Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Vill ekki að Bjarni leiði flokkinn áfram: „Hinum djúpstæða vanda afneitað eða umræðan þögguð niður“

Vill ekki að Bjarni leiði flokkinn áfram: „Hinum djúpstæða vanda afneitað eða umræðan þögguð niður“
Björn Jón Bragason sagn­fræð­ingur.

Lög­fræð­ing­ur­inn og sagn­fræð­ing­ur­inn Björn Jón Bragason er með gleggri stjórn­mála­skýrendum skers­ins; hann fjallar um þá kreppu sem komin er upp í Sjálf­stæð­is­flokknum, og finnst honum ólík­legt að Bjarni Bene­dikts­son sé rétti mað­ur­inn til að leiða flokk­inn áfram.

Bjarni Bene­dikts­son.

Hann birtir grein á DV þar sem hann fer yfir stöðu mála flokks­ins.

„Frjálsir stjórn­mála­flokkar eru ein meg­in­for­senda lýð­ræð­is­legra stjórn­ar­hátta og svo vel megi takast til við stjórn ríkis þurfa að vera til staðar breiðir þjóð­ar­flokkar sem geta orðið hreyfi­afl umbóta í sam­fé­lögum.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn var lengst af slíkur flokkur með með­al­fylgi í kringum 37% á lands­vísu og um 45% í bæj­ar­fé­lögum. Í krafti styrks­ins gat flokk­ur­inn haft for­göngu um mörg stærstu hags­muna­mál þjóð­ar­innar á grund­velli nokkuð skýrra hug­sjóna um ein­stak­lings­frelsi, mann­rétt­indi, lýð­ræði, rétt­ar­ríki, atvinnu­frelsi og sér í lagi frjáls við­skipti.

Hér er þó rétt að slá þann varnagla að því fer fjarri að flokk­ur­inn hafi fylgt þessum hug­sjónum jafn­ein­arð­lega og tals­menn hans láta oft í veðri vaka.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn lét versl­unar- og fjár­fest­inga­höft við­gang­ast alltof lengi, hann hefur fram á þennan dag umborið við­skipta­hömlur í land­bún­aði og aðhyllst alls kyns for­ræð­is­hyggju svo fátt eitt sé nefnt.

Samt sem áður má færa fyrir því gild rök að flokk­ur­inn hafi haft for­göngu um að leiða til lykta mörg helstu hags­muna­mál lýð­veld­is­ins.

Í alþing­is­kosn­ingum 2007 hlaut Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn 36,6% atkvæða og 25 menn kjörna undir for­ystu Geirs H. Haarde for­manns og Þor­gerðar Katrínar Gunn­ars­dóttur vara­for­manns.

Ef við horfum til skoð­ana­kann­ana Gallups þá var með­al­tals­fylgi Sjálf­stæð­is­flokks­ins um og yfir 40% fram á árið 2008. Fylgið mæld­ist sem dæmi 45,1% í júlí 2007. Síðan féllu við­skipta­bank­arnir og flokk­ur­inn tap­aði alls níu þing­mönnum í kosn­ing­unum 2009 undir for­ystu nýs for­manns, Bjarna Bene­dikts­sonar; hlaut aðeins 23,7% atkvæða.

Fylg­is­hrunið þá var við erf­iðar aðstæður í meira lagi en litið til kann­ana Gallups fór flokk­ur­inn að hjarna við síðar sama ár.

Í októ­ber 2009 mæld­ist fylgið 32,7% og var almennt yfir þriðj­ungi næstu miss­erin. Sögulega var þetta samt slæ­legur árangur. Þegar óvin­sælar vinstri­st­jórnir voru við völd hér á árum áður var ekki óal­gengt að kann­anir sýndu sjálf­stæð­is­menn með helm­ings­fylgi og þegar þarna var komið sögu var það svo sann­ar­lega óvin­sæl vinstri­st­jórn sem hélt um valdatauma.

Gallup mældi fylgi Sjálf­stæð­is­flokks­ins 35,5% í jan­úar 2013 en aðeins 22,2% í apríl sama ár. Flokk­ur­inn náði nokkuð að rétta úr kútnum þegar kom að kosn­ing­unum það ár, hlaut þá 26,7% á lands­vísu og 19 menn kjörna.

Enn bætti flokk­ur­inn við sig 2016. Fylgið fór upp í 29,0% og tveir þing­menn bætt­ust við.

Illa gekk að mynda rík­is­stjórn í kjöl­farið og það var ekki fyrr en á nýju ári sem til varð stjórn Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar undir for­sæti Bjarna Bene­dikts­sonar. Það var brot­hætt sam­starf enda þing­meiri­hlut­inn eins naumur og hugs­ast gat.

Fall stjórn­ar­innar skrif­ast ekki ein­göngu á Bjarta fram­tíð. Það er mat margra að for­sæt­is­ráð­herra hefði þurft að leggja mun meiri rækt við for­ystu­hlut­verk sitt í stjórn­inni.

Síðan þá hefur for­maður stærsta stjórn­mála­flokks lands­ins ekki komið til álita sem for­sæt­is­ráð­herra.

Í kjöl­far þess að rík­is­stjórn Bjarna Bene­dikts­sonar féll 2017 var efnt til kosn­inga. Þá missti Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fimm menn og fylgið fór niður í 25,2%. Nið­ur­staða kosn­ing­anna veitti enga skýr­ari kosti á stjórn­ar­myndun en verið höfðu á fyrra kjör­tíma­bili. Pólitísk upp­lausn miss­erin á undan og tvennar alþing­is­kosn­ingar með skömmu milli­bili köll­uðu á að málin yrðu hugsuð upp á nýtt.

Það var við þær aðstæður sem hið sér­stæða stjórn­ar­form varð til sem spannar allt póli­tíska lit­rófið en undir for­sæti helsta for­ingja sós­í­alista hér á landi. Stefnan hefur verið eftir því: rík­is­út­gjöld vaxið hratt og skuldir að sama skapi.

Erfitt er að sjá margt sem minnir á grunn­gildi Sjálf­stæð­is­flokks­ins við fram­kvæmd stjórn­ar­stefnu síð­ustu fimm árin.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn tap­aði enn í síð­ustu alþing­is­kosn­ingum, hlaut næst­verstu kosn­ingu frá upp­hafi eða 24,4% en þing­manna­talan hélst óbreytt.

Eftir þær kosn­ingar horfði raunar svo við að ýmsir kostir voru á stjórn­ar­myndun en for­ystu Sjálf­stæð­is­flokks­ins leið svo vel í faðmi og undir verk­stjórn Vinstri grænna að flokk­arnir end­ur­nýju heit sín með Fram­sókn­ar­flokknum.

Áfram verða fjár­lög því afgreidd með miklum halla, rík­is­út­gjöld stór­aukin og almennar vinstri­á­herslur ríkj­andi í flestum mála­flokkum.

Það var á sinn hátt tákn­rænt að ráð­ist var í umfangs­mikla stækkun Stjórn­ar­ráðs­ins á þessum tíma­mótum og ráð­herrum fjölgað um tvo. Grunn­gildi sjálf­stæð­is­manna um sparnað í opin­berum rekstri eru farin veg allrar ver­aldar. Útþensla hins opin­bera og aðrar vinstri­á­herslur svo grímu­lausar að tal for­ystu­manna Sjálf­stæð­is­flokks­ins um aðhald í rík­is­rekstri og ein­stak­lings­frelsi eru hjóm eitt.

Einn gam­al­reyndur sjálf­stæð­is­maður orð­aði það svo í sam­tali okkar á dög­unum að flokk­ur­inn starf­aði ekki lengur á grund­velli neinnar hug­mynda­fræði. Hann væri nú orð­inn ekk­ert annað en valda­flokkur — allt gengi út að að hanga á völdum sama hvað það kost­aði.

Hverfum aftur til árs­ins 1978 sem kalla mætti annus horri­bilis í sögu Sjálf­stæð­is­flokks­ins en þá gerð­ist það í fyrsta sinn að flokk­ur­inn lenti utan rík­is­stjórnar á sama ári og hann missti meiri­hluta í borg­ar­stjórn.

Í kjöl­farið lögð­ust flokks­menn í alvar­lega sjálfs­skoðun, haldnir voru fjöl­mennir fundir þar sem hin vonda staða var rædd í þaula og for­ystu­menn sættu harðri gagn­rýni fyrir opnum tjöldum.

Skipaðir voru starfs­hópar sem lögð­ust yfir málin og á grund­velli þeirrar vinnu sótti flokk­ur­inn fram á nýjan leik og rétti úr kútnum.

Allt annað er uppi á tengnum nú og ljóst að vand­ræða­gangur í tengslum við sölu á hlut rík­is­ins í Íslands­banka kost­aði Sjálf­stæð­is­flokk­inn mörg atkvæði í nýliðnum sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingum (og lík­lega er flokk­ur­inn ekki enn búinn að bíta úr nál­inni með banka­söl­una).

Hvar­vetna tap­aði flokk­ur­inn fylgi og í Reykja­vík var útkoman hin versta frá upp­hafi. Þar hlaut hann aðeins 24,5% atkvæða. Hið sama má segja um fylgis­tapið í borg­inni og á lands­vísu: Málin eru ekki rædd opin­skátt á vett­vangi flokks­ins. Engir fundir, engir vinnu­hópar skip­aðir.

Annað hvort er hinum djúp­stæða vanda afneitað eða umræðan þögguð niður. Vart má á milli sjá hvort er alvar­legra.

Þeir sem lærðu lat­ínu vita að hörm­ung­ar­árið er anni horri­biles í fleir­tölu.

Það er kannski við­eig­andi nafn­gift á svipu­göng Sjálf­stæð­is­flokks­ins und­an­farin ára­tug og vand­séð að núver­andi for­maður leiði flokk­inn upp úr þeim tára­dal.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi