Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Leslie Jordan lést í bílslysi: „Bætti upp skort á sentimetrum með gjafmildi sinni og stórfengleika“

Leslie Jordan lést í bílslysi: „Bætti upp skort á sentimetrum með gjafmildi sinni og stórfengleika“
Leslie Jordan Mynd: Instagram-skjáskot

Leik­ar­inn og grínist­inn Leslie Jordan er lát­inn. Lést hann í gær­morgun í umferða­slysi í Hollywood. Var hann ein­ungis 67 ára gam­all.

„Heim­ur­inn er tölu­vert dekkri staður núna án ástar og ljóss Leslie Jordan. Ekki var hann aðeins hæfi­leika­búnt og yndi að vinna með, heldur veitti hann þjóð­inni til­finn­inga­legan griða­stað á einum erf­ið­ustu tímum hennar,“ skrif­aði blaða­full­trúi leik­ar­ans í yfir­lýs­ingu sem hann sendi á ET. „Hann bætti upp skort á senti­metrum með gjaf­mildi sinni og stór­feng­leika sem sonur, bróðir, lista­maður, grínisti, maki og mann­eskja. Að vita að hann kvaddi þennan heim á toppi bæði fer­ils síns og per­sónu­lega, er eina hugg­unin sem maður hefur í dag.“

Slysið

Jordan var að keyra á mánu­dags­morgun þegar talið er að hann hafi orðið fyrir ein­hvers­konar heilsu­neyð­ar­til­felli og keyrt á hús, sam­kvæmt TMZ, sem sagði fyrst frá and­lát­inu.

Í kjöl­far slyss­ins gaf lög­reglan í Los Angeles svohljóð­andi upp­lýs­ingar til ET: „Við erum með eitt and­lát vegna umferða­slyss sem varð á mánu­dags­morgun um klukkan 9:30, hjá Cahuenga Boulevard og Romaine Street. Full­orð­inn karl­maður var úrskurð­aður lát­inn á vett­vangi.“

Samkvæmt vitni sem ræddi við ET þá sá hann sjúkra­liða reyna að end­ur­lífga Leslie, en það var greini­legt að það var um seinan.

Annað vitni sagð­ist í sam­tali við ET hafa séð Jordan sækja lyf­seðil í apó­tek í Vestur-Hollywood. Sá hann Jordan yfir­gefa apó­tekið hald­andi á tveimur pokum með lyf­seð­il­skyldum lyfjum.

Ferillinn

Árið 2006 vann Jordan Emmy-verð­laun fyrir hlut­verk sitt sem Beverley Leslie í gam­an­þátt­unum Will & Grace. Þá var hann einnig þekktur fyrir hlut­verk sín í þáttum á borð við Boston Legal, Reba, Desperate Houswives, American Horror Story og Call Me Kat.

Þá lék Jordan einnig í myndum á borð við The Help og Sordid Lives. Einnig lék hann í leik­ritum á borð við My Trip Down the Pink Carpet og The Lucky Guy.

Instagram-frægð

Í Covid-far­aldr­inum sló Jordan ræki­lega í gegn með skemmti­legum mynd­böndum sínum sem hann tók upp heima hjá sér og birti á Instagram-reikn­ingi sínum. Nýjasta mynd­bandið er frá síð­asta sunnu­dag, þar sem hann sést syngja við und­ir­leik Danny Myrick.

Enn eitt vitnið sagði ET frá því að hafa rek­ist á Jordan á Starbucks í síð­asta mán­uði. Vitnið sagði leik­ar­anum að Instagram-mynd­böndin hefðu glatt sig mjög og sagði að Jordan hefði ekki getað verið ljúfari og þakk­látur fyrir hrósið. Sagði hann að Jordan hefði verið í góðu skapi og ekki hefði verið að sjá að heilsa hans væri slæm.

Á Instagram-reikn­ingi leik­ar­ans birt­ist ljós­mynd af honum og eft­ir­far­andi texti, þegar and­látið hafði verið til­kynnt í fjöl­miðlum:

„Ástin og ljósið sem Leslie dreifði mun aldrei hverfa og við bjóðum ykkur að deila minn­ingum um þá ást og hugga hvort annað á þessum erf­iða tíma. Næstu daga munum við koma með sýn­is­horfn af því verk­efni sem Leslie var mjög stoltur af og var spenntur að deila með heim­inum.“

Blessuð sé minn­ing Leslie Jordan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Heimur

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Skoska lög­reglan rann­sakar tengsl Andrews við Epstein

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Heimur

Beit lög­reglu­hund í háls­inn eftir þriggja tíma flótta