Mygla hefur hefur fundist í 24 grunn- og leikskólum á höfuðborgarsvæðinu. Af þessum 24 eru 14 leikskólar og 10 grunnskólar; einnig hafa fimm skólar neyðst til að flytja starfsemina annað og ekki er langt í að tveir skólar bætist þar við.
Varðandi fjölda þá eru flest myglutilfellin í Laugardalnum, eða sjö.
Slíkar skemmdir er til dæmis að finna í fimm skólum í Vesturbæ; fjórum í Háleitis- og Bústaðahverfi og fjórum í Árbæ og Norðlingaholti; þrír skólar í miðborginni og einn í Breiðholti.
Þessar upplýsingar koma úr samantekt frá umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar um staðfest myglu-tilfelli í grunn- og leikskólum borgarinnar.





















Athugasemdir