Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Af sleikum og slúðri á fréttasíðum

Af sleikum og slúðri á fréttasíðum

Í síð­asta blaði Mannlífs skrif­aði sam­starfs­maður minn, vinur minn að sunnan eins og ég kalla hann, fjöl­miðlapistil sem hann nefndi Er þetta frétt? Fjallaði pistill­inn fjall­aði um þá hvim­leiðu spurn­ingu sem oft má sjá í athuga­semdum við fréttum á net­inu, Er þetta frétt? en þá er spyrj­and­inn að hneiksl­ast á frétta­vali blaða­mann­anna en oftar en ekki er um að ræða nauða­ó­merki­legar slúð­ur­fréttir.

Í fyrra­dag birt­ist sá pist­ill á vef Mannlífs og gat eig­in­lega ekki komið á betri tíma. Skrifuð var frétt á vefnum okkar um fátækan öryrkja sem eitt sinn dvaldi í Breiðu­vík þar sem hann varð fyrir hrika­legu harð­ræði og við­bjóði. Hundur manns­ins er veikur og þarf að fara í aðgerð en mað­ur­inn hefur ekki efni á því. Tók mað­ur­inn upp á því að selja hluti úr inn­bú­inu og aðra lausa­muni til að eiga fyrir aðgerð­inni. Fréttin vakti tölu­verða athygli en tæp­lega 8.000 flett­ingar mæld­ust á henni sem telst mjög fínt, ekk­ert stór­kost­legt en ansi fínt. Á sama tíma og fréttin birt­ist, leit önnur frétt dags­ins ljós hjá Mannlíf. Snéri hún að ljós­mynd sem náð­ist af pari sem hefur verið mikið í fréttum á árinu, versla saman í Cosco. Þegar frétt­inni var deilt á Facebook-síðu Mannlífs hrúg­uð­ust inn athuga­semdir þar sem fólk keppt­ist um að kvarta yfir frétt­inni og hneiksl­ast yfir því að þetta teld­ist almennt frétt­næmt. Þegar þetta er ritað hefur frétt­inni verið flett um 40.000 sinnum.

Annað dæmi get ég nefnt. Eftir Versl­un­ar­manna­helg­ina skrif­aði ég tvær fréttir. Önnur þeirra tók mig allan dag­inn að gera, ég þurfti að senda tölvu­pósta, hringja í fólk, skrifa og bíða eftir svörum. Málið snérist um lands­liðs­þjálf­ara ung­lings­stelpna í körfu­bolta sem var lát­inn hætta með liðið eftir að ásak­anir bár­ust á hendur honum vegna óþægi­legra sam­skipta. Hina frétt­ina tók mig ekki nema 10 mín­útur að gera. Hún var um sleik sem popp­stjarna fór í við ungan kærasta sinn á Þjóð­há­tíð. Viljið þið giska á hvor fréttin fékk meiri lestur? Laukrétt, Kossaflensið fékk 38.700 flett­ingar en lands­liðs­þjálf­ar­inn 12.700.

Mið­ill­inn er lít­ill þó hann sé les­inn nokkuð vel á lands­vísu. Við fáum tekjur frá aug­lýsendum meðal ann­ars og þó við reynum að skrifa inni­halds­ríkar og afhjúp­andi fréttir, verðum við að skrifa „ekki fréttir“ inn á milli til að bústa upp lest­ur­inn, því það er það sem þú, les­andi góður, vilt lesa, töl­urnar sanna það.

Mannlegt eðli er ein­fald­lega þannig að við erum for­vitin um það hvað næsti maður er að gera, hvað nágrann­inn er að bar­dúsa í bíl­skúrnum og við hverja fræga fólki fer í sleik. Og stundum held ég að við ráðum bara ekki alltaf við fréttir af dýra­níð, kyn­ferð­is­brotum, fátækt og fleira „óþægi­legt“ og sækjum þess vegna í létt­meti á borð við sleik og slúður. Fyrir ykkur hin sem finnst þetta ekki vera frétt­næmt, sleppið að lesa og lesið „alvöru fréttir“ í stað­inn, af nógu er að taka.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi