Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Hanna Rún varð fyrir miklu einelti: „Mér fannst ég vera skilin útundan og skildi þetta ekki alveg“

Hanna Rún varð fyrir miklu einelti: „Mér fannst ég vera skilin útundan og skildi þetta ekki alveg“
Hanna Rún Mynd: Kazuma Takigawa – Myndin hefur verið stífð.

Hún hefur sigrað hverja danskeppn­ina af annarri í mörg ár og dansar nú í gegnum
lífið með dans­fé­laga sínum og eig­in­manni. Hanna Rún Bazev Óla­dóttir talar um
æsk­una, dans­inn, ein­eltið og kjafta­sög­urnar sem tengj­ast oft afbrýði­semi, ást­ina,
tíma­bundu löm­un­ina í öðrum fæt­inum, gigt­ina og Rússland. Hér er brot úr við­tal­inu.

Einelti

Hanna Rún talar um hvað þurfi til að vera góður dans­ari. „Það þarf mik­inn metnað og maður þarf nátt­úru­lega að vera til­bú­inn til að fórna ýmsu. For­eldrar mínir voru dug­legir að tala um það við mig að ef maður ætl­aði að verða bestur væri ekk­ert sem héti að reykja eða drekka og eitt­hvað djamm. Ég var alveg til í það og skildi það vel. Þetta er líka mikið haus­inn; þegar maður er á toppnum, alveg sama í hverju það er, fylgir því mikið bak­tal og afbrýði­semi og það brýtur fólk oft niður og það gefst upp. Ég var mjög ung þegar mömmur ann­arra stelpna í dans­inum fóru að tala illa um mig og ég sá skrifað leið­in­lega um mig. Og oft sá maður og heyrði eitt­hvað frá fólki sem maður vissi ekki einu sinni hvert var. Þegar kenn­ar­arnir klipptu út greinar um mig og hengdu á veggi í skóla­stof­unni voru settar teikni­bólur yfir augun á mér á mynd­unum. Það var auð­vitað ekk­ert skemmti­legt að sjá það, sér­stak­lega þegar ég var svona ung.“

Hún segir að ein­hvern tím­ann hafi öllum stelp­unum í bekknum verið boðið í afmæli – nema henni. Síðan var sett sú regla að annað hvort yrði öllum stelp­unum eða þá öllum krökk­unum boðið. „Mér fannst ég vera skilin útundan og skildi þetta ekki alveg. En þetta var afbrýði­semi. Mamma og pabbi hafa alltaf verið og eru enn 100% með mér í þessu og þau studdu mig mikið, töl­uðu við mig og útskýrðu fyrir mér ef ég skildi ekki hvers vegna fólk lét svona. Ég hafði ekk­ert gert því. Ég skildi ekki af hverju það var svona leið­in­legt við mig. Þetta var afbrýði­semi. Ég átti vin­konu sem var mjög góð í fim­leikum og ég fann bara til stolts gagn­vart henni. Mér fannst kúl að eiga hana sem vin­konu. Þannig að ég skildi ekki af hverju fólk vildi vera leið­in­legt við mig.“
Hún nefnir fleiri dæmi. Það var reynt að hrinda henni og meiða svo hún gæti ekki keppt í dansi. Eineltið fólst þó mest í úti­lokun. „Ég var mikið ein á ung­lings­ár­unum og þegar við fluttum í Garðabæ voru komnar fullt af sögum um mig svo sem að ég væri að deita gull­smið­inn í Gull­smiðju Óla og að hann gæfi mér skart­gripi. Spáði eng­inn í að ég er Óla­dóttir? Það voru alltaf ein­hverjar svona lyga­sögur. Ég sagði oft við mömmu og pabba: „Vitið þið hver er nýjasta sagan?“ Svo nennti ég ekki að spá í þetta.“

Hvaða áhrif hafði þetta á Hönnu Rún? „Ég var alltaf svo dug­leg að tala við mömmu og pabba og þau sögðu að ég ætti að láta þetta fara inn um annað eyrað og út um hitt; ég ætti ekki að spá í þetta vegna þess að þetta fólk væri að reyna að skemma fyrir mér. Þannig að ég nýtti þetta frekar sem auka bensín á tank­inn hjá mér: Ég ætl­aði ekki að sýna þessu fólki að þetta hefði áhrif á mig. Ég var mikið ein heima og var sjálfri mér næg og er enn í dag; ég orti mikið ljóð, spil­aði á píanó, söng og mál­aði og teikn­aði.

Þar sem ég var í dans­inum not­aði ég mikið brúnku­krem og var mikið förðuð og fólk dæmdi mig út frá því og hélt að ég væri svaka góð með mig, snobbuð, drykki og reykti. Ég hafði aldrei drukkið eða reykt og þegar fólk hélt að ég væri að djamma og drekka var ég í raun bara heima að spila á píanó eða mála á meðan aðrir voru að djamma. Þannig að fólk vissi ekki neitt. Ég vildi verða best í dans­inum og sökkti mér í hann. For­eldrar mínir útbjuggu spegla­sal heima þar sem ég gat dansað og svo lá ég yfir spólum og upp­tökum frá einka­tímum sem voru teknir upp og skoð­aði hvað ég gæti lagað fyrir næstu æfingu.“

Viðtalið við Hönnu Rún má lesa í heild sinni í vef­út­gáfu nýjasta tíma­rits Mann­lífar, hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi