Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Neytandi vikunnar varar við eyðslupúkanum á öxlinni: Sparar allt árið fyrir jólagjöfunum

Neytandi vikunnar varar við eyðslupúkanum á öxlinni: Sparar allt árið fyrir jólagjöfunum
Dagbjört Jóns­dóttir Mynd: Eirikur Ingi Bengtsson Helgason

Neytandi vik­unnar að þessu sinni er Dagbjört Jóns­dóttir. Dagbjört er 39 ára lög­fræð­ingur, eig­in­kona og móðir og er búsett í Mos­fells­bænum.  

Dagbjört heldur úti miðl­inum Fundið fé (https://www.instagram.com/fundid_fe/) á Instagram þar sem hún setur inn ýmsan fróð­leik og hvatn­ingu varð­andi  sparnað, útgjöld og pen­inga. Dagbjört gaf sér tíma til að svara nokkrum spurn­ingum um neyslu­venjur sínar. 

Leggur þú fyrir og ef svo er hvaða leiðir notar þú ?  

Mér finnst skipta miklu máli að leggja fyrir mán­að­ar­lega, alveg sama hversu lítil sú upp­hæð kann að vera. Ég legg fyrir í sparnað í hverjum mán­uði. Ég legg líka til hliðar pen­ing í útgjalda­flokka sem ég veit að ég þarf að eiga fyrir, t.d. jóla­gjafir, tóm­stundir barna o.s.frv. Þannig hefur það ekki áhrif á útgjöld mán­að­ar­ins þegar þessi kostn­aður bæt­ist við. 

Inn á heima­bank­anum er hægt að koma á sjálf­virkum milli­færslum. Ég mæli heils hugar með að nýta sér þessa þjón­ustu því ann­ars getur eyðslu­púk­inn á öxl­inni sann­fært þig að eyða pen­ingnum í eitt­hvað skemmti­legt núna frekar en að geyma hann fyrir eitt­hvað skyn­sam­legt seinna.   

Hvar kaupir þú helst í mat­inn og hvað hefur þú í huga í mat­ar­inn­kaupum, sem neyt­andi?  

Fyrir mitt leyti hentar mér best að gera vikuinn­kaupin á net­inu, sér­stak­lega þegar mikið er að gera og ég hef ekki tíma til þess að fara í búð. Með því að kaupa í mat­inn á net­inu get ég keypt í mat­inn út frá stöð­unni í skáp­unum heima og ákveð kvöld­verði vik­unnar út frá því sem er til. Yfir­leitt kaupi ég minna en ég hefði gert í hefð­bund­inni mat­vöru­verslun og ég er miklu með­vit­aðri um hvað ég kaupi. 

Þegar ég fer í búð­ina þá vel ég oft­ast að nota „Skannað og skundað” frá Krónunni. Þannig sé ég nákvæm­lega hvað karfan mín mun kosta og er síður lík­leg til að setja eitt­hvað í körf­una sem mig vantar ekki. Svo þarf ég aldrei að bíða í röð á kassa til að borga! Gott trix til að gera búð­ar­ferð­ina bæri­legri er að hlusta á upp­á­halds hlað­varps­þátt­inn þinn á meðan þú ert í búð­inni. Það hefur marg­sinnis hjálpað mér að koma mér af stað í búð­ar­inn­kaupin þegar ég nenni engan vegin af stað. 

Ég nýti mér stundum mat­ar­pakka með til­búnum kvöld­verðum þó það sé vissu­lega mun­aður en ekki sparn­aður. Ég finn hins vegar að ég fer miklu sjaldnar í búð­ina þegar ég panta  þessa þjón­ustu. Ég hef líka oft pantað kvöld­verði fyrir tvo þó við séum fjögur í heim­ili og bæti þá ein­fald­lega við auka með­læti. Þannig helm­inga ég kostn­að­inn en ein­falda mér lífið með því að þurfa ekki að taka ákvörðun um hvað eigi að vera í mat­inn.  


Hvert er þitt helsta sparn­að­ar­ráð?  

Mitt helsta sparn­að­ar­ráð er að skrifa niður öll þín útgjöld og fara viku­lega yfir þau. Með því að hafa þessa yfir­sýn og skoða það sem þú eyðir áttar þú þig betur á hvað má betur fara. Þannig ertu ólík­legri til að end­ur­taka inn­kaup sem þig langar að forð­ast. Vertu með fjár­hags­leg mark­mið að hverju þú stefnir og mát­aðu þín inn­kaup við þessi mark­mið. Þú skalt alltaf spyrja þig: eru þessi inn­kaup að draga mig nær eða fjær mínum mark­miðum?  

Umhverf­is­vernd, skiptir hún þig máli? 

Umhverf­is­vernd á erindi við alla og ég reyni að leggja mig fram hvað það varðar. Á okkar heim­ili er einn bíll þó það getur vissu­lega verið púslu­spil í úthverfa­líf­inu en hefur gengið upp fyrir okkur. Ég kaupi iðu­lega notuð hús­gögn og það sama á við um föt. Ég er mik­ill aðdá­andi Barna- og Extra­lopp­unnar og kaupi flest mín föt þar. Ég kaupi líka notuð föt þegar ég fer erlendis. Sem betur fer telst það varla frétt­næmt í dag að kaupa sér hluti sem ekki eru nýir, en ég held að við þurfum öll að taka höndum saman sem neyt­endur að huga að hvaða áhrif okkar inn­kaup hafa á umhverfið, hvort sem það eru föt, bílar eða matur.  


Mælir þú með skemmti­legu les­efni eða hlað­vörpum? 

Ég elska að hlusta á skemmti­leg hlað­vörp sem fjalla um sparnað og fjár­mál og hefur “Leitin að pen­ing­unum” verið í sér­stöku upp­á­haldi hjá mér. Eins þykir mér gaman að hlusta á The Minima­lists Podcast. Það eru einnig til margar góðar bækur en ég mæli sér­stak­lega með bók­inni “Atomic habits” fyrir þá sem vilja taka skrefið í átt að betri venjum, til dæmis í fjár­málum. 

Dagbjört hefur síð­ast­liðin ár verið að þróa og hanna bók fyrir fólk til að halda utan um útgjöldin sín með skipu­lögðum hætti og ná yfir­sýn yfir fjár­málin. Bókin er vænt­an­leg í versl­anir í næsta mán­uði og  ber heitið „ Fundið fé, njóttu ferða­lags­ins“  Í bók­ina skráir fólk niður útgjöld sín viku fyrir viku og skoðar sam­hliða hvort eyðsla þeirra end­ur­spegli sínar áherslur og fjár­hags­leg mark­mið.  Hugsunin er að fá þá sem nota bók­ina með í fjár­hags­legt ferða­lag þar sem að það lærir inn á hvað skiptir það mestu máli, hvernig er best að for­gangs­raða í hvað það vill eyða pen­ing­unum sínum með því að setj­ast niður með útgjöldum sínum í ein­ungis fimm mín­útur á dag.    

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi