Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Margir báðu Hönnu Rún afsökunar á eineltinu: „Ég er löngu hætt að taka inn á mig svona baktal“

Margir báðu Hönnu Rún afsökunar á eineltinu: „Ég er löngu hætt að taka inn á mig svona baktal“
Hanna Rún Mynd: Kazuma Takigawa – Myndin hefur verið stífð.

Hún hefur sigrað hverja danskeppn­ina af annarri í mörg ár og dansar nú í gegnum
lífið með dans­fé­laga sínum og eig­in­manni. Hanna Rún Bazev Óla­dóttir talar um
æsk­una, dans­inn, ein­eltið og kjafta­sög­urnar sem tengj­ast oft afbrýði­semi, ást­ina,
tíma­bundu löm­un­ina í öðrum fæt­inum, gigt­ina og Rússland. Hér er brot úr við­tal­inu.

„Þá hrúg­uð­ust inn heilu rit­gerð­irnar frá alls konar fólki sem ég þekki ekki neitt sem vildi bara biðj­ast fyr­ir­gefn­ingar.“

Hanna Rún segir að á full­orð­ins­aldri hafi hún fengið fullt af skila­boðum frá fólki og einnig skila­boð frá gömlum bekkj­ar­fé­lögum. Gömul bekkj­ar­systir fór að gráta og bað hana afsök­unar fyrir að hafa tekið þátt í ein­elt­inu og sagði að þetta hefði truflað sig lengi. „Hún sagði að hana hefði langað svo mikið í alla þessa kjóla og að vera svona flott og svo fékk ég svo mikla athygli í blöð­unum. Hún sagð­ist geta sagt það núna en hún hafði verið að deyja úr afbrýði­semi og lang­aði til að vera ég. Ég sagði að þetta væri ekk­ert mál og fannst bara ynd­is­legt að hún hafi þorað að segja mér frá þessu og kunni virki­lega að meta það. Svo eftir að ég opn­aði Instagram-reikn­ing­inn minn hrúg­uð­ust inn heilu rit­gerð­irnar frá alls konar fólki sem ég þekki ekki neitt sem vildi bara biðj­ast fyr­ir­gefn­ingar. Á Instagram­inu mínu sér fólk mig meira bara eins og ég er og sér að ég er bara frekar venju­leg. Fólk er oft mjög fljótt að dæma eftir útliti eða eftir ein­hverju sem það hefur heyrt. Ég fékk til dæmis skila­boð frá mann­eskju sem skrif­aði að henni væri sama hvort ég læsi þetta eða ekki en hún þyrfti að gera þetta fyrir sig af því að henni hafi liðið illa eftir að vera búin að fylgj­ast með Instagram-story hjá mér í ein­hvern tíma, og væri farið að þykja vænt um mig, og fyrir löngu síðan hafi hún tekið þátt ljótri umræðu um mig sem hún vissi að væri ekki sönn og að hún væri búin að sjá að ég er góð mann­eskja og liði illa yfir þessu og vildi bara losa sig við þetta. Ég þakk­aði henni bara kær­lega fyrir og skrif­aði að þetta væri ekk­ert mál. Fólk gerir svo sem alveg mis­tök og ég var mjög ánægð að fá þessi skila­boð; mér leið vel að lesa þau og henni leið vel. Ég er löngu hætt að taka inn á mig svona bak­tal eða ein­hver ljót komment; maður er kom­inn með nokkuð þykka brynju eftir öll þessi ár.“

Hanna Rún segir að enn sé fólk sem reyni að skemma fyrir henni í dans­inum. „Það hafa komið tímar þar sem ég hugsa með mér hvort það sé þess virði að halda áfram að dansa, og bara hætta þessu. Gefa skít í þetta. En þá minni ég mig á að ég mun ekki láta svona bull „skemma“ eftir alla þessa vinnu í öll þessi ár. Þá er það bara að anda inn og svo út aftur og áfram gakk.“

„Ég fann að það pirraði suma kenn­ara mikið þegar ég fékk leyfi til að fara í æfinga­búðir og keppa.“

Hanna Rún er spurð hvort þetta ein­elti – þessi úti­lokun – hafi haft áhrif á námið. „Ég get ekki sagt að ég hafi verið topp­nem­andi með geggj­aðar ein­kunnir. Ég get verið góð í því sem ég hef gaman að. Ég elskaði til dæmis tungu­mál en ef ég hafði engan áhuga, eins og á landa­fræði, nennti ég ekk­ert mikið að hlusta og teikn­aði frekar myndir af danskjólum í bæk­urnar eða skrif­aði niður punkta um það sem ég ætl­aði að vinna í á æfing­unni þann dag. Ég fann að það pirraði suma kenn­ara mikið þegar ég fékk leyfi til að fara í æfinga­búðir og keppa. Ég gleymi því ekki þegar einn kenn­ari sagði við mig að ég þyrfti að vera í skóla og læra eins og venju­leg mann­eskja. Ég sagð­ist ætla að verða dans­ari og dansa þegar eg yrði stór og vildi ekki fara í mennta­skóla en þá sagði kenn­ar­inn að ég vissi aldrei nema ég myndi lenda fyrir bíl og missa báða fæt­urna og spurði hvað ég myndi gera þá. Ég hafði alveg svörin og sagð­ist þá bara ætla að vinna hjá pabba í Gull­smiðju Óla sem ég geri svo að vísu í dag með dans­inum. Ótrúlegt en satt þá náði ég sam­ræmdu próf­unum og skóla­stjór­inn meira að segja hrós­aði mér fyrir að hafa náð öllu þrátt fyrir að hafa verið á öllum þessum keppn­is­ferða­lögum. Ég missti svo rosa­lega mikið úr en ég var með skóla­bæk­urnar með mér á ferða­lögum.“

Viðtalið við Hönnu Rún má lesa í heild sinni í vef­út­gáfu nýjasta tíma­rits Mann­lífar, hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi