Ritstjóri Wikileaks, Kristinn Hrafnsson er þekktur fyrir kaldhæðna og hárbeitta pistla sína á Facebook og víðar. Í nýjasta pistli sínum beinir hann spjótum sínum að nýrri vináttu Frakklandsforseta og forseta Venesúela.

„Mér varð hugsað til Gaddafí sáluga þegar ég sá þetta myndband, mannsins sem var inni eða úti í alþjóðasamfélaginu eftir því hvernig olíuverð hökti á markaði. Hann fór frá þvi að vera hataður skjólveitandi hryðjuverkamanna eftir Lockerbie í að vera virðulegur ríkisleiðtogi sem gat boðið breska forsætisráðherrandum Tony Blair í tedrykkju í Líbísku eyðimörkinni – og svo aftur í að vera hatað skrímsli sem var murkað lífið úr í holræsi með byssusting í afturendanum við mikinn fögnuð Hillary Clinton, þáverandi utanríkisráðherra Bandaríkjanna.
Nú er Maduro í Venesuela á virðulega stallinum – enda horfa menn löngunaraugum til olíu landsins. Macron Frakklandsforseti daðrar við hann með bróðurást og vill vera í bandi – jafnvel memm,“ skrifar Kristinn í upphaf færslunnar en myndbandið sem hann á við er myndband sem sýnir kærleika á milli forsetanna tveggja. Og hann hélt áfram:„Nú bíð ég spenntur eftir því hvað ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur gerir. Muni ég rétt viðurkennir hún ekki Madoro sem lögmætan forseta og ákvað að leggja lag sitt við fósturson frú Langley í Virginu, hinn geðþekka Juan Guaidó. Frakklandsforseti virðist á öðru máli en Katrín Jakobsdóttir og utanríkisismálayfirvöld í hennar ríkisstjórn. Svo er vert að hafa í huga að íslensk landamæri eru líka galopin fyrir flóttafólki sem er að flýja, að sögn, þennan nýja vin Macrons. Lögregla er ekki að elta það uppi með handjárn á lofti í skjóli nætur. Hvað segir Katrín nú – eða ráðherrann með mörgu nöfnin? Guaidó eða Madúró?“
Í lokaorðum sínum bendir hann á kaldhæðnina í þessu öllu saman.
„Olía er ástardrykkur sem hefur sérstök áhrif á kærleik milli ríkja. Vonandi er ég ekki einn að sjá íoroníuna í þessum olíuborna ástarfundi Maduro og Macron á hliðargöngum loftslagsráðstefnunnar þar sem menn inni í sal eru að tala sig hása um hættuna sem stafar af brennslu svartagullsins.“





















Athugasemdir