Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Rökrétt að Guðrún Hafsteinsdóttir leysi Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur af hólmi“

„Rökrétt að Guðrún Hafsteinsdóttir leysi Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur af hólmi“

Ólafur Arnarson segir í pistli á Hring­braut að „vart verður við marg­vís­legan skjálfta í Sjálf­stæð­is­flokknum vegna skip­unar í ráð­herra­emb­ætti. Við myndun núver­andi rík­is­stjórnar fyrir tæpu ári kom veru­lega á óvart að gengið væri fram hjá fyrsta þing­manni Suð­ur­kjör­dæmis við úthlutun ráð­herra­stóla. Guðrúnu Haf­steins­dóttur hafði verið lofað ráð­herra­tign þegar hún var fengin til að bjóða sig fram í efsta sæti á lista flokks­ins og losa flokk­inn þannig við Pál Magn­ús­son sem hafði verið í upp­reisn gegn flokks­for­yst­unni vegna þess að gengið var fram hjá honum við ráð­herra­skipan í upp­hafi síð­asta kjör­tíma­bils.“

Ólafur Arnarson.

Hann bætir við að „Guðrún Haf­steins­dóttir not­aði kjör­dæma­vik­una um dag­inn vel. Hún heim­sótti stuðn­ings­menn flokks­ins í kjör­dæm­inu en lét ógert að nýta vik­una til að ferð­ast til sól­ar­landa eins og sumir þing­menn og ráð­herrar gerðu. Heyrst hefur að Guðrún hafi fengið ein­dregna hvatn­ingu sjálf­stæð­is­manna í kjör­dæm­inu um að sækja ráð­herra­emb­ættið fast.“

Ólafur nefnir að „margir trún­að­ar­menn flokks­ins í Suð­ur­kjör­dæmi eru mjög ósáttir við ástandið. Suð­ur­kjör­dæmi hafði síð­ast ráð­herra á vegum Sjálf­stæð­is­flokks­ins árin 2013 til 2016. Það var Ragn­heiður Elín Árna­dóttir sem kom fáu í verk á sínum ráð­herra­ferli. Þess vegna tókst Páli Magn­úsyni að fella hana í próf­kjöri haustið 2016, en hann var þá nýgeng­inn í Sjálf­stæð­is­flokk­inn. Engu að síður bar hann sig­ur­orð af Ragn­heiði Elínu með svo afger­andi hætti að hún dró sig end­an­lega út úr stjórn­málum en Páll leiddi lista flokks­ins í fimm ár, án þess að kom­ast að sem ráð­herra.“

Þá bendir Ólafur á að „í aðdrag­anda síð­ustu kosn­inga lagði for­ysta Sjálf­stæð­is­flokks­ins hart að Guðrúnu Haf­steins­dóttur að gefa kost á sér í fyrsta sæti flokks­ins í Suð­ur­kjör­dæmi. Hún var hik­andi en lét slag standa þegar henni var heitið ráð­herra­emb­ætti yrði flokk­ur­inn áfram í rík­is­stjórn. Áður hafði henni verið boðið annað sæti á lista Við­reisnar í kjör­dæm­inu en valdi að bjóða sig fram fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn þar sem rætur hennar liggja. Því kom það mikið á óvart þegar til­kynnt var að hún ætti að koma inn í rík­is­stjórn­ina eftir 18 mán­uði í síð­asta lagi. Samkvæmt því gæti það dreg­ist fram í byrjun júní á næsta ári.“

Jón Gunn­ars­son dóms­mála­ráð­herra.

Hann færir í tal að „gefið hefur verið í skyn að hún taki þá við emb­ætti dóms­mála­ráð­herra af Jóni Gunn­ar­syni. Þetta þykir mörgum galin hug­mynd. Jón Gunn­ars­son hefur staðið í stór­ræðum í sínu ráðu­neyti frá því að hann tók við emb­ætti og hefur engan veg­inn lokið við mik­il­væg verk­efni sem hann vinnur nú að hörðum höndum. Bent er á að dóms­mál séu ekki sér­svið Guðrúnar, en hún er aftur á móti sá þing­maður sem hefur yfir­burð­ar­reynslu og þekk­ingu á mál­efnum iðn­aðar. Guðrún Haf­steins­dóttir hefur verið hlut­hafi og for­svars­maður iðn­fyr­ir­tækis í Hvera­gerði í ald­ar­fjórð­ung og gegnt hlut­verki for­manns Samtaka iðn­að­ar­ins í sex ár og að auki setið þar í stjórn enn fleiri ár. Í raun og veru er alveg út í hött að hún skuli ekki gegna emb­ætti iðn­aðar-, háskóla- og vís­inda­ráð­herra í núver­andi vinstri stjórn, úr því að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er í þeirri rík­is­stjórn, í ljósi þeirrar miklu reynslu og þekk­ingar sem Guðrún býr yfir.“

Að mati Ólafs er alger­lega „rök­rétt að Guðrún Haf­steins­dóttir leysi Áslaugu Örnu Sig­ur­björns­dóttur af hólmi sem iðn­aðar-háskóla- og vís­inda­ráð­herra á nýju ári. Áslaug hefur enga reynslu eða þekk­ingu á því sviði og hefur ekki komið miklu í verk á þeim ell­efu mán­uðum sem liðnir eru frá því að hún tók við emb­ætt­inu. Helst er til að tína áform hennar um að koma upp sjóði til að útdeila fjár­munum til sam­starfs háskóla lands­ins í stað þess að hafa for­ystu um sam­ein­ingu þeirra og fækkun úr sjö í tvo. Sjóða­sukk hefur aldrei átt upp á pall­borðið í Sjálf­stæð­is­flokknum, alla vega ekki hjá kjós­endum þess flokks. Nú heyr­ist að Áslaug Arna hug­leiði að bjóða sig fram til emb­ættis vara­for­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins á kom­andi lands­fundi.“

Ólafur segir vænt­an­legt fram­boð Áslaugar Örnu koma á „óvart og er ekki talið lík­legt til árang­urs fyrir hana; getur það verið hugsað til að styrkja stöð­una gagn­vart ráð­herraupp­still­ingu flokks­ins á kom­andi mán­uðum?

Beri flokk­ur­inn ekki gæfu til að nýta krafta Guðrúnar Haf­steins­dóttur þar sem hennar styrkur liggur og eft­ir­láta Jóni Gunn­ars­syni eril­samt emb­ætti dóms­mála­ráð­herra er óvíst að von sé á góðu fyrir hann.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi