni Baldvini Hanni­bals­syni. Í pistl­inum segir hann að Ingi­björg Sólrún Gísla­dóttir hafi gert und­ir­búna atlögu að Jóni Baldvini í byrjun þessa mán­aðar.

Vísar Sig­hvatur þar til færslu Ingi­bjargar Sólrúnar á Facebook þar sem hún talar um ásak­anir á hendur Jóni Baldvini, um meint kyn­ferð­is­brot sem bornar hafa verið á hann. Ingi­björg Sólrún líkti þar Jóni við „rán­dýr sem velur bráð sína af kost­gæfni.“ Þá segir hún einnig frá því er hún bað hann að víkja úr heið­urs­sæti Sam­fylk­ing­ar­innar fyrir þing­kosn­ing­arnar 2007 en þá hafði hún heyrt af einu af þessum málum.

Hrun Samfylkingarinnar

Segir hann í pistl­inum að Ingi­björg Sólrún hafi ekki átt nokkurn þátt í stofnun Sam­fylk­ing­ar­innar og lengi vel hafi hún haldið sér fjarri flokknum.

„Í fyrstu þing­kosn­ingum Sam­fylk­ing­ar­innar náði hún 27% at­kvæða. Í næstu kosn­ingum þar á eftir 32% at­kvæða. Í fjöl­miðl­unum var þá talað um hina tvo turna í ís­lenskum stjórn­málum, hvar af Sam­fylk­ingin var annar. Það var við þessar að­stæður, sem mann­eskja sú, sem kvaddi sér hljóðs á fimmta degi ætt­jarðar­vistar hjón­anna gömlu, gaf kost á sér til starfa fyrir Sam­fylk­ing­una. Svili hennar, sem þá var for­maður flokks­ins, bauð henni að styðja hana til for­sætis­ráð­herra, næði flokk­ur­inn nægu fylgi með hennar lið­sinni. Og þá sló hún til,“ skrifar Sig­hvatur.

Þá segir hinn aldni fyrrum Alþing­is­maður að tveimur árum seinna hafi Ingi­björg Sólrún ráð­ist gegn svila sínum og fellt hann frá for­mennsku í flokknum.

„Settist sjálf í það sæti. Gekk svo til sinna fyrstu þing­kosn­inga sem flokks­for­maður. Sam­fylk­ingin fékk þar 16,8% at­kvæða. Hafði sem sé tapað því sem næst helm­ingi fylg­is­ins frá næstu kosn­ingum þar á undan,“ skrifar Sig­hvatur. Í kjöl­farið hafi Ingi­björg Sólrún á­kveðið að falla frá megin­stefnu jafn­aðar­manna og ganga til stuðn­ings við Sjálf­stæðis­flokk­inn í sam­steypu­stjórn undir hans for­ystu og með því fengið utan­ríkis­ráð­herra­stól. Sá hinn sama og Jón Bald­vin hafi sjálfur setið í áður með glæsi­brag. Sú veg­ferð, sem þessi nýi for­maður leiddi, end­aði með mesta af­hroði, sem ís­lenskir jafn­aðar­menn hafa orðið fyrir í meira en 100 ára sögu sinni.“ Þarna vísar Sig­hvatur í 5,7 pró­senta fylgi sem Sam­fylk­ingin hlaut í kosn­ingum það árið.

„Hver einn og ein­asti fram­bjóð­andi flokks­ins féll í þeim kosn­ingum, sem eftir var þá enn af þeim hópi, sem leiddur var til sam­starfs við Sjálf­stæðis­flokk­inn og til eftir­leiks­ins, sem af því leiddi. Einn fram­bjóð­andi náði kjöri, ungur Akur­eyr­ingur sem engu hlut­verki hafði gegnt í veg­ferð­inni sem hafin var fyrir til­stilli þess, sem lét sér sæma að lýsa for­vera sínum sem rán­dýri. Rán­dýr, var hann sagður vera,“ skrifar Sig­hvatur, og spyr:

„Hvaða heiti skyldi nafn­gef­and­inn velja þeirri mann­eskju, sem leiddi flokk sinn til veg­ferðar, sem nán­ast leiddi til slátr­unar flokks­ins eins og varð um Sam­fylk­ing­una í kosn­ing­unum 2017?“

Ásakanirnar

Sig­hvatur minn­ist stutt­lega á ásak­an­irnar á hendur Jóni Baldvini, um kyn­ferð­is­brot, í pistli sínum. „Ásakanir um fjöl­mörg brot, sem mörg eiga að hafa átt sér stað fyrir meira en hálfri öld. Ásakanir, sem aldrei hefur þó verið fylgt eftir með ákærum svo hið íslenska dóms­kerfi gæti fengið að fjalla þar um og ákveða refs­ingu fyrir, ef stæð­ust. Ásak­endur hafa þannig tekið að sér bæði ákæru­valdið, dóms­valdið og refsi­valdið – sem skal vera að gera þessi öldr­uðu hjón útlæg úr eigin sam­fé­lagi og eigin landi. Nei – afsakið. Ein ákæran hefur verið tekin upp af ákæru­vald­inu.

Ákæran um, að sá ákærði hefði strokið um bak kven­manns við mat­borðið á heim­ili hins ákærða. Var ákærði sýkn­aður í hér­aði. Handhafi ákæru­valds­ins, kona, áfrýj­aði sýknu­dómnum til Lands­réttar þar sem dóms er að vænta í nóv­em­ber.“

Rósemd elliáranna

Í loka­orðum sínum seg­ist Sig­hvatur hafa þekkt Jón Baldvin og Bryndísi konu hans í fjöldi ára og aldrei hafa séð neitt athuga­vert við fram­komu þeirra eða atgerfi.

„Það er aldr­aður maður, sem skrifar þessi orð. Á sinni löngu starfsævi hafði hann mikil sam­skipti við þau hjón. Átti í harka­legum átökum við þau .

Líka í miklum sam­skiptum og sam­vinnu. Hefur deilt með þeim bæði stríðum og stund, jafnt gleði­stundum sem erf­iðum. Í öllum þeim sam­skiptum hefi ég aldrei orðið var við eða fengið pata af neinu af því mikla og nei­kvæða ásök­un­ar­efni, sem þeim hjónum er ætlað að bera.

Aldrei! Í friði og rósemd elli­ár­anna, sem ég hef fengið að njóta, hefur það mis­kunn­ar­leysi, sem þeim er sýnt, valdið mér áhyggjum. Raskað ró minni. Vakið mig til sam­úðar. Að þurfa að flýja heim­ili sitt, ætt­ingja, vini sína og vanda­menn, sjálfa ætt­jörð­ina – vegna grímu­lausra, stöðugt ítrek­aðra og vand­lega und­ir­bú­inna árása.

Mælist ein­dregið til þess við þá þjóð, sem við öll til­heyrum, að hún leyfi öldr­uðu fólki að njóta síð­ustu hér­vist­ar­daga í frið­semd og ró á ætt­jörð­inni sinni, á heim­ili sínu og með vinum sínum og vanda­mönnum. Svo fer þeim að ljúka —-þessum skrifum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi