Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Í góðum málum / Í slæmum málum

Í góðum málum / Í slæmum málum

Í góðum málum

Óskar Hrafn Þorvaldsson

Breiða­blik tryggði sér Íslands­meist­ara­tit­il­inn í knatt­spyrnu karla nýverið, í annað sinn; áður hefur Breiða­blik hampað titl­inum góða árið 2010.

Í fyrra var liðið með pálmann í hönd­unum, en það gaf eftir í næst­síð­ustu umferð og Víkingar tóku Íslands­meist­ara­tit­il­inn.

Í ár var engin eft­ir­gjöf; engin grið gefin – enda upp­skeran eftir því. Breiða­blik er með besta liðið á land­inu.

Óskar Hrafn Þor­valds­son er þjálf­ari Breiða­bliks, og óhætt er að segja að hann sem þjálf­ari sé í raun ekk­ert annað en töfra­maður; slíkur er árangur Óskars eftir að hann hellti sér á fullt í meist­ara­flokks­þjálfun.

Hann tók við liði Gróttu á Sel­tjarn­ar­nesi, sem þá var í 2. deild­inni. Grótta er félag sem frekar lítið hefur farið fyrir í íslenskri knatt­spyrnu­sögu; það breytt­ist þegar Óskar tók við lið­inu.

Á tveimur tíma­bilum flaug liðið upp um tvær deildir, spil­aði skemmti­legan sókn­ar­bolta og árang­urs­ríkan.

Þessi ótrú­lega frammi­staða Óskars sem þjálf­ara vakti athygli margra liða, og fór svo að Breiða­blik datt í lukku­pott­inn og nældi í Óskar, sem gjör­breytti lið­inu á svip­stundu.

Vel skipu­lagður og sókn­djarfur leikstíll Breiða­bliks hefur síðan glatt augað og mörkin hafa verið ófá. Og núna er upp­skeran komin í hús – Íslands­meist­ara­tit­ill­inn 2022.

Toppteymi. Halldór Árnason og Óskar Hrafn Þor­valds­son.

Það sem ein­kennir Óskar er gríð­ar­legur dugn­aður og lít­ill svefn. Hann nær ávallt að beisla sína svaka­legu orku og hefur mikla yfir­sýn. Óskar nær til sam­starfs­fólks síns á góðan hátt – fólk vill vinna með honum þótt hann sé kröfu­harður, því hann er líka mjög hlýr yfir­maður sem nær því besta úr fólki. Og hann er alls ekki fyrir ein­hver drama­köst; trúir á vinnu­semi og aga, en passar sig á að hafa líka gaman að hlut­unum og njóta sigr­anna og læra af töp­unum.

Vert er að geta þess að aðstoð­ar­þjálf­ari Breiða­bliks, Halldór Árnason, spilar stóra rullu í bæði vel­gengni Gróttu og Breiða­bliks. Hann og Óskar vinna afar vel saman og hafa í sam­vinnu við fólk innan knatt­spyrnu­deild­ar­innar komið Breiða­blik á nýjan leik í topp­sætið með Íslands­meist­ara­bik­ar­inn gljá­fægðan og gull­fal­legan á góðum stað.

Til ham­ingju Breiða­blik!

Í slæmum málum

Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra

Hryðju­verka­málið svo­kall­aða hefur verið fyr­ir­ferða­mikið í fŕéttum að und­an­förnu. Svo virt­ist sem tveir ungir íslenskir menn væru í þann mun að fremja hryðju­verk – í fleir­tölu – hér á Íslandi; spreng­ingar, skot­hríð og morð á þekktu fólki á Íslandi.

Eftir allan hasar­inn og lætin í kringum hand­töku mann­anna kom í ljós að hér voru engir fag­menn á ferð; bara litlir pappa­kassar að reyna að gera sig stóra og breiða.

Vissu­lega er ekk­ert fyndið né gott þegar fólk er að hóta öðrum og ræða um að drepa þennan og drepa hinn – reyndar algjör við­bjóður.

En miðað við lætin sem urðu útaf þessu máli þá virð­ist þetta ein­fald­lega vera stormur í vatns­glasi; hafa enda margir rætt og ritað um að hér hafi verið gerður úlf­aldi úr mýflugu.

Mýfluga þessi drakk úr vatns­glas­inu hjá Jóni Gunn­ars­syni dóms­mála­ráð­herra; og stækk­aði og stækk­aði.

Jón Gunn­ars­son dóms­mála­ráð­herra.

Og Jón var eins og hendi væri veifað til­bú­inn með frum­varp þar sem efl­ing lög­regl­unnar er á dag­skrá; auka á vald­heim­ildir lög­regl­unnar og vopna­burð. Ætlunin er að lög­reglan hér á landi fái raf­byssur og geti með for­virkum rann­sókn­ar­heim­ildum hlerað og fylgst með ein­stak­lingum sem hafa ekki framið glæp eða glæpi, en gætu það mögu­lega.

Öllum er það ljóst að hið svo­kall­aða hryðju­verka­mál var ekk­ert annað en tylli­á­stæða til að þröngva í gegn úldnu vopna- og njósn­a­frum­varpi Jóns Gunn­ars­son dóms­mála­ráð­herra.

Málið var bein­línis notað til að vekja ótta í sam­fé­lag­inu, og eina leiðin gegn ótta og mögu­legum yfir­vof­andi hættum er auð­vitað byssur og hler­anir. Það vita allir.

Þá hefur Jón enn á ný vakið reiði margra með ummælum sínum um flótta­menn í neyð sem hingað koma, og vill hann herða enn frekar – og gera þar með flótta­fólki í neyð lífið enn ömur­legra – útlend­inga­lög­gjöf­ina.

Þessir und­an­förnu dagar hafa varpað afar skýru ljósi á dóms­mála­ráð­herra; hver hans sýn er á sam­fé­lag okkar: Hann vill Ísland fyrir Íslend­inga (hvað sem það nú þýðir) og að lög­reglan hér hafi í það minnsta raf­byssur og afar rúmar heim­ildir til að njósna um fólk.

Sýn Jóns er ekki útópísk – hún er dystópísk.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi