Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ásdís Ólafsdóttir: „Hlýnun jarðar fjórum sinnum hraðari á norðurslóðum en annars staðar í heiminum“

Ásdís Ólafsdóttir: „Hlýnun jarðar fjórum sinnum hraðari á norðurslóðum en annars staðar í heiminum“
Ásdís Ólafs­dóttir

„Ísland er í ein­stakri stöðu á heims­vísu á svo margan hátt. Við búum við lýð­ræði, frið, orku­ör­yggi og skorum hátt í jafn­rétt­is­málum og lífs­gæðum almennt. Helstu tæki­færin eru tengd öllu þessu. Við erum að sjá gíf­ur­lega frjóa nýsköpun á mörgum sviðum sem gæti orðið ein helsta útflutn­ings­vara fram­tíð­ar­innar. Í þessu sam­hengi mætti nefna bæði Carbfix- og Climeworks-sam­starfið sem og það sem Kerecis er að gera. Við búum einnig yfir gíf­ur­legri þekk­ingu á sviði jarð­varma sem getur nýst fleiri þjóðum sér­stak­lega á tímum mik­ils orku­ó­ör­yggis í Evrópu. Ef Ísland heldur rétt á spil­unum hefur það alla burði til að verða sú stað­setn­ing í heim­inum sem fólk kemur til í þeim til­gangi að eiga lýð­ræð­is­leg sam­töl og byggja upp sam­vinnu sem snýr að því að finna lausnir á flóknum vanda­málum,“ segir Ásdís Ólafs­dóttir, for­stjóri Arctic Circle; Hring­borðs norð­ur­slóða.

Stærsti vett­vangur heims um þessi mál­efni.

Ásdís segir að starf sitt sé mjög fjöl­breytt og verði sífellt skemmti­legra:

„Líkt og áhugi á mál­efnum norð­ur­slóða hefur auk­ist þá hefur Arctic Circle vaxið gíf­ur­lega á sein­ustu árum og er stærsti vett­vangur heims um þessi mál­efni. Mikið púður fer í að skipu­leggja árlega þingið í Hörpu sem trekkir iðu­lega að fleiri en 2000 manns frá 60-70 löndum. Einnig höldum við eitt til tvö minni þing ár hvert víðs vegar í heim­inum í sam­starfi við rík­is­stjórnir og sam­tök þeirra landa. Arctic Circle er einnig mik­il­vægt efn­ismiðl­un­ar­tæki og við höldum utan um og birtum meðal ann­ars greinar, hljóð­vörp, vefút­send­ingar og hönnum efni fyrir sam­fé­lags­miðla.“

Þær eru þunga­miðja lofts­lags­breyt­inga.

Ásdís er spurð um áherslur hennar í starfi for­stjóra Arctic Circle:

„Áherslan er ávallt á opna lýð­ræð­is­lega umræðu og sam­starf um mál­efni norð­ur­slóða þar sem öll hafa mögu­leik­ann á að taka þátt. Það er mjög mik­il­vægt að þetta sé leið­andi stef í öllu því sem við gerum og mótar þessi sýn allt starfið. Fjöl­breyti­leiki norð­ur­slóða er eitt­hvað sem er mér sér­stak­lega hug­leik­inn og því er gaman að geta nýtt það sem Arctic Circle gerir til að vekja athygli á því að norð­ur­slóðir eru svo margt. Þær eru þunga­miðja lofts­lags­breyt­inga en þær eru líka fólkið og sam­fé­lögin sem búa þar. Síðan eru umjöll­un­ar­efnin ekki ein­skorðuð við norð­ur­slóðir.

Til dæmis má nefna að á þing­inu í ár voru Ind­verjar að kynna nýja norð­ur­slóða­stefnu sína en nú hefur það komið í ljós að bráðnun íss­ins hefur bein áhrif á monsún­tíma­bil þessa svæðis sem er sífellt að verða ófyr­ir­sjá­an­legra.“

Áhrif stríðsins

Ásdís segir að áhugi sinn á norð­ur­slóðum hafi kviknað í meist­ara­nám­inu sem hún sótti í háskól­anum í Lundi í Svíþjóð:

„Ég tók til­tölu­lega nýtt alþjóð­legt meist­ara­nám á sviði ham­fara­stjórn­unar og aðlögun að lofts­lags­breyt­ingum. Þar var áherslan mikið á syðri hluta heims­ins og mér fannst vanta meiri áherslu á norð­ur­hlut­ann, enda er hlýnun jarðar fjórum sinnum hrað­ari á norð­ur­slóðum en ann­ars staðar í heim­inum. Mér fannst því mun meira spenn­andi að fók­usera á þann heims­hluta og áhug­inn hefur bara auk­ist eftir að ég fór að vinna hjá Arctic Circle.“

Stríðið hefur auð­vitað haft mikil áhrif á sam­starf á norð­ur­slóðum.

Rússar taka þátt í Arctic Cricle og nú standa þeir í stríði.

Hvaða augum lítur Ásdís á ástandið og jafn­vel í sam­bandi við sam­starf varð­andi norð­ur­slóðir?

„Rússar eru áber­andi norð­ur­slóða­þjóð og eru aðilar í Norð­ur­skauts­ráð­inu, Arctic Council. Stríðið hefur auð­vitað haft mikil áhrif á sam­starf á norð­ur­slóðum og hefur Norð­ur­skauts­ráðið sett starf­semi sína að mestu leyti á ís.

Mikil óvissa ríkir um áfram­hald­andi sam­starf við til dæmis rúss­neskar stofn­anir og vís­inda­menn og tím­inn verður að leiða í ljós hversu miklar afleið­ingar stríðið mun hafa á norð­ur­slóða­sam­starf til lengri tíma. Öll viljum við að norð­ur­slóðir haldi áfram að vera alþjóð­leg fyr­ir­mynd um frið­sam­legt milli­ríkja­sam­starf og kom það skýrt fram í við­ræðum á þing­inu í októ­ber.“

Sonur á leiðinni

Ásdís er með BS-próf í sál­fræði frá Háskóla Íslands og fór efitr það í meist­ara­námið í Lundi.

„Ég hef mik­inn áhuga á mann­legri hegðun og sér­stak­lega hegðun í tengslum við lofts­lags­breyt­ingar. Námið í Lundi gaf mér tæki­færi á að skoða þetta út frá þver­fag­legu sjón­ar­horni og það und­ir­bjó mig líka vel undir starfið mitt í dag þar sem mikil vinna fer í að skoða mis­mun­andi sjón­ar­horn og oftar en ekki hvernig hægt er að miðla upp­lýs­ingum á skilj­an­legan og skemmti­legan hátt.“

Mér finnst vand­ræða­lega gaman í göngut­úrum.

Hvernig er líf for­stjóra Arctic Circle þegar vinn­unni sleppir?

„Ég reyni að kúpla mig út með því að rækta fjöl­skyld­una, vini og sjálfa mig. Hvort sem það er að fara í ferða­lög, hitt­ast í kaffi eða sundi eða hámhorfa á heila sjón­varps­s­eríu. Mér finnst vand­ræða­lega gaman í göngut­úrum og að elska hvers­dags­leik­ann með mann­inum mínum.“

Hvað er fram undan bæði hvað varðar Arctic Circle og líf Ásdísar?

„Framundan er full dag­skrá hjá Arctic Circle. Tvö smærri þing eru á næsta ári – eitt í jan­úar í Abu Dhabi í sam­starfi með lofts­lags­ráðu­neyt­inu þeirra og annað í Tokyo í mars. Arctic Circle á síðan 10 ára afmæli í októ­ber 2023 og því er að mörgu að hyggja þar. Per­sónu­lega er síðan stærsta verk­efni næsta árs þegar son­ur­inn mætir í heim­inn í byrjun febr­úar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi