Stórleikarinn og Grínkóngur Íslands, sjálfur Pétur Jóhann Sigfússon er nú genginn í heilagt hjónaband; hann og Sigrún Halldórsdóttir staðfestu ást sína á hvort öðru fyrir Guði og mönnum um helgina.

Hjónin eru hins vegar búin að vera lengi saman; í heil fimmtán ár.
Athöfnin fór fram í hinni fallegu Garðakirkju.
Hjónin Pétur Jóhann og Sigrún eiga einn son saman, en bæði eiga þau dætur – eina á mann – úr fyrra sambandi.

Alveg óhætt er að segja að Pétur Jóhann er einn allra vinsælasti skemmtikraftur Íslands og of langt mál væri að telja upp öll hlutverkin sem hann hefur skilað af sér með sóma og sann.

Sigrún er síðan enginn aukvisi; sinnir starfi mannauðsstjóra hjá Bláa lóninu, sem er heimsfrægt fyrirtæki sem milljónir útlendinga og góður slatti af Íslendingum hefur heimsótt á síðustu áratugum.
Glæsileg hjón sem Mannlíf sendir hamingjuóskir til.































Athugasemdir