Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ragna á Laugabóli jarðsungin: Ljósið í Djúpinu er slokknað

Ragna á Laugabóli jarðsungin: Ljósið í Djúpinu er slokknað
Ragna Aðal­steins­dóttir á Lauga­bóli. Mynd: Róbert Reynisson.

Hún Ragna Aðal­steins­dóttir á Lauga­bóli er öll eftir langa, ævi og á stundum erf­iða. Hún varð 97 ára og eflaust komin með nóg af ver­ald­legu vaf­stri. Síðast hitti ég hana á dval­ar­heim­il­inu Eyri á Ísafirði í sumar sem leið. Hún var skýr, þrátt fyrir háan aldur. Eins og venju­lega var hún að bíða eftir að kom­ast heim í sveit­ina sína. Þangað leit­aði hug­ur­inn alltaf, heim í dal­inn þar sem hún hafði lifað sínar bestur stundir en jafn­framt gengið í gegnum það svart­nætti sem fylgir því að missa börn, barna­börn og aðra ást­vini.

Ragna var vinur vina sinna en gríð­ar­lega föst fyrir þegar henni þótti emb­ætt­is­menn eða ráða­menn brjóta gegn almennum borg­urum. Þá var Rögnu að mæta.

Við kynnt­umst fyrst í gegnum skóla­systur mína, dóttur hennar, Bellu Vest­fjörð. Þá náðum við ekk­ert sér­stak­lega vel saman. Kyn­slóða­bilið þvæld­ist fyrir. En síðan þró­uð­ust mál þannig að ég fór að koma reglu­lega við hjá henni á Lauga­bóli og við urðum perlu­vinir. Það skorti aldrei umræðu­efnið í eld­hús­inu á Lauga­bóli. Ragna var fróð og víð­lesin með ein­beittar skoð­anir á heims­mál­unum jafnt og því sem gerð­ist á Íslandi.

Á Lauga­bóli var gjarnan margt í heim­ili eftir að börnin hennar voru farin að heiman. Þar átti óreglu­fólk skjól frá hörðum heimi vímu­efn­anna, svo lengi sem þau féllust á að vera alls­gáð og leggja Rögnu lið við búskap­inn. Fjöl­margir ein­stak­lingar leit­uðu í ljósið í Djúpinu til að ná áttum og byggja sig upp aftur. Ragna rak í raun með­ferð­ar­stofnun en án allra styrkja. Mann­úð­ar­störf hennar voru unnin af hjarta­gæsku og örlæti. Hún átti nóg og gaf með sér.

Sorgin var sjaldn­ast langt undan á Lauga­bóli. Ragna eign­að­ist þrjú börn, Garðar Smára, Gunnar Bjarka og Aðal­heiði Bellu sem öll báru ætt­ar­nafnið Vest­fjörð. Hún kom börnum sínum öllum til manns. En svo dundi áfallið yfir. Bjarki starf­aði sem lög­reglu­þjónn í Bol­ung­ar­vík. Hann var að sinna starfi sínu 8. mars 1989 á Óshlíð þegar snjó­flóð hreif hann með sér á haf út. Lík hans fannst aldrei. Yngsti sonur Rögnu varð aðeins 25 ára þegar líf hans var á enda. Harmur Rögnu var gríð­ar­legur en þetta varð aðeins upp­hafið að rauna­sögu hennar.

Sex árum eftir frá­fall Bjarka féll snjó­flóðið ægi­lega á Súðavík með skelfi­legum afleið­ingum. Á meðal þeirra sem fór­ust var Bella, dóttir Rögnu, og Petrea dóttir hennar. Bella náði ekki að verða fer­tug og litla stúlkan var aðeins 13 ára. Svart­nættið sem fylgdi því að missa annað barn sitt og barna­barn var ægi­legt. Bóndinn á Lauga­bóli þurfti á öllu sínu að halda til að missa ekki alveg lífs­vilj­ann í þeim ömur­lega veru­leika. Það liðu aðeins fimm ár þar til komið var að næsta áfalli í lífi Rögnu og hennar fólks. Ragnar, sonur Bjarka, fórst í bílslysi í Súðavík árið 2001, aðeins 18 ára.

Ragna stóð upp­rétt þrátt fyrir áföll sem eru af þeirri stærð­argráðu að eng­inn ætti að þurfa að ganga í gegnum slíkt. Þeir tímar komu að hún var við það að gef­ast upp og hún leit­aði sér hjálpar á geð­deild. Hún var öld­ungis ófeimin að ræða þau mál og sagði gestum og gang­andi að hún væri að koma af geð­deild. Flestir brugð­ust við með þögn­inni og ein­hver vildi sussa á hana. Ragna var þá skjót til svars og spurði hvort hún mætti frekar tala um kvef eða fót­brot. Hennar skiln­ingur var sá að geð­sjúk­dómar væru hvorki merki­legri né ómerki­legri en aðrir sjúk­dómar og opin­ská umræða væri til góðs. Þannig vann hún gegn sorg­inni og sótti sér hjálp þegar neyðin varð stór.

Ragna var bóndi fram í fing­ur­góma. Hún rak bú sitt með sóma og skil­aði börnum sínum inn í full­orð­ins­árin. Þau fengu öll gott vega­nesti frá móður sinni. Ragna á Lauga­bóli naut virð­ingar fyrir dugnað sinn og þá snyrti­mennsku sem ein­kenndi búið hennar. Stíf­bón­aðar drátt­ar­vélar á hlað­inu og öllu snyrti­lega við komið á Lauga­bóli. Við bæ hennar var svo skrúð­garður sem hún kenndi við Bjarka heit­inn, son sinn.

Eftir snjó­flóðin í Súðavík var Ragna gagn­rýnin á frammi­stöðu yfir­valda sem sváfu af sér þá ógn sem vofði yfir pláss­inu þegar snjó­þyngsli voru og hengj­urnar í fjall­inu biðu þess að brjót­ast af stað af helj­ar­afli. Ragna taldi að mörgum manns­lífum, þeirra á meðal Bellu og Petreu, hefði verið fórnað með kæru­leysi. Á þeim tíma tók ég við­tal við Rögnu fyrir DV. Sú hug­mynd kom upp á þeim tíma að ég myndi skrifa um hana bók. Hug­myndin varð að veru­leika árið 2006 þegar örlaga­saga Rögnu, Ljósið í Djúpinu, kom út. Bókin fékk gríð­ar­lega góðar mót­tökur og fór í met­sölu. Ragna sagði þar sögu sína af ein­lægni og dró fátt undan. Sam­starfið við hana var í senn ljúft og gef­andi. Ég ók reglu­lega norður í Djúp til að taka niður sögur frá mögn­uðu lífs­hlaupi konu sem lifði svo sann­ar­lega sorg og gleði á þeim 75 árum lífs­hlaup hennar spann­aði.

Eftir að bókin kom út héldum við vin­skap. Ég hringdi reglu­lega í Rögnu og kom við hjá henni ásamt fjöl­skyld­unni þegar færi gafst. Það voru ævin­lega fagn­að­ar­fundir og gleði­stundir.

Eftir því sem árin færð­ust yfir minnk­aði þrek Rögnu á Lauga­bóli. Þannig er auð­vitað lífs­ins saga. Hún fékk inni á hjúkr­un­ar­heim­il­inu Eyri á Ísafirði fyrir nokkrum árum. Þar naut hún góðs atlætis en henni leidd­ist samt. Það átti illa við hana að sitja aðgerð­ar­laus. Ég heim­sótti hana gjarnan. Hún var ævin­lega til­búin að fara heim í dal­inn sinn og spurði gjarnan hvort ég væri á leið­inni inneftir eða vissi af ferð. Framan af sat hún stundum full­klædd í stólnum sínum með hand­tösku sér við hlið, til­búin að fara heim. Hún þráði það öðru fremur að kom­ast í dal­inn sinn. En þótt and­inn væri reiðu­bú­inn var lík­am­inn ekki lengur eins og áður var. Þrekið var farið. Hún var ekki lengur fær um að vera ein á Lauga­bóli.

Seinasta heim­sóknin mín til Rögnu var í sumar. Hún var að vanda ánægð með end­ur­fund­ina en ég fann að það var af henni dregið. Hún var ekki lengur í káp­unni sinni með tösk­una sér við hlið að spyrja eftir fari. En hún bar það með sér að hún var á förum. Lífs­vilj­inn sem hún hafði við­haldið alla tíð var greini­lega þverr­andi. Í sein­asta við­tal­inu sem ég tók við hana sagð­ist hún vilja verða hund­rað ára. En hún náði því ekki. Það vant­aði rúm tvö ár uppá og þetta var orðið gott.

Í þessum mán­uði ætl­aði ég að heim­sækja hana. Þá var ég of seinn. Mér var sagt að dauða­stríð hennar væri hafið. Við hlið hennar þegar hún kvaddi var eina eft­ir­lif­andi barn hennar, Garðar Smári. Hinum megin hefur hún von­andi hitt fyrir börnin og barna­börnin sem hurfu alltof snemma úr þess­ari jarð­vist.

Því fylgir ákveð­inn tóm­leiki að ná ekki lengur að hitta sóma­kon­una Rögnu og spjalla við hana um rétt­læti jafnt og rang­læti. Lauga­dal­ur­inn er ekki samur eftir brott­hvarf hennar. Skarð hennar verður vand­fyllt. En minn­ing hennar lifir. Ragna var ein af hetjum Íslands sem gaf ótal mörgum miklu meira en hægt var að ætl­ast til og hjálp­aði þeim föllnu að rísa á fætur, án þess að krefj­ast neins í stað­inn. Ég þakka dýr­mæta sam­fylgd og orna mér við minn­ingar frá vin­skap sem alla tíð stóð óhagg­aður.

Útför Rögnu fer fram frá Ísa­fjarð­ar­kirkju kl. 11 í dag, föstu­dag. Streymt er frá athöfn­inni á Facebook-síðu Við­burða­stofu Vest­fjarða.

Þessa grein má einnig finna minn­ingar.is á slóð­inni https://minningar.is/account/obituaries/7KgUuBQ8OEod2ZztTnoI/form

Reynir Trausta­son.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi