Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Lilja Sigurðardóttir – Bækurnar hafa selst í rúmlega milljón eintökum

Lilja Sigurðardóttir – Bækurnar hafa selst í rúmlega milljón eintökum
Lilja Sig­urð­ar­dóttir

Bók Lilju Sig­urð­ar­dóttur, Helköld sól, er á for­valslist­anum til Petrona-verð­laun­anna sem eru bresk verð­laun fyrir bestu nor­rænu glæpa­sög­una á ensku. Á for­valslist­anum eru 12 bækur og þar af þrjár íslenskar, bók Lilju og bækur Sól­veigar Páls­dóttur og Óskars Guð­munds­sonar. Íslend­ingur hefur unnið þessi verð­laun en það var Yrsa Sig­urð­ar­dóttir árið 2015.

„Það er vita­skuld heiður að vera á for­valslist­anum en nú um miðjan mánuð er sá listi skor­inn niður í örfáar til­nefn­ingar og svo er sig­ur­bókin valin úr þeim,“ segir Lilja. „Sig­ur­veg­ar­inn fær boð um að tala á Crime-Fest hátíð­inni í Bristol, ein­hver smá­ræðis pen­inga­verð­laun og svo flottan verð­launa­grip. Ég verð að segja að hver svo sem sig­ur­veg­ar­inn verður þá eru allar bæk­urnar á for­valslist­anum þess umkomnar að vinna.“

Nýjasta bók Lilju heitir Drep­svart hraun og seg­ist Lilja í henni nudda sér ofur­lítið utan í yfir­nátt­úru­lega hluti þar sem barn seg­ist vera horfin systir aðal­per­són­unnar end­ur­fædd. „Þetta er vita­skuld und­ar­legt og þarfn­ast rann­sóknar og fljót­lega fellur grunur á for­eldra barns­ins um að þau viti eitt­hvað meira um hvarf syst­ur­innar. Daníel lög­reglu­maður lendir líka í furðu­legum hlutum þegar Lady Gúgúlú, dragdrottn­ingin sem leigir hjá honum, lætur sig hverfa fyr­ir­vara­laust á flótta undan dul­ar­fullum mönnum.“

Lilja fékk í vik­unni í hendur ein­tök af bók­unum sínum á arab­ísku.

The Times og The Sunday Times

Drep­svart hraun er tíunda bók Lilju. Bækurnar hafa verið þýddar á ýmis tungu­mál og seg­ist rit­höf­und­ur­inn halda að þau séu 18 og hafa bæk­urnar selst í rúm­lega milljón ein­tökum.

Ýmsir erlendir fjöl­miðlar hafa fjallað um bæk­urnar og má nefna góðan dóm sem birt­ist í Times í sept­em­ber.

Nú á dög­unum valdi The Sunday Times Red as Blood – Blóð­rauðan sjó – eina af fimm bestu glæpa­sögum árs­ins.

„Ég er heppin með það að fá almennt góða dóma og reyndar mjög góða dóma í útlöndum. Nú á dög­unum valdi The Sunday Times Red as Blood – Blóð­rauðan sjó –  eina af fimm bestu glæpa­sögum árs­ins og aðal­gagn­rýn­andi Times segir að ég sé um það bil að vera einn af hans upp­á­halds­höf­undum. Þetta er gaman og gleður mig auð­vitað þar sem ástæðan fyrir því að ég stend í þessu er löngun til að skemmta fólki með skrif­unum mínum. En ég veit svo sem ekki hvað svona gagn­rýni gerir fyrir mann í raun og veru. Útgef­endur eru alltaf him­in­lif­andi því það er hægt að setja brot úr dómum á bók­ar­káp­urnar og sjálf­sagt eykur þetta söl­una eitt­hvað.“

Lilja ferð­ast mikið til útlanda vegna bókanna. „Nú þegar þær koma út í mörgum löndum þá fylgja þessu miklar kynn­ing­ar­ferðir. Covid hægði nú samt sem betur fer á þessu og margir við­burðir eru nú á net­inu. En nú í ár er ég búin að ferð­ast til dæmis til Englands, Skotlands, Kanada og tvisvar til Frakk­lands.“

Lilja er þaul­vön því að tala á sviði um bæk­urnar sínar og hefur verið önnum kafin í kynn­ing­ar­ferðum.

Spenna getur verið margs konar

Hvers vegna að skrifa spennu­sögur? „Vegna þess að það er svo gaman. Á meðan ég hef gaman af þessu og ein­hver nennir að lesa þá held ég þessu áfram.“

Hvað þarf að hafa í huga til að skrifa spennu­sögu?

„Ég hef það alltaf að leið­ar­ljósi að reyna að skrifa sögu sem ég myndi sjálf vilja lesa. Að öðru leyti gildir það sama um spennu­sögur og aðrar sögur: Að færa les­and­anum ein­hverja upp­lifun og afþr­ey­ingu.“

For­vitni­legir hluti og ráð­gátur geta líka skapað spennu.

Hvernig er hin full­komna spennu­saga?

„Góður sögu­þráður, góðar per­sónur og svo auð­vitað spenna. Spenna getur hins vegar verið margs konar. Hún þarf ekki endi­lega að vera taugatrekkj­andi. For­vitni­legir hluti og ráð­gátur geta líka skapað spennu.“

Hefur Lilju dreymt eitt­hvað sem hefur svo ratað í bók?

„Já, fyndið að þú spyrjir um það því að mig dreymdi ákveðna hluti sem ég not­aði í nýju bók­ina mína. Ég get ekki sagt of mikið um það til að ljóstra ekki upp ein­hverju úr bók­inni en það snýst um hættu­legt vopn og vopna­fram­leið­endur. Mig dreymdi að ég væri stödd í borg þar sem svona vopn hafði verið notað.“

Hvernig er að ein­beita sér svona að glæpum og óhugn­aði við vinnu sína?

„Það er bara ágætt. Ég veit ekki hvað skal segja. Ég er fremur blíð­lynd og glöð mann­eskja að eðl­is­fari en hef óskap­lega gaman af glæpa­sögum. Það er ein­hvers konar fíkn alveg frá því ég var lítil. Ég hef gaman af því að byggja upp sög­urnar og ímynda mér hluti. Það er skap­andi orka sem bein­ist í þennan far­veg.“

Oftast er það ein­hvers konar sam­bræð­ingur af ein­hverju sem ég hef lesið eða heyrt.

Hvernig og hvar fær Lilja hug­myndir?

„Alls staðar að. Ég fylgist mikið með fréttum og líka heims­frétt­unum og stundum smellur eitt­hvað í hausnum á mér sem væri geggjuð saga. Oftast er það ein­hvers konar sam­bræð­ingur af ein­hverju sem ég hef lesið eða heyrt. Svo hrekk ég stundum upp við það að ein­hvers staðar milli svefns og vöku fæ ég ein­hverja hug­dettu eða finnst eins og ég heyri raddir þegar per­són­urnar tala við mig. Þetta er mjög skrýtið en oft hjálp­legt.“

Lilja seg­ist vera í fjóra mán­uði að skrifa bók. „Svo þarf að laga eitt­hvað smá­vegis til sam­kvæmt ábend­ingum rit­stjóra og lesa svo próf­arkir svo að ferlið að koma bók­inni í horf er um það bil hálft ár allt í allt.“

Hvað ótt­ast glæpa­sagna­höf­und­ur­inn mest?

„Ég ótt­ast nú ekki margt og glæpa­sögur hræða mig ekki. En ég á stundum bágt með drauga­sögur og drauga­myndir þó ég trúi í raun ekki á drauga. Það er eitt­hvað við það sem er óáþreif­an­legt sem setur mann í erf­iða stöðu. Það er hið óþekkta sem er ógn­andi.“

Moldarblandinn og brasandi

Lilja er spurð hver sé erf­ið­asta lífs­reynsla sem hún hefur gengið í gegnum og hvernig hún tókst á við hana.

Það að vera les­bísk er líka mín stærsta gleði í líf­inu.

„Ég veit ekki hvað ég ætti að nefna sem staka lífs­reynslu en ætli ég myndi ekki segja að á heild­ina litið hafi það mótað mig mest og reglu­lega og orðið mér til hindr­unar að vera hinsegin. Það er þó mun minna í dag en á árum áður og tekið skal fram að það að vera les­bísk er líka mín stærsta gleði í líf­inu.“

Lilja segir að þetta hafi áhrif á skrif sín.

„Ég held að hinsegin per­sónur og þeirra hugð­ar­efni poppi meira upp í mínum sögum en mörgum öðrum og tríló­gían mín, Gildran, Netið og Búrið, var með les­b­íur í aðal­hlut­verkum. Einn breskur gagn­rýn­andi sagði líka að bæk­urnar mínar væru „camp“ þó ég sjái það ekki bein­línis sjálf.“

Lilja á hálend­inu með Dr. Árna.

Hvernig er lífs­stíll­inn þegar vinn­unni sleppir?

„Hann er mjög mold­ar­bland­inn og brasandi. Ég hef gaman af því að sinna garði og heim­ili. Við konan mín, Margrét Pála Ólafs­dóttir, búum uppi við Elliða­vatn á nokkuð rúmu landi og höldum hænur og hund­inn Dr. Árna. Þeim lyndir ágæt­lega hund­inum og hæn­unum og sýna hvert öðru verð­skuld­aða virð­ingu þó að hund­ur­inn sé afbrýði­samur yfir matnum sem hæn­urnar fá. Hann er með góða mat­ar­lyst, bless­aður, eins og eig­end­urnir. Svo er flutt inn til okkar lítil fjöl­skylda, barna­barn kon­unnar minnar, mað­ur­inn hennar og lítil dóttir, svo að fjöl­skyldu­lífið er skemmti­legt á meðan við erum heima. Ég er líka nýkomin með gróð­ur­hús og er að gera til­raunir með að rækta mat­jurtir og ávexti. Svo erum við með annan fót­inn úti í Skotlandi þar sem konan mín rekur einn leik­skóla og ég nota frið­inn til að skrifa.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi