Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Elín Björk er neytandi vikunnar: „Frystiskápar- og kistur eiga það til að verða einskonar svarthol“

Elín Björk er neytandi vikunnar: „Frystiskápar- og kistur eiga það til að verða einskonar svarthol“
Elín Björk Ragn­ars­dóttir er með mörg ráð fyrir neyt­endur.

Neytandi vik­unnar, Elín Björk Ragn­ars­dóttir er fædd 1973, gift og fimm barna móðir. Svo á hún einnig tvö ömmu­börn. Fjöl­skyldan er búsett í Mos­fellsbæ. Elín starfar sem far­ar­stjóri hjá Ferða­fé­lagi Íslands og er björg­un­ar­sveit­ar­maður í Björg­un­ar­sveit­inni Kyndli Mos­fellsbæ. Einnig er hún sjálf­stætt starf­andi ráð­gjafi hjá Tupperware.

Hvernig sparar þú í matarinnkaupum?

Ég kaupi alltaf nauta­kjöt og kjúkling í magn­pakkn­ingum. Lamba­kjöt kaupi ég beint af bónda. Ég kaupi einnig oft græn­meti og ávexti sem eru á síð­asta séns og frysti eða nota í súpur eða pott­rétti. Ég reyni að skipu­leggja viku­leg inn­kaup með því að gera viku­mat­seðil. Einu sinni í viku erum við með „vina­legan viku­dag“ en það er kjöt­laus dagur.

Endurnýtir þú? Ertu með ráð til annarra?

Já, ég end­ur­nýti. Við fjár­festum í flokk­un­ar­tunnum í eld­húsið og þá gengur miklu betur fyrir alla fjöl­skyldu­með­limi að flokka. Fatnað hef ég selt í Extra­lopp­unni og hús­gögn og annan hús­búnað hef ég ann­að­hvort sett í nytjagám Sorpu eða aug­lýst á gef­ins síðum á Facebook. Það er nefni­lega þannig að þegar hlut­ur­inn hættir að veita þér gleði er til­valið að hann fái að veita öðrum gleði.

Gefðu eitt­hvað sem kemur frá hjart­anu

Hvað hefur þú í huga þegar þú kaupir mat, fatnað og gjafir?

Það fyrsta sem mér dettur í hug varð­andi mat­vöru er að hún sé inn­lend. Ef ég þarf að versla inn­flutta vöru, þá reyni ég að gæta að hún sé ekki flutt um langa leið til neyt­anda. Varðandi fatnað, þá versla ég mikið not­aðan fatnað og reyni frekar að fjár­festa í íslenskri hönnun. Þegar kemur að gjöfum, þá slá heima­til­búnar gjafir alltaf í gegn. Til dæmis gott granóla eða sultur. Gefðu eitt­hvað sem kemur frá hjart­anu. Gjafa­bréf í ýmis­konar upp­lif­anir eru einnig sniðugar.

Elín Björk er úti­vist­ar­kona.

Hverju átt þú erfiðast með að draga úr kaupum á?

Ég á afar erfitt með að draga úr kaupum á vörum tengdum úti­vist og hreyf­ingu en reyni þá frekar að finna not­aðan úti­vi­starfatnað og því tengt á sölu­síðum eða í Extra­lopp­unni. Oft heldur fólk að flíkin sé ónýt þegar hún hættir að vera vatns­held og losar sig við hana. Það eina sem þarf að gera er að vatns­verja hana upp á nýtt og hún gengur í end­ur­nýjun líf­daga.

Skiptir umhverfisvernd þig máli?

Já, ég myndi segja það. Ég er löngu hætt að nota smjör­pappír, plast­filmu og poka. Núna nota ég fjöl­nota bakst­ur­mottu og fjöl­nota frysti- og geymslu­í­lát og svo rúllar fjöl­skyldan um á raf­magns­bílum.

Annað sem þú vilt taka fram?

Ég get gefið gott ráð varð­andi fryst­ingu á mat. Frysti­skápar- og kistur eiga það til að verða eins­konar svart­hol sem hlutir gleym­ast í. Það er gott að halda skjal utan um hvað er í kist­unni og taka það upp sem er orðið elst. Ef þú ætlar að prófa þetta, er gott að taka allt upp úr, skrifa niður við­kom­andi mat­vöru og dag­setn­ingu.

Ellu granóla

  • 125 g hafra­mjöl
  • 100 g gróft kókos­mjöl
  • 100 g hnetur t.d möndlur, pekan eða hesli­hnetur í grófum bitum
  • 65 g blönduð fræ t.d graskers, sól­blóma­fræ eða hörfræ
  • 1 dl rús­ínur, döðlur, epli, apríkósur, trönu­ber eða aðrir smátt skornir, þurrk­aðir ávextir
  • 1 ½ tsk kanill
  • 2 msk kókos­olía (má vera sól­blóma eða græn­met­is­olía)
  • 125 g hlynsíróp eða syk­ur­laust síróp

Aðferð

Hitið ofn­inn í 170° gráður, undir og yfir­hiti. Blandið öllum þurr­efnum saman í stóra skál. Hitið kókosol­í­una í vatni þannig að hún verði fljót­andi. Setjið síróp og kókosolíu út í blönd­una og hrærið vel saman. Hellið á fjöl­nota síli­kon mottu, dreifið vel úr og bakið í miðjum ofni í 20-25 mín­útur. Gott að taka út þegar tím­inn er hálfn­aður og hræra upp í blönd­unni. Takið úr ofn­inum, hrærið upp í blönd­unni og látið kólna á mott­unni. Setjið í loft­þétt ílát og geymið á þurrum og dimmum stað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi