Í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu kemur fram að í tvígang var tilkynnt um þjófnað úr verslun. Voru bæði málin afgreidd á staðnum.
Þá voru höfð afskipti af manni sem gekk í veg fyrir bifreiðar í miðborginni. Fór allt friðsamlega fram í kjölfarið, en ekki er vitað hvað manninum gekk eiginlega til. Þótti mildi að engin slys urðu á fólki eða bifreiðum vegna háttalags mannsins.
Að lokum segir lögreglan að fáeinar aðrar minniháttar aðstoðarbeiðnir hafi verið afgreiddar án mikilla vandkvæða.





















Athugasemdir