Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Lífsreynsla karla gerði Jóhönnu orðlausa – „Þeir kjósa frekar að fela sársauka sinn‘‘

Lífsreynsla karla gerði Jóhönnu orðlausa – „Þeir kjósa frekar að fela sársauka sinn‘‘

„Mér finnst dálítið grun­sam­legt hvað íslenskir karl­menn hafa gert lítið að því að ræða til­finn­inga­mál sín, miðað við það sem gengur og ger­ist í nágranna­löndum okkar,‘‘ sagði Jóhanna Sveins­dóttir í við­tali við DV. Viðtalið birt­ist þann 19.októ­ber árið 1985 en hafði Jóhanna nýlega lokið við að skrifa bók um til­finn­inga­líf karl­manna. Bókin fékk nafnið Íslenskir elsk­hugar en við­talið hlaut tölu­verða athygli á sínum tíma. Jóhanna sagði í við­tal­inu að margir hafi í fyrstu mis­skilið um hvað bókin fjall­aði og sumir hafi trúað því að hún væri ein­ungis að skrifa um kyn­líf íslenskra karl­manna. Um þá karl­menn sem gönt­uð­ust með skrif Jóhönnu sagði hún; „Þetta eru kannski þeir menn sem springa með hvað mestum látum drukknir eða við ann­ar­legar aðstæður. Þessi við­brögð segja meira um þá sjálfa en mína bók.” Jóhanna tók við­töl við 18 karl­menn á aldr­inum 20—75 ára. Spurði hún um til­finn­ingar þeirra vítt og breitt, ást­ina, vin­átt­una, kyn­hlut­verk og karl­mennsku. Auk þess spurði hún um afstöðu þeirra til jafn­rétt­is­bar­áttu kvenna og sagði hún ekki hafa verið annað hægt en að minn­ast á kyn­lífið. Aðspurð hvernig hafi gengið að fá menn til þess að taka við­tölin við sagði hún færri hafa kom­ist að en vildu.

„Þeir kjósa frekar að fela sárs­auka sinn undir kald­rana­legum eða hálf­kær­ings­legum hjúpi. Oft þarf aðstoð Bakkusar til að þessi hjúpur rofni og þá með býsna ofsa­fengnum hætti. Þar fyrir utan hefur brenni­vínið verið alltof snar þáttur í íslenskri eró­tík. Einn við­mæl­andi minn orðar þetta þannig að íslenska þjóðin þurfi ákveðið magn af brenni­víni til að við­ur­kenna að hún hafi nátt­úru­legar kenndir. Þessi maður, sem er á miðjum aldri og bjó lengi á meg­in­landi Evrópu, kvartar líka undan því að sið­ferð­is­stað­all íslensks kven­fólks sé miklu lægri en á meg­in­landi Evrópu. Hér séu konur til í tuskið en á lítt sjar­mer­andi hátt: í pör­un­ar­leikjum kynj­anna þurfi menn helst að drekka hálfa flösku af brenni­víni og troða hálfri gul­rót upp í kon­una til að sjá sama ástríðu glampann í augum hennar og edrú kyn­systur hennar suður í álfu á róm­an­tískristund. Ekki legg ég dóm á þetta fremur en annað en það þarf engum að koma á óvart að brenni­víns­drykkja komi tals­vert við sögu í frá­sögnum við­mæl­end­anna,” sagði Jóhanna.

Sagði hún að ýmis­legt af lífs­reynslu þeirra, ekki síst úr upp­eld­inu, hafi gert hana orð­lausa. Karlmenn sem höfðu farið í háskóla­nám áttu erf­ið­ara með að vera ein­lægir en hinir. Aðspurð hvers vegna hún hafi ekki skrifað bók um til­finn­ingar íslenskra kvenna sagði hún; „Ég held að þær séu full­færar um það sjálfar. En mér þótti með­bræður mínir örlítið hjálp­ar­þurfi í þessum efnum og því gaf ég þeim orðið. En þessi bók afsannar að mínu mati þá rang­hug­mynd að íslenskir karl­menn geti ekki talað um til­finn­ingar sínar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi