Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Einar bjargaði líklega mannslífi með því að æfa í 50 klukkutíma: „Einar minn. Það er ótrúlegt“

Einar bjargaði líklega mannslífi með því að æfa í 50 klukkutíma: „Einar minn. Það er ótrúlegt“

„Fulltrúi Píeta sam­tak­anna sagði svo að það væri ekki hægt að lýsa með orðum hvað væri búið að ger­ast í sam­fé­lag­inu und­an­farna daga: „Við finnum þetta um allt land. Vit­und­ar­vakn­ingin sem varð í þessu verk­efni, Einar minn. Það er ótrú­legt.“ Einar safn­aði ekki bara pen­ingum sem eiga eftir að nýt­ast Píeta sam­tök­unum vel. Fólk sem fylgd­ist með honum hafði líka sam­band við Píeta og leit­aði sér hjálpar og þar með var mark­miði náð.“

Svo segir í stöðu­færslu lík­ams­rækt­ar­stöðv­ar­innar Afrek þar sem farið er yfir nið­ur­stöðu afl­raunar Einars Hansberg. Hann lauk í gær­kvöldi 50 klukku­tímum af við­stöðu­lausum æfingum. Til­gang­ur­inn var göf­ugur því með þessu vildi Einar vekja athygli á mik­il­vægu starfi Píeta-sam­tak­anna á Íslandi. Kveikjan af þol­raun­inni var and­lát móð­ur­bróður Einars sem lést fyrir ári síðan, ein­ungis 56 ára.

Líkt og fyrr segir þá telja sam­tökin að átak Einars hafi jafn­vel bjargað manns­lífi þar sem fólk leit­aði sér hjálpar eftir að hafa fylgst með honum. Hér fyrir neðan má lesa færslu Afreks í heild sinni en þar kemur jafn­framt fram hvernig sé hægt að leggja mál­efn­inu lið.

Takk fyrir okkur, Einar!

Eins og Einar sagði sjálfur þegar fagn­að­ar­lát­unum lauk eftir síð­ustu rétt­stöðu­lyft­una klukkan 17.57 á sunnu­dag: Auðvitað þarf maður ekki að grilla á sér lík­amann í 50 klukku­tíma til að sýna að maður sé góð mann­eskja. Hann ákvað samt að gera það fyrir mál­efni sem skiptir máli.

Fulltrúi Píeta sam­tak­anna sagði svo að það væri ekki hægt að lýsa með orðum hvað væri búið að ger­ast í sam­fé­lag­inu und­an­farna daga: „Við finnum þetta um allt land. Vit­und­ar­vakn­ingin sem varð í þessu verk­efni, Einar minn. Það er ótrú­legt.“

Einar safn­aði ekki bara pen­ingum sem eiga eftir að nýt­ast Píeta sam­tök­unum vel. Fólk sem fylgd­ist með honum hafði líka sam­band við Píeta og leit­aði sér hjálpar og þar með var mark­miði náð.

Við í Afreki erum ótrú­lega þakk­lát fyrir að fá að hýsa þetta verk­efni og taka þátt í því með Einari, fjöl­skyldu hans og vinum. Við munum aldrei gleyma þessum dögum.

Við fyrstu sýn leit þetta út fyrir að vera bara hraustur maður að fram­kvæma margar og krefj­andi æfingar í langan tíma en á þessum 50 klukku­stundum tókst Einari að kjarna algjör­lega það sem þurfti að koma á fram­færi: Verum til staðar fyrir hvort annað, hlustum. Hann sýndi okkur að sterkir strákar gráta, þiggja aðstoð og halda áfram. Og auð­vitað orð­aði hann þetta best sjálfur uppi á kassa í Skóg­ar­hlíð eftir 50 klukku­stunda puð: „Við erum ekki bara hér fyrir okkur sjálf, heldur erum við hérna fyrir aðra líka.“

Takk fyrir að leyfa Afreki að vera hluti af þessu verk­efni, Einar — að æfa í 50 klukku­tíma er rosa­legt afrek en mesta afrekið er að vera með svona risa­stórt hjarta

Píeta-sím­inn er op­inn all­an sól­ar­hring­inn: 552-2218

Reikn­ings­núm­er sam­tak­anna fyr­ir frjáls fram­lög: 0301-26-041041, Kt: 410416-0690

Embætti land­lækn­is bend­ir á að mik­il­vægt sé að þeir sem glíma við sjálfs­vígs­hugs­an­ir segi ein­hverj­um frá líðan sinni, hvort sem er aðstand­anda eða hafi sam­band við Hjálp­arsíma Rauða kross­ins 1717, eða á net­spjalli 1717.is, við hjúkr­un­ar­fræð­ing í net­spjalli á heilsu­vera.is eða við ráð­gjafa í síma Píeta-sam­tak­anna s. 552-2218. Píeta-sam­tök­in bjóða einnig upp á ráð­gjöf og stuðn­ing fyr­ir aðstand­end­ur þeirra sem glíma við sjálfs­vígs­hugs­an­ir. Fyr­ir þau sem misst hafa ást­vin í sjálfs­vígi bend­ir land­lækn­is­emb­ættið á stuðn­ing í sorg hjá Sorg­armið­stöð­inni í síma 551-4141 og hjá Píeta-sam­tök­un­um í síma 552-2218

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi