Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Kettir drepnir í dýragildrum á lóð Snarfara: „Ég á ekki til orð hvað þetta er mikil mannvonska“

Kettir drepnir í dýragildrum á lóð Snarfara: „Ég á ekki til orð hvað þetta er mikil mannvonska“

Fyrrum stjórn­ar­maður hjá sigl­inga­kúbbnum Snarfara er gefið að sök að hafa komið fyrir dýra­gildrum á lóð klúbbs­ins með þeim afleið­ingum að þar hafa kettir drep­ist. Í yfir­lýs­ingu frá Snarfara er við­ur­kennt að und­an­farin ár hafi kettir veiðst í gildr­inar en að þær hafi verið settar upp til að veiða minka og að það hafi verið gert án sam­þykkis stjórnar.

„Það er því þyngra en tárum taki, að sú ömur­lega staða hafi komið upp, að sak­lausir kettir hafi lát­ist í minka­gildrum sem komið hafði verið fyrir á svæði félags­ins,“ segir meðal ann­ars í tili­ynn­ing­unni sem félagið birti á Facebook-síðu sinni.

Snarfari er rót­gró­inn sigl­inga­klúbbur í Reykja­vík fyrir skemmti- og sport­báta­eig­endur. Alls eru tæp­lega 400 félags­menn og um 140 bátar skráðir í Snarfara. Aðal­svæði Snarfara er í Nausta­vogi. Þar er félags­heim­ili, þrjár bryggjur ásamt þjón­ustu­bryggju, rampur og þvotta­að­staða, við­gerð­ar­skemma og stórt land­svæði fyrir báta­stæði á landi svo fátt eitt sé nefnt.

Sigl­inga­klúbb­ur­inn hafnar því hins vegar að gildr­urnar hafi verið settar upp með vit­und félags­ins. „Gildrur þessar eru ekki og hafa ekki verið á vegum Snarfara. Stjórn Snarfara er ekki kunn­ugt um að neinar gildrur séu á svæði félags­ins, hvorki minkagi­drur né aðrar til veiða á dýrum, enda alger­lega óheim­ilt. Stjórnin harmar þessi atvik og vill full­vissa alla hlut­að­eig­andi um, að hún mun gera allt sem í hennar valdi stendur til að svona ger­ist ekki aftur,“ segir stjórn Snarfara.

Á síðu Snarfara logar allt vegna máls­ins og eru lang­flestir þeirra sem tjá sig undir færsl­unni þeirrar skoð­unar að til­kynn­ing stjórn­ar­innar sé aðeins yfir­klór. Sanda Ósk er ein þeirra. „Hvernig má það vera að eng­inn á vegum félags­ins hafi tekið eftir þessum gildrum á YKKAR svæði? Þið eruð með mynda­vélar að vakta svæðið allan sól­ar­hringin. Ég á ekki til orð hvað þetta er mikil mann­vonska,“ segir Sandra. Og Sandra Karen er sam­mála. „Eru þið búin að rann­saka þetta eitt­hvað nánar?? Hvað voru gildr­urnar lengi þarna og hversu margir kettir hafa drep­ist og hvar eru hræin?,“ spyr hún.

Diðrik gefur líka lítið fyrir yfir­lýs­ingu stjórnar Snarfara. „Ég held að þeir haldi að við séum heimsk. Það væri flott næsta skref að fá að vita hvað gildr­urnar voru uppi í mörg ár, hvað þetta eru margir kettir yfir árin og hvað var gert við hræin,“ segir Diðrik. Undir þetta tekur Stefán. „Og fólk á að trúa því að þið hafið aldrei vitað neitt? Einmitt.“

Og Sunna vill aðgerðir hið fyrsta. „Hefur þessi mađur veriđ rek­inn úr félag­inu? Eru minkar vanda­mál á svæđinu? Ef ekki finnst mér klárt mál gildran var sett til ađ veiđa ketti. Hvađ var gert viđ alla kett­ina sem hafa lent í gildrunni?,“ spyr Sunna. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi