Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Að deyja með reisn – Um dánaraðstoð á Íslandi

Að deyja með reisn – Um dánaraðstoð á Íslandi

Dán­ar­að­stoð hefur verið leyfð í sífellt fleiri löndum heims­ins síð­ustu ár og fjölgar enn. Fyrstir til að stíga skrefið voru Hol­lend­ingar en það var árið 2002. Sama ár bætt­ust Belgar í hóp­inn en í dag eru um tíu þjóðir sem leyfa slíka aðstoð en Tazmanía í Ástralíu leyfði þetta fyrir fáeinum dögum er þetta er ritað. Á Íslandi er þetta bannað, þrátt fyrir gríð­ar­legan stuðn­ing þjóð­ar­innar við slíka aðstoð, þvert á alla flokka. Þá eru heil­brigð­is­starfs­menn einnig hlynntir dán­ar­að­stoð.  

Íslend­ingar virð­ast mjög hlynntir dán­ar­að­stoð ef marka má nýlega könnun sem Lífs­virð­ing, félag um dán­ar­að­stoð gerði. Í könn­un­inni var fólk spurt tveggja spurn­inga, hvort það væri hlynnt dán­ar­að­stoð og svo hvort það væri til í að hafa aðgang að slíkri aðstoð sjálft. Rúmlega 76% lands­manna sagð­ist hlynntur dán­ar­að­stoð og um 6% var á móti. Tölurnar breyt­ast tölu­vert þegar svörin við seinni spurn­ing­unni eru skoðuð en 82% segjst hlynntir því að hafa aðgang að dán­ar­að­stoð, þurfi þeir þess.

Orðið dán­ar­að­stoð er „þýð­ing á gríska orð­inu eut­hanasia (góður dauð­i/að deyja með reisn) sem merkir að binda enda á líf af ásetn­ingi til þess að leysa við­kom­andi undan óbæri­legum sárs­auka eða þján­ing­um. Oft á tíðum hefur verið not­ast við orðið líkn­ar­dráp eða sjálfs­víg með aðstoð,“ líkt og Bryndís Har­alds­dóttir þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins orðar það á heima­síðu flokks­ins en hún hefur lagt fram þings­á­lykt­un­ar­til­lögu fyrir nokkrum árum ásamt fleirum þing­mönnum úr öðrum flokk en var henni ætlað að kalla fram upp­lýs­ingar um stöðu mála og þróun lag­ara­mma um þetta mál, í þeim löndum sem dán­ar­að­stoð er lög­leg. Þá var í tilllög­unni beðið um upp­lýs­ingar um hvernig umræðan hefur þró­ast í nágranna­löndum okkar þar sem dán­ar­að­stoð er ekki leyfð. Að lokum faldi þings­á­lykt­unin það í sér að kann­aður yrði hugur heil­brigð­is­starfs­manna til dán­ar­að­stoð­ar.

Með og á móti dánaraðstoð

Á heima­síðu Lífs­virð­ingar má sjá lista yfir rökum, með og á móti dán­ar­að­stoð en hér má sjá þau rök.

Með dán­ar­að­stoð:

  • Virðing fyrir sjálf­ræði: Sjálf­ráða ein­stak­lingur á að hafa yfir­ráð yfir lík­ama sínum, lífi og dauða. Það telst til mann­rétt­inda að hafa eitt­hvað að segja um eigin dauð­daga. Við þurfum að virða sjálfs­á­kvörð­un­ar­rétt ein­stak­lings.
  • Mannúð: Líf manna er hægt lengja með aðstoð lyfja og tækja, þó það geti leitt til þess að auka þján­ingar. Ekki er hægt að útrýma öllum verkjum og það hverfur ekki öll þján­ing þótt hægt sé að stilla lík­am­lega verki. Dán­ar­að­stoð er mann­úð­legur val­kostur fyrir þá sem kjósa að deyja með reisn.
  • Dán­ar­að­stoð veitt nú þegar: Dán­ar­að­stoð er veitt nú þegar á Íslandi þó það sé sjaldan við­ur­kennt. Erlendar rann­sóknir sem gerðar hafa verið í löndum þar sem dán­ar­að­stoð er bönnuð eins og hér á landi sýna að fjöl­margir læknar deyða sjúk­linga með of stórum lyfja­skömmtum í því skyni að lina þján­ingar þeirra þó þeir viti full­vel að lyfið muni draga við­kom­andi sjúk­ling til dauða. Um leið er annarri með­ferð sem miðar að því að lengja líf sjúk­lings oft hætt. Fátt bendir til þess að ástandið hér heima sé öðru­vísi.
  • Draga úr líkum á mis­notkun: Í dag er dán­ar­að­stoð fram­kvæmd, að ein­hverju óljósu leyti, án laga­legrar heim­ildar og án skýrra marka. Því er mik­il­vægt að smíða lag­ara­mma og starfs­um­gjörð um dán­ar­að­stoð­ina og þróa skýra verk­ferla sem draga úr líkum á mis­notkun og að farið sé á ein­hvern hátt gegn vilja sjúk­lings.
  • Val­kostur: Lög­leið­ing dán­ar­að­stoðar ætti ekki að vera íþyngj­andi fyrir neinn. Slík lög myndu ekki hafa nein bein áhrif á þá sem eru, af trú­ar­legum eða sið­ferði­legum for­sendum, á móti dán­ar­að­stoð. Þetta er aðeins val­kostur fyrir þá sem kjósa að fara þessa leið. Mik­il­vægt er að fjölga val­kostum við lok lífs.Gegn dán­ar­að­stoð:
  • Gegn grund­vall­ar­starfs­reglum lækna: Dán­ar­að­stoð er and­stæð sið­ferðis- og fag­legum skyldum lækna. Það er hlut­verk lækna að lækna fólk en ekki deyða það, jafn­vel þótt það óski þess eins að fá að deyja.
  • Óréttmæt krafa: Enginn getur átt til­kall til þess að annar deyði sig. Sjúk­lingur getur ekki farið fram á það við lækni að hann aðstoði sig við að binda endi á líf sitt. Slíkan verknað er ekki hægt að leggja á nokkurn mann.
  • Heil­ag­leiki lífs: Það er rangt að taka líf í hvaða skiln­ingi sem er. Lífið er heil­agt, alltaf, og undir öllum kring­um­stæðum.
  • Þrýst­ingur ætt­ingja: Hætt er við því að alvar­lega veikt fólk upp­lifi sig sem byrði á sínum nán­ustu. Ef með­ferð er t.d. mjög kostn­að­ar­söm getur það kallað fram vilja til að deyja. Val­kost­ur­inn um dán­ar­að­stoð gæti því falið í sér skila­boð og þrýst­ing um að nýta sér mögu­leik­ann.
  • Þrýst­ingur á sjúk­ling: Lög­leið­ing dán­ar­að­stoðar getur haft í för með sér þá kröfu á sjúk­ling­inn að hann þurfi að gera það upp við sig hvort hann vilji lifa, hann þurfi með öðrum orðum að rétt­læta til­vist sína.
  • Fram­farir í verkja­með­ferð: Stór­stígar fram­farir í verkja­með­ferð á síð­ustu árum hafa gert fag­fólki kleift að stilla kvalir sjúk­linga á mun áhrifa­rík­ari hátt en áður. Þetta hefur fækkað þeim til­vikum þar sem dán­ar­að­stoð væri álit­inn kostur.
  • Hætta á mis­notkun: Ef eft­ir­litið er ekki nógu gott er hætta á að úrræðið verði mis­notað.
  • Smæðin: Smæðin á Íslandi hamlar opin­skáum umræðum um dán­ar­að­stoð. Í litlu landi yrði erfitt að vera þekktur sem lækn­ir­inn sem deyðir sjúk­linga.Reynslu­sögurBjarni Jónsson gjald­keri Lífs­virð­ingar sagði í við­tali við Vísi nýverið, að ein­stak­lingar leyti reglu­lega til félags­ins til að fá upp­lýs­ingar um það hvar hægt sé að fá dán­ar­að­stoð. „Hins vegar höfum við heyrt af því að fólk hafi verið að svelta sig til dauða. Því miður er líka hluti af fólki sem hrein­lega ákveður að svipta sig lífi með alls konar aðferðum þótt það komi ekki fram í töl­fræð­inni,“ sagði Bjarni í sam­tali við Vísi.Háöldruð amma ein­stak­lins sem Mannlíf heyrði í, bað barna­barn sitt ítrekað um að hjálpa sér að deyja en hún var þá komin á tíræð­is­ald­ur­inn og mjög heilsu­tæp. Barna­barnið neitað ömmu sinni, skilj­an­lega en þá tók hún upp á því að hætta að borða. Sagði ein­stak­ling­ur­inn að í stað þess að fá að deyja með reisn, svelti amma hennar sig í hel. „Þetta var bara ógeðs­legt,“ bætti ein­stak­ling­ur­inn við í sam­tali við Mannlíf.Þá er þekkt annað dæmi þar sem hin breska Jean Davies ákvað að taka málin í eigin hendur eftir að rík­is­stjórn Bretland náði ekki að setja lög um dán­ar­að­stoð. Davies svelti sig í hel. „Þetta er hel­víti. Ég get ekki sagt þér hversu erfitt þetta er. Þú myndir ekki taka þessa ákvörðun nema þú sért algjör­lega viss um að lífið yrði ann­ars slæmt. Þetta er óbæri­legt,“ sagði Davies í sam­tali við Sunday Times þegar hún hafði verið búin að vera án matar og drykkjar í fjórar vikur. Hún lést viku síðar.Afstaða Alþing­is­mannaMannlíf sendi eft­ir­far­andi spurn­ingar á alla þing­menn Alþingis, á dög­unum: Hver er afstaða þín til dán­ar­að­stoðar? Með dán­ar­að­stoð eða á móti?Alls svör­uðu 10 af 63 þing­mönnum, sem verður að telj­ast lélegt enda svör­uðu aðeins 15,8% þing­manna.Helga Vala Helga­dóttir, Sam­fylk­ing­unni seg­ist hlynnt dán­ar­or­sök, bæði almennt og að nýta það sjálf ef þess þyrfti. Björn Leví Gunn­ars­son Pírati er einnig með dán­ar­að­stoð og það sama má segja um Guðmund Inga Krist­ins­son hjá Flokki Fólksins og Bryndísi Har­alds­dóttur, þing­konu Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Þing­flokkur Við­reisnar, sem telur fimm manns, sendi svar sem heild en þar stóð að flokk­ur­inn væri hlynntur dán­ar­að­stoð og vitn­uðu í stefnu flokks­ins: „Innleiða þarf val­frelsi varð­andi lífs­lok þannig við vissar vel skil­greindar aðstæður, að upp­fylltum ströngum skil­yrðum, verði dán­ar­að­stoð mann­úð­legur val­kostur fyrir þá ein­stak­linga sem kjósa að mæta örlögum sínum með reisn. Sá val­kostur byggir á virð­ingu fyrir rétti sjúk­lings­ins á eigin lífi og lík­ama, dregur úr líkum á mis­notkun og dregur skýran laga­legan ramma um við­brögð, óski sjúk­lingur eftir dán­ar­að­stoð þegar engin önnur úrræði eru í boði. Tryggja þarf að sjúk­lingum, og eftir atvikum aðstand­endum þeirra, sé taf­ar­laust til­kynnt ef grunur er um að mis­tök hafi verið gerð og hvaða úrræði kunni að standa þeim til boða. Sett verði á eft­ir­lits­nefnd sem starfar þvert á allar heil­brigð­is­stofn­anir og fylgir eftir til­kynn­ingum um mögu­leg mis­tök heil­brigð­is­starfs­manna í heil­brigð­is­þjón­ustu.“Ásmundur Frið­riks­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins var eini þing­mað­ur­inn sem svar­aði ekki ját­andi. Hann svar­aði reyndar ekki neit­andi heldur. „Ekki hægt að svara já eða nei,“ skrif­aði Ásmundur í svari til Mannlífs. Blaða­maður mið­ils­ins bauð Ásmundi að svara ítar­legra um málið en hann hefur ekki enn svarað því.Árið 2019 sendi Lífs­virð­ing spurn­ingar á alla flokka sem buðu sig þá fram til Alþingis, þar sem meðal ann­ars var spurt hvort flokk­arnir myndu styðja laga­frum­varp á Alþingi sem myndi leyfa dán­ar­að­stoð. Við­reisn og Frjáls­lyndi lýð­ræð­is­flokk­ur­inn svör­uðu því ját­andi, Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn svar­aði því neit­andi, Sam­fylk­ingin, Píratar og Sós­í­alista­flokk­ur­inn svör­uðu: „óákveðið/jákvætt“ en Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn og Vinstri grænir sögð­ust hlut­lausir. Það þýddi að 19 voru fylgj­andi dán­ar­að­stoð, átta á móti og 25 óákveðnir.

    Í við­tali við Rúv sagði Bjarni Jónsson, frá Lífs­virð­ingu algjöra umpólun hafi orðið á afstöðu heil­brigð­is­starfs­fólks gagn­vart dán­ar­að­stoð, á síð­ustu árum. Árið 2010 hafi 18% lækna verið fylgj­andi aðstoð­inni og um 20% hjúkr­un­ar­fræð­inga.

    „54 pró­sent lækna og 72 pró­sent hjúkr­un­ar­fræð­inga styðja dán­ar­að­stoð. Alger umpólun. Þá má aðeins velta fyrir sér spurn­ing­unni hvað eru alþing­is­menn að gera, þegar bæði kjós­endur þeirra og þessi hópur sem hefur verið horft mikið til, heil­brigð­is­starfs­menn eru komnir inn á þessa línu,“ sagði Bjarni við Rúv.

    Þannig að mik­ill meiri­hluti lands­manna og hjúkr­un­ar­fræð­inga er hlynntur dán­ar­að­stoð, og rúmur meiri­hluti lækna er hlynntur því einnig en afstaða þing­manna er svo­lítið á huldu, of fáir taka afstöðu. Er því ljóst að hjá Alþingi liggi hníf­ur­inn í kúnni og ekk­ert muni skýr­ast í mála­flokknum nema þing­menn verði neyddir til að taka afstöðu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi