Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Helgi rekur flestar konur í stjórnunarstöðum á Torgi – Elín, Aðalheiður og Erla allar reknar í gær

Þremur reynslu­miklum milli­stjórn­endum hjá fjöl­miðla­fyr­ir­tæk­inu Torg ehf. var sagt upp störfum í gær. Allt eru þetta konur og svo virð­ist sem ein hátt­sett kona hafi verið látin fjúka frá hverjum und­ir­fjöl­miðli fyr­ir­tæk­is­ins, Frétta­blað­inu, DV og Hring­braut. Heim­ildir Mannlíf herma upp­sagn­irnar hafi komið mörgum á óvart inn­an­hús. Gíf­ur­legt tap hefur verið á rekstr­inum, sem er að mestu í eigu Helga Magn­úss­sonar.

Erla Hlyns­dóttir var rekin af DV en hún var ráð­inn frétta­stjóri þar stuttu eftir að Helgi keypti fjöl­mið­il­inn árið 2020. Þá var hún nýhætt sem fram­kvæmda­stjóri Pírata. En Erla hefur komið víða við í fjöl­miðlum og hefur starfað á Stöð 2 og Frétta­tím­anum auk DV. Hún er helst þekkt fyrir að hafa í þrí­gang kært íslenska ríkið til Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu vegna dóma sem hafa fallið henni í óhag í Hæsta­rétti. Öll málin vann hún á meg­in­land­inu.

Á Frétta­blað­inu var Aðal­heiður Ámunda­dóttir rekin. Þar, líkt og Erla, hafði hún starfað sem frétta­stjóri frá því að Helgi eign­aði blaðið 2020. Aðal­heiður er lög­fræð­ingur að mennt og starf­aði sem blaða­maður á Frétta­blað­inu frá árinu 2017. Þar áður, líkt og Erla, starf­aði Aðal­heiður fyrir Pírata og var einnig í fram­boði fyrir flokk­inn.

Þriðja konan sem var rekin í gær var þó eng­inn Pírati, heldur Elín Hirst, fyrr­ver­andi þing­kona Sjálf­stæð­is­flokks­ins og frétta­kona í ára­tugi. Uppsögn hennar er helst furðu­leg fyrir þær sakir að hún er nýkomin til starfa. Ráðning hennar sem rit­stjóra Frétta­vakt­ar­innar hjá Torgi, sjón­varps­frétta á Hring­braut, var til­kynnti í upp­hafi ágústs. Í þeirri til­kynn­ingu var lögð áhersla á náið sam­starf hennar og Sig­mundar Ernis Rúnars­sonar aðal­rit­stjóra um ára­bil.

Eftir því sem Mannlíf kemst næst þá eru engar konur í stjórn­un­ar­stöðum á öllum rit­stjórnum fjöl­miðla Torgs í dag. Van­traust á konum innan fjöl­mið­ils­ins er þó ekk­ert nýtt og hefur fylgt fyr­ir­tæk­inu frá upp­hafi. Stuttu eftir að Helgi keypti Frétta­blaðið voru flestar konur í stjórn­un­ar­stöðum reknar. Það vakti hörð við­brögð starfs­manna árið 2020, líkt og kom fram í ítar­legri frétt Vísis um málið.  Þar kemur fram að áður en Helgi eign­að­ist blaðið voru konur í meiri­hluta þegar kom að rit­stjórum og frétta­stjórum blaðs­ins.

Rang­hermt að Elínu Hirst, rit­stjóra Frétta­vakt­ar­innar, hafi verið sagt upp störfum. – Elín er hér með beðin afsök­unar á þessum mis­tökum og því ónæði sem þau kunna að hafa valdið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi