Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Ég rifja þetta upp fullur af skömm, sektarkennd og jafnvel sjálfsfyrirlitningu“

„Ég rifja þetta upp fullur af skömm, sektarkennd og jafnvel sjálfsfyrirlitningu“
Jakob Smári Magn­ús­son

„Ég ætla að rifja upp atvik sem átti sé stað senni­lega árið 1982. Ég rifja þetta upp fullur af skömm, sekt­ar­kennd og jafn­vel sjálfs­fyr­ir­litn­ingu.“

Svo hefst frá­sögn bassa­leik­ar­ans Jakobs Smára Magn­ús­sonar, sem hefur spilað með hljóm­sveitum svo sem Tappi Tíkarass, Grafík og SSSól, á Facebook. Jakob segir þar frá því þegar hann spil­aði með Sævari Ciesielski á Litla Hrauni fyrir fjórum ára­tugum. Jakob segir sig þá hafa framið stór­glæp, þó flestir myndu varla taka svo sterkt til orða.

Hér fyrir neðan má lesa frá­sögn Jakobs.

Þannig var að hljóm­sveitin Tappi Tík­arrass fór á Litla Hraun til að spila fyrir fang­ana. Allt gott og blessað með það. Þegar við höfðum lokið við að spila okkar sett buðum við föng­unum að taka með okkur smá djamm, því þarna voru nú ein­hverjir sem kunnu á hljóð­færi og hefðu kannski gaman af að spila smá. Sævar Ciesielski var einn þeirra og fékk hann gítar í hönd og við spil­uðum blús. Og þar kemur glæp­ur­inn sem ég framdi innan veggja fang­els­is­ins.

Þannig var að ég not­aði svo­kall­aðan chorus pedal mikið á bass­ann á þessum tíma enda vin­sælll effekt meðal bassa­leik­ara í þá tíð. Mér fannst góð hug­mynd að kveikja í chorusnum þegar talið var í blús­inn og spil­aði því rólegan blús, í G minnir mig, með vað­andi chorus á bass­anum. Algjör­lega smekk­laust og óvið­eig­andi, sér­stak­lega á stað sem þessum þar sem menn eru jú að taka út sína refs­ingu og þurfa ekki frek­ari pynt­ingum að halda.

Ég skil ekki enn þann dag í dag að ég skuli ekki hafa verið stopp­aður af, rif­inn af mér chorusinn og ég jafn­vel lam­inn í haus­inn með pedalnum. Eða bara hrein­lega hent í ein­angrun. Það hefði alla vega ekki átt að hleypa mér út úr fang­els­inu.

Hvað hef ég svo mér til máls­bóta ? Ekkert, nákvæm­lega ekk­ert. Mér finnst ég ekki getað skýlt mér á bak­við aldur. Ekki var ég í ann­ar­legu ástandi. Nei, ég á mér engar máls­bætur. Mér þykir þó rétt að rifja þetta upp til að losa mig við þetta og biðja alla sem á hlýddu afsök­unar. Þetta ger­ist ekki aftur.

Fyrir þá sem ekki vita hvað chorus er bendi ég til dæmis á hljóm­sveit­ina Cure eða með­fylgj­andi lag með Nirvana.

Chorus er töff, en ekki í blús

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi