Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Tómas segir Önnu Dóru hafa spilað Metoo-spjaldið þegar valdaránið mistókst

Tómas segir Önnu Dóru hafa spilað Metoo-spjaldið þegar valdaránið mistókst

Tómas Guð­bjarts­son læknir segir að Anna Dóra Sæþórs­dóttir, pró­fessor við Háskóla Íslands og þar til nýlega for­seti Ferða­fé­lags Íslands, hafi mis­notað Metoo-vit­und­ar­vakn­ingu síð­ari ára til að koma höggi á and­stæð­inga innan félags­ins. Sú mynd sem Anna hefur málað upp, að henni hafi verið bolað út af feðra­veldi Ferða­fé­lags­ins sem þoldi ekki and­stöðu hennar við kyn­ferð­is­brot, sé alröng. Hið rétta sé að Anna Dóra hafi reynt að ná völdum í félag­inu og þegar það tókst ekki hafi hún spilað Metoo-spjaldið.

Allt þetta kemur fram í pistli Tómasar sem birtur er á Vísi en einnig má lesa í heild sinni hér fyrir neðan.

Und­an­farnar vikur hefur Ferða­fé­lag Íslands verið mikið í fjöl­miðlum þar sem m.a. hafa komið fram alvar­legar ásak­anir í garð stjórnar, og félagið jafn­vel kallað „skjall­banda­lag“ þar sem þöggun og með­virkni ráði ríkjum”.

Um leið hefur verið gert lítið úr nið­ur­stöðum eins fjöl­menn­asta fundar í sögu félags­ins sem hald­inn var í síð­ustu viku. Stað­reyndin er sú að á fund­inum kom skýrt fram, stutt stað­reyndum, að kyn­ferð­is­of­beldi innan félags­ins hefur ekki verið þaggað niður af stjórn. Þótt vissu­lega geti Ferða­fé­lagið, líkt og önnur félaga­sam­tök og fyr­ir­tæki, gert betur í þessum mik­il­væga mála­flokki, þá hefur þessum málum ávallt verið vísað í skil­greinda far­vegi innan félags­ins.

Á heima­síðu FÍ má nálg­ast fram­sögu­ræður fund­ar­ins þar sem vel á annan tug af 300 fund­ar­gestum tóku til máls. Á fund­inum var rakið hvernig fyrr­ver­andi for­seti og nán­ustu stuðn­ings­menn hennar reyndu að ná völdum í félag­inu, með ólýð­ræð­is­legum og ómak­legum hætti þar sem nokkrum stjórn­ar­mönnum var m.a. hótað opin­berum æru­meið­ingum. Í fjöl­miðlum, þar á meðal í nýlegu helg­ar­við­tali, var stjórn­ar­fólki lögð ósönn orð í munn og það nafn­greint, jafn­vel í tengslum við mál sem trún­aður á að ríkja um. Slíkt er algjör­lega á skjön við siða- og verk­lags­reglur slíkra mála, jafnt hjá félaga­sam­tökum sem fyr­ir­tækjum.

Það er ekk­ert sem rök­styður full­yrð­ingar um að hylmt hafi verið yfir kyn­ferð­is­of­beldi af stjórn félags­ins. Fyrir það fyrsta fær stjórnin ekki slík mál á sitt borð auk þess sem stjórnin stóð ein­huga með fyrr­ver­andi for­seta að því að inn­leiða nýjar og end­ur­bættar starfs­reglur varð­andi ein­elti og kyn­ferð­is­of­beldi í febr­úar sl. Hefur öllum málum sem borist hafa félag­inu síðan hefur verið vísað í þá far­vegi sem þar eru til­greindir. Um er að ræða tvö ein­elt­is­mál og er annað þeirra kvörtun fram­kvæmda­stjóra félags­ins um ein­elti af hálfu for­seta í sinn garð. Var það með­höndlað sam­kvæmt áður­nefndum verk­lags­reglum sem fyrr­ver­andi for­seti hafði sjálf tekið þátt í að inn­leiða. Þar er m.a. kveðið á um að meintur ger­andi stígi til hliðar tíma­bundið á meðan unnið er úr mál­inu. Allt tal um „þögg­un­ar­samn­ing“ stjórnar gagn­vart henni á því ekki við, enda ein­fald­lega verið að fylgja verk­lags­reglum.

Ein­eltiskvörtun fram­kvæmda­stjóra var sam­kvæmt sömu verk­lags­reglum send til utan­að­kom­andi fag­að­ila, sem voru að vinna í mál­inu þegar fyr­ir­spurn barst í lok sum­ars frá lög­fræð­ingi fyrr­ver­andi for­seta. Sagðist hún þar vilja stíga til hliðar í sátt með hags­muni FÍ að leið­ar­ljósi og óskaði eftir að ein­eltis­á­kæran væri felld niður. Þolandi ákvað eftir nokkra umhugsun að fella kæruna niður, en eins og flestum er ljóst efndi fyrr­ver­andi for­seti ekki sinn hluta sam­komu­lags­ins.

Á félags­fund­inum í sl. viku var lögð fram van­traust­s­til­löga á stjórn FÍ en frá­vís­un­ar­til­laga á hana var sam­þykkt með 85% greiddra atkvæða. Í kjöl­farið var síðan borin upp og sam­þykkt trausts­yf­ir­lýs­ing á stjórn félags­ins með svip­uðum fjölda atkvæða. Öllum var frjálst að tala á þessum fundi og það er útúr­snún­ingur að gera lítið úr því félags­fólki sem sótti fund­inn og afdrátt­ar­lausri nið­ur­stöðu hans. Allir 11 þús. félagar FÍ áttu þess kost að mæta á fund­inn, þ.m.t. stuðn­ings­menn fyrr­ver­andi for­seta, en dag­ana fyrir fund­inn höfðu þónokkrir þeirra skráð sig aftur í félagið til að taka þátt í honum.

Mál­flutn­ingur af Ferða­fé­lag­inu hefur oft á tíðum und­an­farið verið ein­hliða og byggir oftar en ekki á sögu­sögnum, t.d. að fyrr­ver­andi stjórn­ar­maður, sem sagði sig úr stjórn fyrir ári síðan, hafi eftir það verið aðstoð­ar­far­ar­stjóri í ferðum félags­ins. Þetta er ósatt líkt og sú full­yrð­ing að ég hafi barist fyrir end­ur­komu hans í stjórn félags­ins, enda annar aðili kos­inn í stjórn í hans stað á síð­asta aðal­fundi. Þessi fyrr­ver­andi stjórn­ar­maður hefur hins vegar tekið þátt í ferðum félags­ins, enda hafði fyrr­ver­andi for­seti sagt við hann og aðra að slíkt væri sjálf­sagt og þau tvö m.a. tekið þátt í sömu skíða­ferð um hálendið sl. vetur.

Ferða­fé­lag Íslands er ekki hafið yfir gagn­rýni og félagið getur klár­lega gert betur í ofbeldis- og ein­elt­is­málum. Gagnrýni verður þó að vera mál­efna­leg og byggja á stað­reyndum. Það er ömur­legt að þurfa sífellt að sitja undir röngum ásök­unum, fals­fréttum sem fólk fer að trúa séu þær end­ur­teknar nógu oft. Afsögn fyrr­ver­andi for­seta kom ekki til vegna aðgerða­leysis stjórnar í ein­eltis- og kyn­ferð­is­of­beld­is­málum, heldur var hún sorg­leg afleið­ing ólýð­ræð­is­legra stjórn­ar­hátta og ein­elt­istil­burða hennar sem aðrir í stjórn félags­ins gátu engan veg­inn sætt sig við og bar að bregð­ast við.

Nú er mik­il­vægt að við félags­menn í FÍ snúum bökum saman og vinnum áfram af krafti að því að efla félagið okkar og gera það enn betra. Við vitum að með jákvæðu sam­tali og sam­vinnu okkar á milli okkar getum við fundið leiðir til að laga það sem þarf að laga og efla félagið enn frekar til fram­tíðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi