Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Kristján um Ítalíu ævintýrið: „Ég þurfti að sleppa því að borða til að eiga fyrir tímunum“

Kristján um Ítalíu ævintýrið: „Ég þurfti að sleppa því að borða til að eiga fyrir tímunum“

Kristján Jóhanns­son, óperu­söngv­ari, er nýjasti gest­ur­inn í podcasti Sölva Tryggva­sonar. Kristján segir að lífið hafi kennt sér að eitt það allra mik­il­væg­asta sé umburð­ar­lyndi, kær­leikur og fyr­ir­gefn­ing:

,,Ítalir segja oft að við séum bara gerð úr kjöti og beinum og eiga þá við að við séum öll bara mann­leg. Við gerum öll mis­tök og verðum að fá að eiga mögu­leika á að bæta okkur þegar við gerum mis­tök. Það mik­il­væg­asta er að vera heið­ar­leg mann­eskja og að vera heið­ar­legur bæði við sjálfan sig og aðra, en við getum mis­stigið okkur. Guð almátt­ugur fyr­ir­gaf og Jesú Kristur fyr­ir­gaf og við verðum sjálf að kunna að fyr­ir­gefa. Og fólkið þarna úti þarf að kunna að fyr­ir­gefa mis­tökin líka, þau eru bara eðli­legur hluti af því að vera mennskur.”

Í þætt­inum lýsir hann tím­anum þegar hann ferð­að­ist um allan heim og var einn stærsti óperu­söngv­ari ver­aldar:

,,Þetta var ynd­is­legur tími að fá að ferð­ast um allan heim og koma fram í stærstu óperu­húsum heims. Við vorum ung á þessum tíma ég og Sig­ur­jóna konan mín og hún enn yngri en ég. En við ákváðum strax að við ætl­uðum að vera í þessu saman og við ferð­uð­umst saman hönd í hönd og flugum um allan heim og vorum með barnapíu líka. Þetta þótti svo­lítið skrýtið, af því að lang­flestir kollegar mínir voru bara einir ,,On the road”, en ég ferð­að­ist með alla fjöl­skyld­una mína. Konan mín spil­aði mjög stóran hlut í að láta þetta ganga svona vel og við gerðum mjög fljótt sam­komu­lag um að vera ekki meira en hálfan mánuð í sundur, þrátt fyrir öll ferða­lögin og það hefur gengið upp. Ég er ekk­ert alltaf sá besti í mann­legum sam­skiptum, en Sig­ur­jóna var algjör snill­ingur í að eiga við stjórn­endur í leik­húsum, umboðs­menn og fleiri. Mér þótti frá­bært að fá að vera laus við það, þannig að hún var í raun umboðs­mað­ur­inn minn allan þennan tíma.”

Kristján lýsir í þætt­inum tím­anum áður en hann fékk stóra tæki­færið og segir að það hafi verið mikið hark:

,,Auðvitað byrj­aði maður á ein­hverjum punkti að hugsa til þess að fara út og láta reyna á það að verða atvinnu­söngv­ari, en ég var kom­inn með fjöl­skyldu ungur og varð að borga reikn­inga og fékk enga sér­með­ferð. Ég var kom­inn með rekstur á litlu fyr­ir­tæki, sem gekk vel, en það var mikil vinna og ég vann myrkr­anna á milli. Ég varð í raun að vinna eins og skepna og fylla alla vasa af pen­ingum og hoppa svo í djúpu laug­ina og panta mér bara flug út aðra leið­ina til Ítalíu. Það var svo eng­inn dans á rósum þegar ég kom þangað, en ég ætl­aði bara að meika það og var alveg harður á að koma ekki heim með skottið á milli lapp­anna. Það var ekk­ert plan B, það var bara þetta eða kúlan í haus­inn!!,” segir Kristján og heldur áfram:

,,Stundum var ég orð­inn hel­víti blankur og kenn­ar­arnir voru dýrir, þannig að það kom stundum fyrir að ég þurfti að sleppa því að borða í 1-2 daga til að eiga fyrir tímunum. Það fór allur pen­ing­ur­inn á tveimur árum og ég var skít­blankur heil­lengi. Pabbi átti vini í bænda­stétt sem sendu mér annað slagið smá pen­ing og þá var ég glaður að eiga fyrir leigu og mat þann mán­uð­inn. En þetta var mikið hark alveg þangað til að ég náði fyrsta ,,gigg­inu”. Eftir það fór allt af stað.”

Kristján er búinn að vera á Ítalíu lengi og elskar land og þjóð:

,,Ítalía er ynd­is­leg og mér finnst ég á ein­hvern hátt vera hálf­gerður Ítali. Þetta er upp til hópa ynd­is­legt fólk, opið og til­finn­inga­ríkt og getur rif­ist og elskað þig á sama tíma. Stutt í brosið og eld­inn. Það er ekk­ert gaman ef það er ekki smá hiti í hlut­unum og líf í fólki. Það er ,,dead bor­ing” að vera alltaf sam­mála öllum og það verður bara flatneskja,” segir Kristján, sem seg­ist ekki hafa tekið það mikið inn á sig að finna öfund frá Íslandi í gegnum árin:

,,Það er í raun bara hrós að fá öfund og nei­kvæðni frá ákveðnum hópi fólks og maður verður að læra að horfa á það þannig. Sveita­mennska og bak­tal verður alltaf til staðar og maður getur ekki breytt því. En allir sem láta eitt­hvað til sín taka eru á milli tann­anna á fólki og það er bara óhjá­kvæmi­legur hluti af þessu öllu saman.”

Það gustaði gríð­ar­lega um Kristján árið 2004, þegar öll þjóðin hafði skoðun á honum í kringum umfjöllun fjöl­miðla um styrkt­ar­tón­leika fyrir lan­veik börn. Kristján fer í þætt­inum yfir málið allt:

,,Þetta var ótru­leg atburð­ar­rás og það var allt tekið úr sam­hengi og í raun bara bein­línis logið upp á mig í fjöl­miðlum. Ég hef alla tíð verið mjög ötull í að láta gott af mér leiða, ekki síst eftir að ég missti þáver­andi kon­una mína úr krabba­meini fyrir þrí­tugt. Þess vegna var þetta sér­stak­lega sárt. Það var mik­ill fjöldi fólks á svið­inu á þessum tón­leikum og það fengu allir borgað fyrir vinn­una sína. Og sumir hafa lík­lega aldrei verið á hærri launum en þarna. Ljósa­menn, hljóð­færa­leik­arar, hljóð­menn, söngv­arar, allir voru á launum. Kaupþing Banki styrkti tón­leik­ana og keypti afrakst­ur­inn og setti á plötu. Launin mín komu þess vegna frá Kaup­þingi og höfðu ekk­ert með inn­komu tón­leik­anna að gera. Bankinn keypti tón­leik­ana og borg­aði því vinnu allra. En þetta var sett upp eins og að ég hafi einn fengið borgað og tekið launin mín beint frá mál­efn­inu sjálfu, segir Kristján og heldur svo áfram:

,,Ég fékk meira að segja borgað í Evrum frá bank­anum, þannig að það að halda því fram að þetta kæmi af ágóða tón­leik­anna var algjör­lega galið. Svo var ég plat­aður í Kast­ljósið. Ég mætti þangað til að kynna plötu og vissi ekki að ég væri að fara að tala um þetta mál. En á sama tíma og ég er að und­ir­búa mig undir að fara í Kast­ljósið er verið að lesa frétt­ina um mig hinum megin í hús­inu á RÚV. Ég var með plötu í hend­inni og hélt að ég væri að fara að tala um tón­list­ina mína í Kast­ljós­inu. Svo var bara komið í bakið á mér með alls konar spurn­ingar í beinni útsend­ingu án þess að ég hefði hug­mynd um að það væri í vændum. En ég náði nú að hrista þetta frekar fljótt af mér. Shakespe­are sagði ein­hvern tíma: ,,Fólk er fífl” og ég hafði það í huga í gegnum þetta ferli. En það er ekk­ert sem þú getur gert þegar fjöl­miðl­arnir fara af stað með þessum hætti og hringekjan fer af stað. Þetta var í raun og veru bara eins og árás og það er erfitt að skilja hvernig arg­asta bull getur náð svona miklu flugi. Það er ekki fyrr en löngu síðar þegar rykið er sest sem hægt er að tala um þetta af ein­hverju viti.”

Þáttinn með Krist­jáni og alla aðra Podcastþætti Sölva Tryggva­sonar má nálg­ast inni á: https://solvitryggva.is

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi