Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ragnari Þór og fjölskyldu hans bárust alvarlegar hótanir: „Hatrið sigraði mig í dag“

Ragnari Þór og fjölskyldu hans bárust alvarlegar hótanir: „Hatrið sigraði mig í dag“
Ragnar Þór Ing­ólfs­son er for­maður VR

Eins og kom fram í fréttum Mannlífs í dag þá hætti Ragnar Þór Ing­ólfs­son mjög óvænt við fram­boð sitt til for­seta ASÍ. Hann sendi nú rétt í þessu frá sér yfir­lýs­ingu:

„Kæru vinir. Ég tók nýverið ákvörðun um að bjóða mig fram til for­seta ASÍ á þingi sam­bands­ins sem haldið er dag­ana 10. til 12. októ­ber. Mark­miðið með fram­boði mínu var að gera til­raun til að sam­eina krafta okkar á þessum vett­vangi. Sam­ein­ast undir merkjum ASÍ og sam­ein­ast sem breið­ari fylk­ing en áður og nýta þingið sem tæki­færi til að slíðra sverðin og snúa bökum saman.

Ég hafði ein­læga trú um að við gætum skilið þá eitr­uðu orð­ræðu og átök sem hafa ein­kennt Alþýðu­sam­bandið síð­ustu ár eftir á þing­inu.

Verk­efnin framundan eru risa­stór og krefj­andi. Kjara­samn­ing­arnir framundan verða þeir flókn­ustu og erf­ið­ustu frá hruni. Fyrir síð­ustu samn­inga mynd­uðu nokkur stétt­ar­fé­lög banda­lag og náðum, að mínu mati, mjög góðri nið­ur­stöðu við erf­iðar aðstæður. Marg­þættar kjara­bætur í bland við aðgerð­ar­pakka stjórn­valda.

Ef okkur tókst þetta í smærri hóp hugs­aði ég sem svo, hversu miklu getum við náð ef við stöndum saman sem enn breið­ari fylk­ing og á vett­vangi ASÍ? Við verðum óstöðv­andi og við munum ná gríð­ar­legum árangri fyrir okkar fólk.

Við vorum byrjuð á þess­ari vinnu á óform­legum vett­vangi ASÍ þar sem saman komu lands­sam­bönd versl­un­ar­fólks, starfs­greina­sam­bands­ins og iðn­að­ar­manna. Í þau 14 ár sem ég hef starfað innan hreyf­ing­ar­innar hef ég sjaldan fundið jafn góðan anda innan ólíkra hópa. Við vorum að hefja vinnu við það hvernig við gætum sam­ein­ast um ólíkar áherslur og var ég afar bjart­sýnn fyrir þingið um að okkur tæk­ist raun­veru­lega að leiða okkur saman.

Síðustu daga og vikur fyrir þingið höfðu lit­ast af ótrú­lega ósmekk­legri orð­ræðu og árásum á mína per­sónu. Ég var ítrekað kall­aður valda­sjúkur ofbeld­is­maður og sak­aður um að ætla að segja upp öllu starfs­fólki ASÍ kæm­ist ég til valda.

Það er einkar dap­ur­legt að gjald­fella orðið ofbeldi með þessum hætti. Að stilla upp póli­tískum deilum og ágrein­ingi upp sem ofbeldi eru kaldar kveðjur til þeirra sem raun­veru­lega verða fyrir ofbeldi.

Ég hef oft talað um mik­il­vægi sam­stöðu ólíkra hópa til að ná árangri. Raun­veru­legum árangri fyrir okkar félags­fólk og fyrir sam­fé­lagið allt. Um það snýst málið. Við erum að vinna fyrir fólkið okkar. Fólkið sem treystir okkur fyrir að bæta lífs­kjörin. Þau öfl sem hafa viljað okkur burt hafa ekki talað einu orði um þetta. Ekki einu orði um fólkið okkar sem getur vart borgað af lán­unum sínum eða húsa­leig­una. Eða fjöl­skyldur sem geta lítið orðið gert annað en að kaupa síhækk­andi nauð­synjar í 9% verð­bólgu og hækk­andi vöxtum.

Stjórn­völd hafa svo lítið lagt til mál­anna annað en auknar álögur ofan á allt saman.

Af hverju í ósköp­unum getur umræðan ekki snú­ist um þetta?

Af hverju þetta taum­lausa hatur?

Hvað höfum við eig­in­lega gert þessu fólki?

Fyrir síð­ustu kjara­samn­inga bár­ust mér og fjöl­skyldu minni alvar­legar hót­anir. Hótanir sem hægt var að rekja til þeirrar orð­ræðu sem var á þeim tíma, þið munið, við vorum stór­hættu­legt og kol­ruglað fólk með sturl­aðar kröfur sem leggði hag­kerfið í rúst og allt það.

Það kemur fyrir að fár­veikt fólk grípur svona hluti. Í gegnum tíð­ina höfum við fengið okkar skerf af slíku, mis alvar­legu þó. Það er þó eins og stemn­ingin sé að breyt­ast í okkar sam­fé­lagi og mál sem þessi koma oftar og oftar upp gagn­vart kjörnum full­trúum.

Á sama tíma höfum við verið að taka þessu áreiti og hót­unum af meiri alvöru. Með meiri nei­kvæðri athygli fylgir aukið áreiti og um síð­ustu mán­að­ar­mót fór að bera aftur á alvar­legum hót­unum. Ég tala ekki mikið um þetta og ég læt alltof sjaldan vita af því.

Guðbjörg konan mín tekur þetta mjög nærri sér, eðli­lega því við erum með ung börn á heim­il­inu. Til að setja í sam­hengi hvað ég er að tala um á ég mér drauma og mark­mið. Þeir voru að sam­eina hreyf­ing­una fyrir fólkið okkar og fólkið í land­inu. Ná árangri og breyta til hins betra. En fyrir þeim er ekki ótak­mörkuð inni­stæða. Sér­hags­muna­öflin sem við erum að berj­ast á móti eru hrika­leg og mun ósvífn­ari og skipu­lagð­ari heldur en flestir gera sér grein fyrir. Þess vegna byggj­ast mögu­leikar okkar og árangur á sam­stöðu. En allt hefur sín mörk og stundum sigrar hat­rið eins og segir í text­anum.

Hatrið sigr­aði mig í dag.

Samvinna og sam­staða er val, sömu­leiðis átök og sundr­ung. Und­an­farið hafa dunið á mér ásak­anir um ofbeldi og því slegið upp á for­síðum og með grein­ar­skrifum, und­ir­rit­uðu af full­orðnu fólki. Fólki sem með réttu ættu að kall­ast félagar mínir. Ég er vændur um að sækj­ast í völd, öskri og skelli hurðum ef ég fæ ekki mínu fram og vilji reka fólk fyrir engar sakir. Þrátt fyrir að hafa tek­ist, ásamt stjórn VR, að skapa frá­bæra stemn­ingu og liðs­heild innan VR síð­ustu 6 ár. Þar hefur samt engum verið sagt upp og starfs­á­nægja með því sem best þekk­ist.

En allt þetta skiptir engu máli.

Sé lygin sögð nægi­lega oft fer fólk að trúa henni.

Trúa því að þetta sé mögu­lega satt.

Ég fór inn á þing Alþýðu­sam­bands­ins með háleit mark­mið og ein­læga von um að okkur tæk­ist að snúa bökum saman og hugsa um fólkið okkar, sam­ein­ast og berj­ast fyrir fólkið.

Ég bauð mig fram til að leiða þetta verk­efni. Ekki af því að ég er sjúkur í völd heldur vegna þess að ég hafði trú á því að þetta væri hægt, í ljósi þess hversu vel okkur hefur tek­ist til í VR við að sam­eina ólík sjón­ar­mið og vinna sem ein heild, ekki meiri eða minni­hluti heldur liðs­heild.

Í morgun fékk ég skjá­skot af enn einni færslu frá for­manni stétt­ar­fé­lags innan ASÍ, einum af þeim sem hefur talað hvað hæst gegn því að ég og margir fleiri nái kjöri á þingi sam­bands­ins.

Í færsl­unni er ég enn og aftur sak­aður um ofbeldi og mark­mið mitt sé fyrst og fremst að segja upp öllu starfs­fólki. Þegar börnin mín lesa fyr­ir­sagnir um að pabbi þeirra stundi ofbeldi og reki fólk fyr­ir­vara­laust eða heyra því hvíslað á förnum vegi, brestur eitt­hvað.

Ég ræddi þetta við kon­una mína yfir kaffi­bolla í morgun, eftir að við lásum nýj­ustu árás­ina í minn garð. Árás á mína æru og per­sónu. Árás á miðju þingi ASÍ sem ég von­að­ist til að vera vett­vangur sátta. Ákváðum við í sam­ein­ingu að þetta væri ekki þess virði. Því miður. Ég skal við­ur­kenna það að ég átti mjög erfitt eftir að ég tók þessa ákvörðun og var við það að brotna niður. Ekki vegna þess að ég fengi ekki meiri völd, heldur að sjá á eftir tæki­fær­inu sem við höfðum til að verða ósigr­andi.

Ég trúði þessu svo inni­lega að þetta væri hægt og hvað við ætl­uðum að ná miklu fram fyrir fólkið okkar. En ég finn líka fyrir miklum létti að vera laus úr þessu sam­bandi. En allt eru þetta val­kostir og ég valdi í dag.

Ég tók ákvörðun um að velja að vinna frekar með öllu því frá­bæra fólki sem starfar á vett­vangi VR.

Ég valdi sam­heldni og virð­ingu.

Okkur í VR mun örugg­lega takast vel til í næstu kjara­samn­ingum þó samn­ings­staðan gagn­vart stjórn­völdum sé ekki lengur til staðar.

Ég mun gera mitt allra besta eins og alltaf fyrir félags­fólk VR. Því lofa ég.

Ég ber engan kala til þess fólks sem var með yfir­lýst mark­mið um að fella okkur á þing­inu. Við þau vil ég segja. Nú erum við farin, ekki lengur fyrir. Nú fáið þið tæki­færi til að leiða kjara­samn­inga ykkar félaga og vett­vang ASÍ til að styðja við þá veg­ferð.

Ég óska ykkur alls hins besta. Ég vona að þið nýtið tæki­færið vel og náið sem bestum árangri fyrir ykkar fólk, árangri sem nýt­ist okkur í okkar bar­áttu.

Bar­áttu­kveðjur Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi