Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Þegar ég las dagbækurnar sá ég svart á hvítu hvað samband hennar og JBH var sjúkt“

„Þegar ég las dagbækurnar sá ég svart á hvítu hvað samband hennar og JBH var sjúkt“
Mæðgurnar Þóra Hreins­dóttir og Val­gerður Þor­steins­dóttir.

Val­gerður Þor­steins­dóttir, dóttir Þóru Hreins­dóttur, sem afhenti Stund­inni dag­bók móður sinnar, ritar færslu sem ber yfir­skrift­ina:

Mín skoðun (og von­andi mitt síð­asta svar um þetta mál).

Hefst svona:

„Ég hef misst marga nákomna og farið í fleiri jarð­ar­farir en ég get talið. Samt sem áður hef ég bara skrifað eina minn­ing­ar­grein. Ég skrif­aði hana til besta vinar míns, sem fór án þess að ég fengi að kveðja hann. Hann var aðeins 25 ára gam­all.“

Hún bætir þessu við:

„Ég elskaði Þóru Hreins­dóttur, móður mína, og geri enn. Á meðan hún lifði vissi hún að hún átti mig að. Mamma gat leitað til mín með hvað sem er. Frá því að ég man eftir mér, fannst mér það vera hlut­verk mitt að passa upp á hana. Við vorum nánar alla tíð, þó að við hitt­umst stundum sjaldan. Við áttum kald­hæðin og dökkan einka­húmor, sem fáir aðrir skildu, og við hlógum mikið saman. Ég gekk líka í gegnum tíma­bil þar sem ég var sár og reið út í hana fyrir margt sem ég skildi ekki. Ég ræddi það við hana og dró ekk­ert undan. Stundum voru þetta erfið sam­töl.“

Hún segir að þrátt fyrir allt þá „hætti ég aldrei að elska mömmu og standa með henni. Það tók mig tíma að sætta mig við að alkó­hól­ismi er sjúk­dómur sem margir ná ekki að sigr­ast á og að aðstand­endur gætu oft lítið sem ekk­ert gert til að breyta því. Síðustu árin í lífi mömmu var ég, sem betur fer, farin að skilja það og gremjan fékk að víkja fyrir umburða­lindi, skýr­ari mörkum og dýpri skiln­ingi.“

Val­gerður rifjar upp að „þegar leiðir skildu 2016 vorum við sáttar við hvor aðra. Mér fannst ég ekki eiga neitt ósagt, við hana, sem ég þyrfti að skrifa í minn­ing­ar­grein.

Árið 2010 klippti ég á öll sam­skipti við Soffíu, systur mína. Ég hef aldrei séð eftir því, enda ekki van­hugsuð ákvörðun. Ég hafði nóg af ástæðum, en fáar til að halda áfram að hafa hana í mínu lífi. Ég hefði lík­leg­ast átt loka á hana fyrr, en ég var (og er) með­virk og átti bara eina alsystur. Ég gaf henni ótal sénsa, en ein­hvern­tím­ann fá allir nóg. Soffía má hafa sínar skoð­anir og viðra þær eins og hún vill. Ef henni finnst hún hafi verið góð dóttir af því að hún skrif­aði minn­ing­ar­grein (ef hún gerði það… Ekki eitt­hvað sem ég hefði áhuga á að lesa) þá er það frá­bært mál, fyrir hana a.m.k…“

Val­gerður segir að „ég ákvað ekki að birta dag­bækur mömmu til að gera ein­hverjum karli (JBH) sem ég þekki ekki neitt, ein­hvern miska. Ekki heldur til að hjálpa konu, sem ég þekki ekki, með mála­ferli sem ég veit lítið um, ekki til að ráð­ast á Alþýðu­banda­lagið, Sam­fylk­ing­una eða starfs­feril Jóns Baldvins Hanni­bals­sonar almennt, ekki til að fá athygli, ekki til að skemma vin­áttu JBh og BS við pabba og kon­una hans, ekki af því að ég er vond, heimsk og/eða geð­sjúk… Ég birti dag­bæk­urnar alls ekki til að smána ímynd móður minnar, enda sá ég ekk­ert í dag­bók­ar­skrifum hennar sem gat verið henni til skammar (fyrir utan nokkrar staf­setn­ing­ar­villur sem voru jafn slæmar og mínar, þegar ég var á sama aldri).“

Bætir við:

„Skömmin var ekki hennar!! Þegar ég las dag­bækur og færslur á miðum frá þessum tíma, í lífi mömmu, sá ég svart á hvítu hvað sam­band hennar og JBH var sjúkt. Ég sá stelpu, á aldur við son minn, sem var búin að upp­lifa miklar breyt­ingar og var að mörgu leiti á gatna­mótum í líf­inu. Ungling með brotna sjálfs­mynd, sem leið ekki vel og kenn­ara, virtan af þjóð­fé­lag­inu, nýta sér sak­leysi hennar van­líðan og örvinglan. Ég sá hvernig hún minnk­aði og brotn­aði þegar leið á lest­ur­inn. Kenn­ar­inn sem ætl­aði að hjálpa henni, þegar hún þurfti á hjálp að halda, vildi ekki bara að hún gæti náð lands­prófi, af því að hann var kenn­ar­inn hennar… Hann vildi stinga af með henni og lík­lega eiga hana, éta hana, nota hana o.sfrv., eða ekki… Hvað átti hann að gera við þessi löngu læri??

Mér finnst hann hefði átt að láta þau í friði. Það er mín skoðun!! Mér fannst hrein­lega rangt að sitja á þessu og segja ekki neitt við neinn um málið.“

Val­gerður nefnir að „eins og aðrir hef ég séð, í fjöl­miðlum og sam­fé­lags­miðlum, hóp­inn af fólki sem hefur ásakað Jón Baldvin um kyn­ferð­is­legar árásir, af ýmsum toga, stækka og stækka und­an­farin ára­tug amk. Heyrt ein­hvern orðróm lengur. Ég hef líka séð hvernig JBH og BS hafa þaggað niður þessar frá­sagnir og hvernig þau spila sig sem fórn­ar­lömb lyga­sjúkra kvenna með rang­hug­myndir og/eða ill­gjarnt eðli.

Sann­leik­ur­inn skiptir mig miklu máli. Ég þoli ekki lygar og fátt fer eins í taug­arnar á mér og mis­notkun, vald­níðsla og almenn ósann­girni. Þeir sem hafa haft mig á Facebook í nokkur ár ættu að vita það. Ég er núver­andi eig­andi nokk­urra kassa með gömlum úrklippum, ljós­myndum, bréfum, dag­bókum, teikn­ingum o.fl. þ.h. Ég ræð hvað ég geri við mitt dót og ég ræð hvernig ég bregst við umhverfi mínu, upp­lýs­ingum, sam­skiptum o.s.frv.“

Val­gerður ljær máls á því að „mamma, sem ung­lingur, hafði ekk­ert að skamm­ast sín fyrir. Ég skamm­ast mín ekki fyrir þá skoðun mína eða að hafa „grafið upp drauga for­tíðar“ í óþökk fjöl­skyld­unnar. Mér fannst grein Stund­ar­innar snilld­ar­lega vel unnin! Það var talað við nokkur vitni frá þessum tíma og ekkil mömmu, sem allt stað­festi það sem stóð í skrifum mömmu.

Mæt­ing­ar­kladdar úr Haga­skóla stað­festu margar dag­setn­ingar úr dag­bók­inni. Viðtal við JBH úr Haga­skóla­blað­inu kom lít­il­lega við sögu, ásamt setn­ingum úr hans eigin sjálfsævi­sögu og síð­ast en ekki síst var tveggja blað­síðna hand­skrifað bréf Jóns Baldvins Hanni­bals­sonar birt í fullri lengd! Frábær heim­ild­ar­vinna!! Sýnir, svo sann­ar­lega, að þrátt fyrir að margir kunni vel við JBH og BS, hefur margt sem frá þeim hefur komið varð­andi meint fórn­ar­lömb Jóns Baldvins, að öllum lík­indum, verið total bs (bullshit) upp­spuni og lygar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi