Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Vináttan finnst víða

Vináttan finnst víða

Ég var mjög vina­margur í mennta­skóla. Var meira að segja nokkuð vin­sæll, þannig séð. Var tvisvar sinnum kos­inn sá fyndn­asti í skól­anum og óð í kven­fólki. Ok, þetta með kven­fólkið er lygi. Mennta­skóla­árin mín voru reyndar fleiri en flestra og því kynnt­ist ég senni­lega fleiri en góðu hófi gegnir. Mér fannst bara svo gaman í skól­anum að ég mátti ekki vera að því að útskrif­ast strax. En svo breytt­ist þetta smá saman eftir útskrift.

Flestir vina minna voru fluttir suður í frekara nám en ég hírð­ist áfram á Egils­stöðum eins og bjáni. En svo kom að því að ég flúði Héraðið og fór til Reykja­víkur. Þar eign­að­ist ég nokkra góða vini í háskól­anum og kynnt­ist barns­móður minni og svo voru nokkrir æsku­vinir mínir í borg­inni þannig að mér leidd­ist ekki, þvert á móti.

En svo tók lífið við. Smá saman kvarn­að­ist úr vina­hópnum. Ég er samt ekki að tala um vin­slit. Fólk flutti til útlanda, aftur heim í Hérað eða gleymdi sér í hjóna­böndum og barns­eignum. Geldust eins og ég hef oft kallað það. Ég náði þó að halda í tvo góða vini sem ég get dregið með mér í bíó og spilað borð­spil með.

En ég er líka nokkuð naskur í að verða mér út um vini á hinum ótrú­leg­ustu stöðum. Dóttir mín þolir ekki hvað ég tala oft við ókunn­uga en þannig hef ég alltaf verið, alveg frá því að ég var smá­polli á Eski­firði í denn. Og er varla að fara að breyt­ast í bráð.

Senni­lega er furðu­leg­asta vin­átta mín við hana Marian gömlu. Marian er ríf­lega sjö­tug kona frá Wales en hún hefur búið á Englandi í ára­tugi. Og hvernig kynnt­ist ég henni gæti ein­hver viljað spyrja. Nú auð­vitað í Skrafli á Facebook. Við lentum ein­hvern tíma á móti hvort öðru í Skrafl­leik á Facebook og byrj­uðum að spjalla. Svo urðu leik­irnir fleiri og spjallið lengra. Svo hætti ég að nenna að spila en vildi endi­lega spjalla áfram og nú sirka 8 árum síðar höfum við spjallað annað slagið á Messen­ger og í síma og hún hefur sent mér jóla­gjafir í nokkur skipti. Það var svo í sumar sem ég og dóttir mín hittum hana í fyrsta skipti er við feðginin kíktum á Billie Eilish tón­leika í London. Hún var jafn fyndin og skemmti­leg og hún hafði alltaf verið, skaut á mig lát­laust eins og góðum Breta sæmir, en alltaf í góðu.

Sem sagt, það sem ég vildi segja hér á síð­ustu blað­síðu blaðs­ins er að vin­áttan kemur í mörgum formum og finnst á furðu­leg­ustu stöðum, sé maður opinn fyrir því.

Hægt er að lesa nýjasta tíma­rit Mannlífs hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi