Formaður VR, Ragnar Þór Ingólfsson, hefur samkvæmt heimildum Mannlífs, dregið framboð sitt til embættis forseta Alþýðusambands Íslands – ASÍ – til baka.
Ragnar Þór mun hafa vísað til stöðuuppfærslu Halldóru Sveinsdóttur, sem er formaður Bárunnar, þar sem hún gagnrýndi Ragnar Þór mjög harðlega; beindist gagnrýnin einnig að Sólveigu Önnu Jónsdóttur, formanni Eflingar, sem og Vilhjálmi Birgissyni, formanni Starfsgreinasambandsins, en hann hefur einnig hætt við framboð sitt til 3. varaforseta ASÍ.
Mjög mikil og harkaleg átök hafa átt sér stað á 45. þingi ASÍ, sem nú stendur yfir; var dagskrá þingsins breytt í dag; ákveðið að ræða mál sem komið hafa upp nýverið; þar á meðal áðurnefnda stöðuuppfærslu Halldóru.

Staðan nú er því þannig að Ólöf Helga Adolfsdóttir, ritari Eflingar, er ein í framboði til forseta ASÍ. Kosið verður á morgun.
Ekki náðist í Ragnar vegna ákvörðunar hans, en Mannlíf mun halda áfram að fjalla um málið.































Athugasemdir