Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ljósmyndarinn Óskar Hallgrímsson er í fremstu víglínu: „Það er þjóðarmorð í gangi í Úkraínu“

Ljósmyndarinn Óskar Hallgrímsson er í fremstu víglínu: „Það er þjóðarmorð í gangi í Úkraínu“

„Þetta er stærsta árás sem gerð hefur verið á Úkraínu síðan í byrjun stríðs en þetta er ann­ars það sem er að ger­ast í þessu stríði alla daga,“ segir Óskar Hall­gríms­son ljós­mynd­ari um árásir Rússa á ýmsa staði í Úkraínu fyrr í vik­unni. Óskar er kvæntur úkra­ínskri konu og hefur búið í Úkraínu und­an­farin ár og hefur frá því að stríðið hófst farið víða og myndað afleið­ingar þess. „Þetta er það sem ég er að sjá alla daga. Almennir borg­arar eru skot­mörk og virð­ast nán­ast ein­göngu vera skot­mörk því miður.“

Stór sprengja sprakk í vik­unni á brúnni yfir Kerch-sund sem er á milli Rúss­lands og Krím­skaga. Brúin er mik­il­væg fyrir rúss­neska her­inn, en um hana fara meðal ann­ars her­gögn fyrir rúss­neska her­menn sem berj­ast í Úkraínu, og er talið að auknar árásir í vik­unni séu svar Pútíns við sprengj­unni á brúnni.

Þetta voru ein­göngu borg­ara­leg skot­mörk.

„Pútin varð að gera eitt­hvað af því að hann er í raun­inni ekki að sigra neins staðar og það eina sem hann hefur eftir eru hryðju­verk og kjarn­orku­árás af því að hann vinnur ekki á víg­vell­inum. Hann hefur í hvert skipti sem Úkraína vinnur hern­að­ar­legan sigur ráð­ist á borg­ara­legt skot­mark. Hann hefði getað notað þessi 80 flug­skeyti á hern­að­ar­leg skot­mörk en hann gerði það ekki. Þetta voru ein­göngu borg­ara­leg skot­mörk; fjöl­býl­is­hús og allt þar fram eftir göt­unum. Þannig að þetta var mjög dýrt fyrir hann. Þetta voru mik­il­væg flug­skeyti sem segir að stoltið sé miklu stærra heldur en taktískur heili af því að þetta þjónar þannig séð engum taktískum til­gangi fyrir Pútin annað heldur en að hræða. Þetta stýrir stríð­inu sjálfu ekki neitt. Akkúrat ekk­ert.“

Óútreiknanlegt rugl

Óskar hefur upp­lifað og séð margt síð­ustu mán­uði.

„Í mínu dag­lega lífi er ég heima hjá mér í Kyiv og þá upp­lifi ég ekk­ert stríðið þannig séð. Ég var ekki heima þegar árás­irnar voru gerðar í vik­unni en konan mín var heima. Það hafði ekki verið gerð árás í Kyiv í marga mán­uði og ekki svona stór síðan stríðið hófst. Ég elti hins vegar stríðið uppi þannig séð en ég fer inn í borgir og bæi sem eru ann­að­hvort nýfrels­aðir eða undir árás. Ég var til dæmis í vik­unni í bæ sem er undir árás.

Þetta er nátt­úr­lega hættu­legt og maður þarf að koma sér í gegnum ýmis­legt.

Lífið er mjög fjöl­breytt þegar ég er að vinna. Það er mikið af óút­reikn­an­legu rugli sem maður þarf að ganga í gegnum þegar maður vinnur sem ljós­mynd­ari í stríði af því að ég er ekki að berj­ast. Þetta er nátt­úr­lega hættu­legt og maður þarf að koma sér í gegnum ýmis­legt. Það er margt sem maður þarf að gera á bak við tjöldin varð­andi upp­lýs­inga­öflun til að tryggja öryggi sitt og vita að maður sé að fara á ein­hvern stað sem er frétt­næmur og að maður hafi aðgengi að staðnum. Það er oft sem maður lendir í því að geta ekki gert það sem maður ætl­aði sér að gera eða manni er snúið við á ein­hverjum stað eða þá að verk­efnið tekst ekki. Það er eng­inn sem skipu­leggur hvernig stríð hegða sér. Maður verður ein­hvern veg­inn að læra að vinna með því.“

Óskar hefur ljós­myndað um víða ver­öld. Hann býr í Úkraínu.

Hinn mannlegi harmleikur

Óskar hefur upp­lifað mikið af hörm­ungum og hefur hann meðal ann­ars verið á svæði þar sem sprengjur sprungu og segir hann að þá hafi þurft að aka hratt í burtu og að fólk hafi andað frekar hratt.

„Ég fór fyrir nokkrum vikum að fjölda­gröf í borg­inni Izyum með um 450 líkum og var verið að grafa fjölda­gröf­ina upp. Það var hræði­legt. Um 50.000 manns bjuggu í borg­inni og eru um 90% hennar eyðilögð.

Þessi mann­legi harm­leikur er eig­in­lega það versta sem ég hef upp­lifað í þessu stríði. Það er það sem fer mest í mig. Ég á erfitt með að hitta ein­hvern sem er búinn að tapa öllu, er fórn­ar­lamb glæps og sér­stak­lega kyn­ferð­is­of­beldis. Og þegar óvissa er um fram­tíð fólks. Þetta finnst mér vera erf­ið­ast af öllu saman sem og að sjá heim­ili fólks sem var drepið eða sem fólk hefur þurft að yfir­gefa og sjá eymd­ina sem fylgir því. Þetta er sam­an­safn af þús­und sögum sem maður hefur orðið vitni að og sem er það erf­ið­asta í þessu öllu saman.“

Það eru jarð­sprengjur út um allt.

Óskar þarf að hafa margt í huga örygg­is­ins vegna. Þegar blaða­maður sendi honum skila­boð og spurði hvort hann væri til í við­tal skrif­aði hann: „Ég er rosa­lega mikið ekki með sím­ann út af örygg­is­á­stæðum, en ef ég má senda þér voice memo þá er það ekk­ert mál.“ Úr varð að spurn­ingar voru sendar í Messen­ger og hann sendi svo skila­boð á hljóð­skrám. „Rússar geta fylgst með símum fólks, far­síma­neti þess og trakkað hvar það er þannig að maður þarf að hafa það í huga þegar maður er að vinna. Margir Rússar hafa verið drepnir út af því að þeir hafa verið í símunum sínum og þá vita Úkra­ínu­menn hvar þeir eru. Þeir klúðra þessu algjör­lega.“

Óskar er ann­ars í skot­heldu vesti og með örygg­is­hjálm þegar hann er að vinna á átaka­svæðum. Hann fór á nám­skeið til að læra hvað ætti að hafa í huga og svo er hann með sjúkra­búnað sem er sér­stak­lega hann­aður fyrir víg­völl. Svo þarf hann að hafa í huga hvar hann stígur niður. „Það eru jarð­sprengjur út um allt.“

Þjóðarmorð

Óskar er spurður hvernig and­lega líð­anin sé eftir að hafa orðið vitni að öllum þessum hörm­ungum.

Það sprungu nýlega sprengjur nokkur hund­ruð metra frá heim­ili mínu.

„Andlega líð­anin er ágæt þannig séð. Ég er búinn að vera lengi í þessu; þetta eru sjö mán­uðir. Maður lærir ein­hvern veg­inn að díla við þetta allt saman. Þegar ég á erf­iða daga þá get ég orðið pirr­aður út í sam­starfs­fé­laga mína. Það sem hefur mest áhrif á mína and­legu líðan er að áhug­inn á stríð­inu hjá fólki heima á Íslandi og víðar í Evrópu virð­ist vera búinn að detta niður. Ég er ekki að segja að fólki gæti ekki verið meira sama en áhug­inn er aug­ljós­lega að dvína og að fólk láti sig skipta að það er þjóð­ar­morð í gangi í Úkraínu. Ég er tengdur þessu og þetta skiptir mig máli. Ég hitti í gær fólk sem er búið að tapa aleig­unni og það sprungu nýlega sprengjur nokkur hund­ruð metra frá heim­ili mínu. Það held ég að sé erf­ið­ast fyrir mig. En and­lega heilsan er samt fín. Ég er hepp­inn að eiga góða konu og við erum góðir félagar þegar kemur að þessu og við styrkjum hvort annað. Margir sam­starfs­fé­lagar mínir og vinir eru að ganga í gegnum það sama og ég og það er gott að eiga þá að þegar þetta er mjög erfitt. Ég við­ur­kenni það.“

Óskar hefur lært ýmis­leg um sjálfan sig und­an­farna mán­uði. „Ég hef lært hvernig ég höndla lífið og til­ver­una undir frekar miklum streitu­að­stæðum. Ég er búinn að læra að ég er góð mann­eskja í grunn­inn. Ég hef séð að það sem pirraði mig áður skiptir mig engu máli í dag; mér gæti ekki verið meira sama. Það er svo margt sem maður lærir að meta þegar maður er í þessum aðstæðum. Ég er mjög þak­látur fyrir hitt og þetta sem ég hefði ekki getað ímyndað mér og ég er þakk­lát­ari fyrir hluti sem ég var þakk­látur fyrir. Það er búið að hjálpa mér mikið að eiga maka og vera í góðu sam­bandi. Við erum gott teymi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi