Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Storytel-Stefán með slóð tilkynninga um kynferðislega háttsemi

Storytel-Stefán með slóð tilkynninga um kynferðislega háttsemi

Stefán Hjör­leifs­son, fram­kvæmda­stjóri Stor­ytel á Ís­landi, lét af störf­um hjá fyr­ir­tæk­inu á Ís­landi eft­ir að þrjár kon­ur kvört­uðu und­an hátt­semi hans. Kvart­an­irn­ar sner­ust um óvið­eig­andi hátt­semi af kyn­ferð­is­leg­um toga. Stundin greinir frá.

Kvart­anir vegna Stefáns hjá Storytel ná að minnsta kosti rúmt eitt og hálft ár aftur í tím­ann. Til­kynn­ing­arnar bár­ust móð­ur­fé­lagi Storytel í Stokk­hólmi.

Sjá einnig: Stefán stígur til hliðar hjá Storytel: „Rósa mín hefur staðið með mér eins og klettur“

Skyndi­legt brott­hvarf Stefáns frá fyr­ir­tæk­inu vakti athygli nýverið. Stefán hefur gert hljóð­bóka­út­gáf­una firna­sterka en sagði við starfs­lokin að hann hefði viljað breyta til og lét þannig í veðri vaka að ákvörð­unin væri sín.

Storytel á Íslandi er í eigu sænska fyr­ir­tæk­is­ins Storytel AB sem er alþjóð­legt hljóð­bóka­fyr­ir­tæki með starf­semi í mörgum löndum. Fyr­ir­tækið hóf starf­semi hér á landi með látum árið 2018 og er tekju­hæsta bóka­fyr­ir­tæki lands­ins.

Stefán sagð­ist sjálfur hafa ákveðið að hætta í starfi sínu sem land­stjóri Storytel á Íslandi. Þar hafði hann verið síð­ustu fimm ár. Stefán sagði frá ákvörðun sinni á Facebook og útskýrði þar hvers vegna hann ákvað að stíga til hliðar:

„Í þess­ari viku eru liðin fimm ár síðan ég tók við emb­ætti Lands­stjóra Storytel á Íslandi. Fimm gef­andi, spenn­andi, krefj­andi en fyrst og fremst skemmti­leg ár þar sem sköp­un­ar­kraft­ur­inn hefur fengið að njóta sín. Ég er afar þakk­látur og stoltur af því að hafa verið þátt­tak­andi í braut­ryðj­enda­starfi Storytel í þeirri veg­ferð að gera sögur aðgengi­legar enn fleira fólki en áður hefur þekkst. Hér heima og heiman.

Þau ykkar sem þekkið mig vitið lík­lega að ég nær­ist á því að skapa, umbreyta, byggja upp og koma þeim verk­efnum sem ég tek mér fyrir hendur fyrir vind. Lífið býður upp á enda­laus tæki­færi og í sér­hverju verk­efni lærir maður eitt­hvað nýtt og kynn­ist nýju fólki.

Í sumar og það sem af er hausti hefur mér gef­ist tæki­færi til að líta yfir far­inn veg og íhuga næstu skref. Starf mitt krefst fullrar athygli og ég hef spurt mig hvort ég hafi enn þann eld­móð og hvata til að halda áfram á þess­ari spenn­andi veg­ferð eða hefur hugur minn hugs­an­lega leitað í átt að nýjum áskor­unum?

Ég hef kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að nú er rétti tím­inn til að leita á ný mið meðan ég hef þrótt til áfram­hald­andi sköp­unar og tel að ég geti látið gott af mér leiða á nýjum vett­vangi. Ég hef þegar til­kynnt stjórn Storytel um ákvörðun mína, vit­an­lega í mestu vin­semd. Ég er óend­an­lega þakk­látur ynd­is­legu, hæfi­leik­a­ríku og dríf­andi starfs­fólki Storytel á Íslandi sem hefur staðið mér við hlið og alls þess stuðn­ings og allrar þeirrar hvatn­ingar sem ég hef fengið frá Storytel fjöl­skyld­unni um víða ver­öld. Allir mínir villt­ustu draumar hafa ræst, þar með talið að eiga þátt í efl­ingu bóka­geirans á Íslandi. Nú er tíma­bært að ný mann­eskja taki við kefl­inu.

Og hvað er þá næst? Hver veit? Akkúrat núna tekur við lang­þráð verk­efni – að reyna loks að lækka for­gjöf­ina á suð­rænum slóðum og hlaða batt­er­íin. Þekkj­andi mína eirð­ar­lausu frum­kvöðla­sál, hef ég ákveðið að slaka aðeins á, gefa upp­hafi nýrra ævin­týra góðan tíma, taka mér gott frí og njóta næstu mán­aða með fjöl­skyldu og vinum, og þá mest með Rósu minni sem hefur staðið með mér eins og klettur í gegnum allt mitt brölt.

Nú tekur við nýr kafli en lífið er núna. Eða eins og Lennon sagði, „Life is what happ­ens when you´re busy mak­ing other plans“.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi