Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ingunn Unnsteinsdóttir Kristensen: „Heilahristingur er mjög vangreindur á Íslandi“

Ingunn Unnsteinsdóttir Kristensen: „Heilahristingur er mjög vangreindur á Íslandi“
(Mynd: Skúli Andr­és­son.)

„Það hefur gríð­ar­lega mikla þýð­ingu fyrir mig að fá tæki­færi til þess að sinna þessu og er Opni háskól­inn að sinna flottu starfi. Ég er ekki að segja að ég sé að byrja minn feril beint innan háskóla­sam­fé­lags­ins en ég er búin að vera í aka­dem­í­unni í nokkur ár sem dokt­or­snemi. Það er mjög spenn­andi að fá að halda áfram að starfa innan háskól­ans en þó með allt öðrum hætti en ég er búin að vera að gera. Þetta er gríð­ar­lega mikið tæki­færi til að vaxa í starfi,“ segir Ingunn Unn­steins­dóttir Kristen­sen sem nýlega var ráðin sem for­stöðu­kona Opna háskól­ans í Háskól­anum í Reyjavík og er nýbúin að verja dokt­ors­verk­efni sitt við sál­fræði­deild Háskól­ans í Reykja­vík.

Mig langar til að koma með meiri tengsl inn í aka­demsísku deild­irnar í HR.

„Mig langar til að koma með minn akademíska bak­grunn inn í þetta umhverfi. Það er frá­bært teymi sem er að vinna hérna sem er að vinna flott starf og ég er spennt að fá að móta stefnu Opna háskól­ans með þeim. Mig langar til að koma með meiri tengsl inn í aka­demsísku deild­irnar í HR; það er nátt­úr­lega gríð­ar­leg þekk­ing sem er hérna í húsi og flottur grund­völlur fyrir flottu og öfl­ugu sam­starfi á milli deilda og þá með Opna háskól­anum.“

Ingunn talar um hve heppin hún hefur verið með fólk sem hún hefur unnið með og hjálpað henni að vaxa í starfi. „Ég hef til dæmis haft flottar kven­fyr­ir­myndir þegar kemur að starfi mínu und­an­farin ár. Dr. María Kristín Jóns­dóttir er ein þeirra sem hafa markað sér von­andi var­an­legan sess í mínu lífi en hún var aðal­leið­bein­andi á verk­efn­inu mínu og sam­starfið við hana hefur verið bæði lær­dóms­ríkt og gef­andi. Dr. Hafrún Krist­jáns­dóttir, Dr. Sigrún Helga Lund og Dr. Helga Ágústa Sig­ur­jóns­dóttir voru einnig hluti af nefnd­inni minni og var virki­lega gott að vera með svona öfl­ugt stuðn­ings­net í kringum sig. Hafrún og María hafa reynst mér sér­stak­lega vel og verður gaman að fá að halda áfram að vinna með þem í HR þó það verði undir öðrum for­merkjum.” María Jóns­dóttir  er pro­fessor við sál­fræði­deild HR og Hafrún Krisjáns­dóttir er deild­ar­for­seti íþrótta­fræði­deildar.

(Mynd: Skúli Andr­és­son.)

Áhrif heilahristings

Ingunn varði nýlega dokt­ors­verk­efni sitt við sál­fræði­deild HR. Opin kynn­ing á verk­efn­inu verður svo 9. des­em­ber.

„Þetta er stórt verk­efni, stór rann­sókn, og ber yfir­skrift­ina Heila­hrist­ingur meðal kvenna á Íslandi – Marg­þátta rann­sókn. Rann­sókn­inni er ekki lokið en verk­efni mitt er hluti af þess­ari stóru rann­sókn þar sem er verið að skoða heila­hrist­ing hjá íþrótta­konum og vorum við að skoða tengsl heila­hrist­ings við líðan, meðal ann­ars við þung­lyndi og kvíða og við hug­ræna færni, og lagði ég meðal ann­ars tauga­sál­fræði­leg próf fyrir þátt­tak­endur.

Ég vann líka hluta af rann­sóknni með teymi Dr. Paolo Gargiulo sem kemur allt úr verk­fræði­deild. Í þeim hluta voru íþrótta­konum boðið að taka þátt í rann­sókn í sýnd­ar­veru­leika og hafa nið­ur­stöður þess hluta nú þegar verið birtar.  Annar angi á þess­ari rann­sókn er að skoða hvort horm­óna­breyt­ingar komi fyrir hjá konum sem hafa fengið heila­hrist­ing. Lára Ósk Egg­ert­es­dóttir Claessen, dokt­or­snemi og læknir,  vinnur þann hluta undir leið­sögn Helgu Ágústu sem er sér­fæð­ingur í inn­kirtla­lækn­ingum. Við förum svo fljót­lega af stað með nýgeng­is­rann­sókn á heila­hrist­ing en hún hefur taf­ist mikið  vegna Covid. Í henni munum við fylgja eftir liðum í fót­bolta, hand­bolta og körfu­bolta og kort­leggja heila­hrist­ing yfir tíma­bilið.“

Það er þess vegna mik­il­vægt að það sé rétt fræðsla í sam­fé­lag­inu og það sé verið að rann­saka þetta.

Ingunn er spurð hvers vegna hún hafi ákveðið að taka þetta fyrir í dokt­ors­verk­efni sínu. Hún segir að þegar sér hafi verið boðið að taka þátt í þess­ari rann­sókn hafi hún verið búin að vinna sem aðstoð­ar­fram­kvæmda­stýra Mjölnis í um það bil fimm ár. „Þar vann ég með krökkum sem voru í íþrótt þar sem var hætta á að þau fengju heila­hrist­ing. Mér fannst það þess vegna ekki vera spurn­ing þegar mér var boðið að taka þátt í þessu verk­efni. Heila­hrist­ingur er mjög van­greindur á Íslandi og úrræðin sem eru í boði eru ekki mörg. Fólk veit oft ekki hvernig það á að takast á við eða glíma við ein­kenni sem geta orðið mjög alvar­leg og koma oft ekk­ert í ljós alveg strax. Það er þess vegna mik­il­vægt að það sé rétt fræðsla í sam­fé­lag­inu og það sé verið að rann­saka þetta; hvað er að ger­ast, hvað er að hafa áhrif og hvernig ein­kenni þró­ast.“

Auka aðgengi að sálfræðiþjónustu

Ingunn tók þátt í að koma á fót nokk­urs konar heila­hrist­ings­mót­töku sem kall­ast Heila­heilsa. Á heima­síð­unni stendur: „Heila­heilsa veitir fag­lega og trausta þjón­ustu þar sem áhersla er lögð á að efla heila­heilsu og að bæta líðan. Við bjóðum upp á sér­hæfða þjón­ustu við ein­kennum heila­hrist­ings, sál­fræði­með­ferð, lík­ams­þjálfun, nám­skeið og þjón­ustu við fyr­ir­tæki, fag­að­ila og stofn­anir. Markmið okkar er að auka aðgengi að sál­fræði­þjón­ustu og efla þjón­ustu við þá sem glíma við ein­kenni heila­hrist­ings.“ Ingunn er ein af eig­endum Heila­heilsu sem vinna í nánu sam­starfi við Kim og sjúkra­þjálf­arateymi hans í Kim end­ur­hæf­ingu

Við erum að fá til okkar yngra fólk og þá sér­stak­lega íþrótta­fólk sem er að glíma við ein­kenni.

„Ólína Við­ars­dóttir sál­fræð­ingur, sem er einn af eig­end­unum Heila­heilsu, er aðal­sprautan í þessu verk­efni og er búin að leiða það af gríð­ar­lega miklum krafti. Heila­heilsa er búin að vera starf­rækt í rúmt eitt og hálft  ár og erum við að taka á móti fólki sem er að glíma við ein­kenni heila­hrist­ings; bæði fólk sem er að glíma við lang­tíma­af­leið­ingar og fólk sem eru nýbúið að fá heila­hrist­ing. Við erum að fá til okkar yngra fólk og þá sér­stak­lega íþrótta­fólk sem er að glíma við ein­kenni. Það er mik­il­vægt þegar fólk fær heila­hrist­ing að koma strax í eitt­hvað ferli til þess að takast á við ein­kennin og þá undir hand­leiðslu sér­fræð­inga.“

Fjöl­skyldan. Hjónin Ingunn og Haraldur Ingi Shoshan og syn­irnir Mikael Artúr, sem er sá eldri, og Hinrik Alex­ander.

Ágætis æfing í núvitund

Ingunn, sem dreymdi í æsku um að verða heila­skurð­læknir en varð svo doktor í sál­fræði, ólst upp í Vogum á Vatns­leysu­strönd og segir hún að því hafi fylgt mikið frelsi að alast þar upp. „Það þekktu allir alla í svona litlum bæ og maður var stundum fram á nótt að leika sér úti og það voru allir að fylgj­ast með manni og það var ákveðið öryggi í því.“

Það var stutt í fjör­una og oft fór hún þangað og lék sér í fjör­unni og í öld­unum. Faðir Ingunnar var sjó­maður og seg­ist hún bera ótta­blandna virð­ingu fyrir haf­inu.

Ég veit auð­vitað í dag að það gekk ýmis­legt á þarna úti á þessum tíma og í dag er ýmis­legt sem mig langar að vita varð­andi ætt­leið­ing­ar­ferlið og hvernig staðið hafi verið að öllu þarna úti.

Ingunn og bróðir hennar voru ætt­leidd frá Sri Lanka sama árið, árið 1985, en hann er fimm mán­uðum eldri. „Ég ólst upp við það að for­eldrar mínir sögðu að ég væri ofboðs­lega rík og ætti fjöl­skyldu á Íslandi og aðra á Sri Lanka og þau sögðu að þau hafi fengið að taka mig heim til Íslands af því að fjöl­skyld­unni úti hefði þótt svo vænt um mig en hefði ekki getað hugsað um mig vegna þess að þau voru svo fátæk. Ég veit auð­vitað í dag að það gekk ýmis­legt á þarna úti á þessum tíma og í dag er ýmis­legt sem mig langar að vita varð­andi ætt­leið­ing­ar­ferlið og hvernig staðið hafi verið að öllu þarna úti.“

Hún segir að sig hafi aldrei skort neitt né verið leit­andi varð­andi upp­runa sinn en hún fór þó árið 2015 með eig­in­manni sínum, Haraldi Inga Shoshan, til Sri Lanka meðal ann­ars til að skoða landið og upp­lifa menn­ing­una. „Það var ynd­is­leg ferð og ég hitti fullt af fólki þar úti sem tók mér opnum örmum.“

Ingunn er félags­lynd og seg­ist í gegn­umt tíð­ina hafa reynt að láta til sín taka og var í nem­enda­fé­lag­inu í grunn­skóla, var í kór í Fjöl­brauta­skóla Suð­ur­nesja og í háskóla­kórnum þegar hún stund­aði sál­fræð­ini­nám við Háskóla Íslands en hún var einnig í stjórn Anima, nem­enda­fé­lags sál­fræði­nema. Hún seg­ist ekki hafa verið búin að æfa lengi í Mjölni þegar hún var komin þar í stjórn.

Ingunn er með með blátt belti í brasil­ísku jiu jitsu. „Ég byrj­aði að æfa hjá Mjölni árið 2011. Ég var í sál­fræði­námi á þeim tíma og voru vinir mínir að fara á æfingar hjá Mjölni og þegar ég fór á fyrstu æfing­una þá heill­að­ist ég af þess­ari íþrótt.“

Ég segi oft að þetta sé gríð­ar­lega góð æfing í núvit­und.

Hún seg­ist líta á jiu jitsu sem ágætis æfingu í núvit­und. „Maður mætir á æfingu og þar er fólk með ýmiss konar bak­grunn. Það þarf að reiða sig á tækn­ina til að yfir­buga and­stæð­ing­inn og snúa stöð­unni við. Ég segi oft að þetta sé gríð­ar­lega góð æfing í núvit­und en maður þarf að vera fók­user­aður inn á við. Maður þarf að spá mikið í hvað er að ger­ast í augna­blik­inu, hvað lík­am­inn getur gert og hver næstu skref eru. Maður getur á meðan ekki mikið verið að hugsa um aðra hluti eða hvað er að ger­ast fyrir utan. Maður þarf að vera í núinu og vera svo­lítið með fók­us­inn inn á við eins og ég sagði.“

Fordómar

Ingunn var líka um tíma í stjórn Íslenskrar ætt­leið­ingar. „Þetta er mál­efni sem mig langar til að láta mig varða meira. Það var lær­dóms­ríkt ferli að kynn­ast sögu ætt­leið­ingar á Íslandi og hvað hefur breyst.“

Ingunn hefur í gegnum árin fundið fyrir ýmiss konar for­dómum í sinn garð vegna dökks húð­litar síns en tekur fram að ekki hafi alltaf verið um ill­kvittni að ræða. „Stundum segir fólk hluti í hugs­un­ar­leysi og áttar sig ekki á vigt þess sem það er að segja. En þegar kemur að bak­runni eða húð­lit fólks þá má fólk nú líka alveg staldra við og hugsa áður orðin eru látin falla.

Það hefur ýmis­legt verið látið flakka í gegnum tíð­ina.

Það er ýmis­legt sem hefur gerst sem hefur mótað mig. Ég hef oft þurft að eiga í krefj­andi sam­skiptum við fólk og það mark­aði djúp spor og hefur haft áhrif á það hver ég er í dag. Ég held að margir með dökkt hör­und hafi ein­hvern tím­ann upp­lifað for­dóma á Íslandi. Ég hef fengið að heyra ýmis­legt og ýmis­legt hefur ekki verið sagt í illri men­ingu en oft fattar fólk ekki hvað það er að segja. Það hefur ýmis­legt verið látið flakka í gegnum tíð­ina. Þegar ég var yngri þurfti ég oft að segja að ég væri íslensk og tal­aði íslensku. Þá upp­lifði ég mig stundum ekki sem hluta af hópnum. Mér fannst ég þurfa að velja hvernig ég skil­greindi minn bak­runn, ann­að­hvort þurfti ég að vera alís­lensk eða útlensk. En eftir að ég varð eldri og sjálfsör­ugg­ari varð­andi það hver ég er, sem fólst meðal ann­ars í því að horfast í augu við mína kyn­hneigð og það að kannski eru strákar ekki bara aðal­málið, þá skiptir það mig minna máli hvernig ég skil­greini mig. Allt sem ég hef lent í hefur mótað mig og hjálpað mér á þeirri veg­ferð. Það að vera ætt­leidd lýsir fjöl­þættum bak­runni og kannski oft flók­inni sögu og það er allt í lagi.“

Ingunn og eig­in­maður hennar eiga tvo unga syni sem fædd­ust báðir á meðan móðir þeirra var í dokt­ors­nám­inu. „Það að eiga ung börn í námi hjálp­aði klár­lega til við að for­gangs­raða og setja hlut­ina í sam­hengi þegar það var álag. Og þó það hafi oft komið krefj­andi tímar þá hefði ég eig­in­lega ekki viljað gera það öðru­vísi; þeir hjálp­uðu mömmu sinni alveg við að klára þetta. Núna hlakka ég bara til næsta kafla og hlakka til að takast á við ný og spenn­andi verk­efni.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi