Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Aurskriða þurrkaði næstum út heila fjölskyldu: „Það molaðist niður og grófst undir skriðunni“

Aurskriða þurrkaði næstum út heila fjölskyldu: „Það molaðist niður og grófst undir skriðunni“
Þar sem hvíti kross­inn er stóð tví­lyft stein­húsið. Mynd: Har. Hermanss.

Að morgni laug­ar­dags 19. ágúst árið 1950 varð sá skelfi­legi atburður á Seyð­is­firði að aur­skriða féll á tví­lyft stein­hús af miklu afli með þeim afleið­ingum „að það mol­að­ist niður og grófst undir skrið­unni, sem gekk í sjó fram,“ líkt og því var lýst í Morg­un­blað­inu dag­inn eftir. Í hús­inu bjuggu tvær fjöl­skyldur. Voru það hjónin Aðal­björn Jónsson og Ingi­björg Magn­ús­dóttir ásamt fimm börn þeirra sem og hjónin Gunnar Sig­urðs­son og Krist­laug Þor­valds­dóttir og tveir synir þeirra.

Rignt hafði mikið dag­inn áður en frétta­rit­ari Morg­un­blaðs­ins á Seyð­is­firði, Benedikt Jónasson lýsti því svo: „Hjer byrj­aði að rigna laust eftir mið­nætti í nótt sem leið og gerði þá stór­rign­ingu og hjelst hún í alla nótt fram yfir hádegi. Var úrfellir eins og hann verður mestur hjer um slóðir.“

Aðeins lifðu þrír ein­stak­lingar af þeim sem lentu í skrið­unni en fimm biðu bana, þar af fjögur börn.

Atburð­ur­inn var reið­ar­slag fyrir Seyð­is­fjörð eins og gefur að skilja. Blaðið Íslend­ingur
fjall­aði um þennan sorg­ar­at­burð þann 23. ágúst 1950. Hér má sjá frá­sögn­ina í heild sinni:

Hörmu­legt slys

Fimm manns býður bana í skriðu­hlaupi á Seyð­is­firði.

Gíf­ur­legt eigna­tjón varð þar einnig og á ýmsum öðrum stöðum á Aust­ur­landi. Stór­rign­ingar ollu skriðu­föll­unum.

Þau hörmu­legu tíð­indi gerð­ust á Seyð­is­firði s.l. laug­ar­dags­morgun, að aur­skriða féll úr Stranda­tindi á yzta íbúð­ar­húsið á Fjarð­ar­strönd, með þeim skelfi­legu afleið­ingum, að fimm manns beið bana, en tvennt meidd­ist nokkuð.

Þau, sem fór­ust, voru Ingi­björg Magn­ús­dóttir, kona Aðal­björns Jóns­sonar á Seyð­is­firði, 36 ára að aldri, og fjögur börn þeirra hjóna, þau: Jónína lngi­björg, 18 ára; Baldur Þór, 12 ára; Bragi Már, 6 ára og óskírt stúlku­barn, sex mán­aða.

Eina barnið, sem lifir.

Eina barn þeirra hjón­anna, Aðal­björns og Ingi­bjargar heit­innar, sem nú lifir, Guðrún Sigríður, 15 ára gömul, var einnig í hús­inu, þegar skriðan féll á það og fyllti það og braut. Luktist hún inni í rúst­unum í aur­skrið­unni, en var grafin upp eftir að hafa verið röska þrjá
klukku­tíma í skrið­unni. Hún var eitt­hvað meidd, en líður nú sæmi­lega eftir atvikum.

Fólkið ætl­aði að yfir­gefa húsið.

Vegna hins gengd­ar­lausa vatns­veð­urs, sem gengið hafði, var fólk farið að ótt­ast um að skriður kynnu að falla, og var Aðal­björn þegar far­inn inn í bæinn til þess að ná í bíl til þess að flytja fólk sitt og aðra þá, sem í hús­inu voru, burt úr því. Í hús­inu bjuggu einnig hjónin
Gunnar Sig­urðs­son og Krist­laug Þor­valds­dóttir og tveir synir þeirra. Var konan farin úr hús­inu og út í rign­ing­una með yngri son­inn um morg­un­inn áður en skriðan féll, en
feðgarnir björg­uð­ust, annar eitt­hvað meiddur.

Annað tjón.

Þegar slík hörm­ungaslys sem þetta verða, þá falla minni háttar atburðir í skugga þeirra, en ótal skriður féllu víðs vegar um Aust­ur­land og ollu miklu tjóni á mann­virkjum, en óger­legt er ennþá að gera sér full­kom­lega ljóst hversu miklum fjár­verð­mætum tjónið nemur.

Baksýnisspegill þessi birtist áður þann 18 mars 2022

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi