Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Hanna Rún keppti með sprungur í fætinum: „Í raun verra heldur en beinbrot“

Hanna Rún keppti með sprungur í fætinum: „Í raun verra heldur en beinbrot“
Hanna Rún Mynd: Kazuma Takigawa – Myndin hefur verið stífð.

Hún hefur sigrað hverja danskeppn­ina af annarri í mörg ár og dansar nú í gegnum
lífið með dans­fé­laga sínum og eig­in­manni. Hanna Rún Bazev Óla­dóttir talar um
æsk­una, dans­inn, ein­eltið og kjafta­sög­urnar sem tengj­ast oft afbrýði­semi, ást­ina,
tíma­bundu löm­un­ina í öðrum fæt­inum, gigt­ina og Rússland.

Hún ólst upp í Danmörku til tveggja ára ald­urs; landi meist­ara ljóta and­ar­ung­ans, litlu haf­meyj­unnar, prinsessunnar á baun­inni og litlu stúlkunnar með eld­spýt­urnar. Og jú, líka landi Hans klaufa. Stúlkan bjó síðar í Kópavogi og enn síðar Garðabæ.

Hver er fyrsta minn­ing þín? „Ætli það sé ekki þegar ég týnd­ist. Ég hef kannski verið þriggja til fjög­urra ára. Ég ætl­aði að sýna vin­konu minni nýja húsið sem mamma og pabbi voru að byggja í Kópavogi. Nýja húsið var ekk­ert langt frá þar sem við bjuggum en við fórum aðeins of langt og týnd­umst. Það var komið myrkur og eftir mikla göngu sá ég hóp af fólki, þar var mamma vin­konu minnar hágrát­andi, og einnig lög­reglu­bíll. Ég man vel eftir því. Ég var mik­ill prakk­ari og for­eldrar mínir töl­uðu um hvernig ég yrði eig­in­lega þegar ég yrði ung­lingur. Svo sner­ist þetta við og ég varð algjör eng­ill. Ég týnd­ist oft og mikið var leitað að mér. Ég var alltaf að gera eitt­hvað sem ég mátti ekki.
Maðurinn minn var eins; mamma hans sagði mér það. En sagt er að þegar tveir mínusar mæt­ist komi plús. Börnin okkar eru ótrú­lega róleg og góð.“ Svo liðu árin og stúlkan sem týnd­ist átti sína drauma. „Það var bara tvennt: Dansari og gull­smiður. Ég var alveg ákveðin í því að ég ætl­aði að verða gull­smiður; ég hef reyndar ekk­ert lokað á það og held því alveg opnu. Ég ætl­aði sem sagt að verða gull­smiður eins og pabbi. Ég ætl­aði mér líka að verða best í dansi og verða heims­meist­ari; ég get ekki hætt fyrr en ég næ því,“ segir Hanna Rún sem vinnur hálfan dag­inn hjá Gull­smiðju Óla, fjöl­skyldu­fyr­ir­tæk­inu. Eftir hádegi æfir hún síðan dans með eig­in­mann­inum. Hana dreymir enn um að verða heims­meist­ari. Íslands­meist­aratitl­arnir eru orðnir um 30 og svo eru það hinir og þessir titlar fyrir utan þá en hún hefur sigrað mörg önnur mót hér­lendis og erlendis.

Sprungur

Hanna Rún Bazev Óla­dóttir var fjög­urra ára þegar hún fór í dans­skóla. „Mamma og pabbi fóru með mig í Dans­skóla Sigurðar Hákon­ar­sonar. Þegar ég hafði stigið þar inn varð ekki aftur snúið. Ég man vel eftir þessu. Ég byrj­aði að dansa við frænda minn og þjálf­ar­arnir töl­uðu fljót­lega um við mömmu og pabba að það væri auka­taktur í mér þrátt fyrir hvað ég væri lítil; hvað ég væri snögg að ná spor­unum og væri takt­viss. Ég var mjög ung þegar ég fór að fara í einka­tíma. Svo flutti frændi minn út á land og ég varð herra­laus en þá var ég svo heppin að það var laus strákur sem var mjög efni­legur. Við vorum pöruð strax saman og kepptum síðan á okkar fyrsta móti árið 1997 þegar ég var að verða sjö ára og urðum Íslands­meist­arar. Og við unnum svo nán­ast allar keppnir eftir það.“
Dans­fé­lag­arnir voru snemma settir upp í næsta flokk þannig að þau æfðu með eldri krökkum. „Þetta voru allt ung­lingar þannig að maður var alltaf að „keppa“ við þessa eldri krakka á æfingum sem var ótrú­lega gott fyrir okkur. Við byrj­uðum strax mjög ung að vera í einka­tímum hjá erlendum þjálf­urum, en á þessum tíma voru okkar aðal­þjálf­arar frá Þýska­landi. Þeir skipt­ust nokkrir á að koma, ballroom- og lat­ín­þjálf­arar. Þegar þeir komu tókum við alltaf 10-12 einka­tíma frá föstu­degi til sunnu­dags. Eitt árið þegar við vorum búin að plana afmæl­is­boðið mitt man ég að það stang­að­ist akkúrat á við þegar einn þjálf­ar­inn kom, þannig að ég varð að fara úr veisl­unni minni. Krakk­arnir horfðu bara á spólu á meðan ég skrapp í einka­tím­ann og svo kom ég aftur í afmælið strax á eftir. Ég skildi þetta mjög vel þótt ég hefði alveg viljað sleppa þessum tíma bara einu sinni en ég vildi líka verða best og vissi að þessir þjálf­arar komu til lands­ins til þess að hjálpa okkur að verða betri.“
Hún mátti ekki fara í skíða­ferða­lög þar sem hún gæti dottið og meitt sig. „Það þurfti bara að pakka mér í bóm­ull, sér­stak­lega rétt fyrir keppnir. Ég man að þegar það var mik­ill snjór mátti ég ekki fara út í frí­mín­útur; kenn­ar­arnir voru hræddir um að ég gæti runnið eða fengið snjó­bolta í and­litið. Þannig að á vet­urna í mik­illi hálku og snjó var ég inni í frí­mín­útum. Það var bara skipun frá þjálf­ar­anum. Ég mátti þá alltaf velja eina stelpu til að vera líka inni með mér; það var voða gaman því þá var ég alltaf svo vin­sæl.“

„Ég keppti með sprungurnar í fætinum.“

Hún dans­aði og dans­aði. Hún dans­aði svo mikið að það komu sprungur í bein í öðrum fæt­inum þegar hún var 15 ára. „Þetta var álag. Ég var búin að dansa svo mikið, ég hljóp líka mikið úti og annar sköfl­ung­ur­inn var mor­andi í sprungum sem voru komnar einn þriðja inn í beinið. Lækn­ir­inn tal­aði um að þetta væri í raun verra heldur en bein­brot.“ Hönnu Rún var sagt að hún mætti ekki dansa í þrjá mán­uði því ann­ars gæti hún kvatt dans­inn. Hún sagð­ist vera á leið­inni á heims­meist­ara­mót og að hún ætl­aði að fara. Og það gerði hún. „Ég keppti með sprung­urnar í fæt­inum og fékk 40 stiga hita og var ælandi, mögu­lega álag út af öllu saman, en mér gekk samt vel. Ég varð að fara á mótið því ann­ars hefði ég ekki verið sátt. Ég tók svo rúman mánuð í pásu eftir mótið.“

Viðtalið við Hönnu Rún má lesa í heild sinni í vef­út­gáfu nýjasta tíma­rits Mann­lífar, hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi