Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Sigmar segir: „Klúður stjórnvalda kemur í veg fyrir að meira verði selt í bankanum í bráð“

Sigmar segir: „Klúður stjórnvalda kemur í veg fyrir að meira verði selt í bankanum í bráð“
Sigmar Guð­munds­son.

Alþing­is­mað­ur­inn Sigmar Guð­munds­son segir að það sé ljóst á skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar um Íslands­banka­söl­una, sem birt hefur verið á vef stofn­un­ar­innar, „að þess­ari rík­is­stjórn eru ákaf­lega mis­lagðar hendur við að skipu­leggja stór verk­efni.“

Bætir við:

„Stærstu tíð­indin eru auð­vitað þau að þetta klúður stjórn­valda kemur að öllum lík­indum í veg fyrir að meira verði selt í bank­anum í bráð. Þar liggja miklir fjár­munir, tugir millj­arða, sem til stóð að losa um til hags­bóta fyrir rík­is­sjóð. Lestur skýrsl­unnar leiðir okkur klár­lega til þeirrar nið­ur­stöðu að óhjá­kvæmi­legt er að rann­sókn­ar­nefnd alþingis verði skipuð sem fyrst, því það kemur skýrt fram í skýrsl­unni að Rík­is­end­ur­skoðun tók ekki til athug­unar fjöl­marga þætti sem brýnt er að skoða.“

Sigmar bendir á að þar megi „nefna að ákvarð­ana­takan í ráð­herra­nefnd­inni er ekki skoðuð og reyndar er öll athugun á póli­tískri ábyrgð víðs fjarri, líkt og bent var á að yrði óhjá­kvæmi­lega nið­ur­staðan hjá Rík­is­end­ur­skoðun, enda rann­sókn­ar­hlut­verk hennar mun afmark­aðra en hjá sér­stakri rann­sókn­ar­nefnd.

Bara sú stað­reynd, að einn ráð­herra í ráð­herra­nefnd­inni sem fór með málið, var­aði við því að fara þessa leið og sá fyrir klúðrið, kallar á nán­ari skoðun en nú liggur fyrir.

Bráða­nið­ur­lagn­ingu banka­sýsl­unnar í eft­ir­leiknum þarf líka auð­vitað að rann­saka. Þá bendir Rík­is­end­ur­skoðun á að ekki er tekin afstaða til þess hvort þetta hafi verið rétti tím­inn til að selja eða til þeirra sem fengu að kaupa. Eða hvort rétta fyr­ir­komu­lagið hafi verið valið.“

Sigmar telur ýmis­legt í skýrsl­unni vekja athygli:

„Þótt það komi skýrt fram í skýrsl­unni að fleira þurfi að rann­saka og skoða, er ansi margt í henni sem vekur mikla athygli. Til að mynda efa­semdir Rík­is­end­ur­skoð­unar um að rétt hafi verið og nauð­syn­legt að gefa þann afslátt af kaup­verð­inu sem varð raunin. Verðið hafi verið of lágt og of mikið mið­ast við erlenda fjár­festa. Jafnræði hafi ekki verið tryggt nægj­an­lega vel á milli fjár­festa, upp­lýs­inga­gjöf hafi ekki verið í lagi, ekki gætt að meg­in­reglum um gagn­sæi og hlut­lægni.

Rík­is­end­ur­skoðun nefnir einnig orð­spors­á­hætt­una sem var ekki tekið til­lit til. Þetta síð­ast­nefnda skiptir gríð­ar­legu máli í svona ferli, ekki síst þegar kemur að áfram­haldi sölu.“

Sigmar segir ein­fald­lega að „traustið er fokið út um glugg­ann; skýrslan er mik­ill áfell­is­dómur yfir stóru verk­efni sem er á ábyrgð rík­is­stjórn­ar­innar. Ráð­herrar hafa því miður lítið vilja kann­ast við þá ábyrgð og velt henni alfarið yfir á banka­sýsl­una. Það er ekki stór­mann­legt því það vita allir sem vilja vita að ef salan hefði gengið vel þá væru sömu ráð­herrar nú að baða sig í ljóma vel heppn­aðrar einka­væð­ingar.

Líka ráð­herrar VG sem almennt eru nú ekki mikið fyrir að selja rík­i­s­eigur. Því miður er líka nið­ur­staðan í þessu öllu sú að hægri flokknum í stjórn­ar­sam­starf­inu hefur tek­ist að slá öll áform um frek­ari sölu út af borð­inu um langa hríð, án þess að hafa ætlað sér það. Það er tals­vert afrek í sjálfu sér.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi