Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Sigurður lögmaður segir ofbeldismenn fá skjól hjá RÚV: „Því miður getur enginn sagt RÚV upp“

Sigurður lögmaður segir ofbeldismenn fá skjól hjá RÚV: „Því miður getur enginn sagt RÚV upp“
Sigurður G. Guð­jóns­son

Hæstar­rétt­ar­lög­mað­ur­inn Sigurður G. Guð­jóns­son er æfur yfir því að RÚV sé að sýna beint frá HM í knatt­spyrnu karla sem fram fer í Katar. Á sama tíma og meintir íslenskir ofbeld­is­menn fá ekki spilun á tón­list sinni hjá RÚV kaupi stofn­unin sýn­ing­ar­rétt­inn að mót­inu í landi „þar sem ofbeldi og mann­rétt­inda­brot eru dag­legt brauð“ að mati lög­manns­ins.

„Því miður getur eng­inn sagt RÚV upp, en hægt er að snið­ganga útsend­ingar frá keppn­inni; gera áhorfið að engu og spilla þar með sjálfs­há­tíð RÚV í boði skatt­greið­enda og snið­ganga vörur þeirra sem kosta gleð­ina,“ segir Sigurður sem hvetur lands­menn til að fylgj­ast ekki með mót­inu hjá RÚV.

Og hann útskýrir nánar hvers vegna í nýjum pistli á Facebook.

„Stjórn­endur RÚV hafa reynt að skapa rikis­hluta­fé­lag­inu þá ímynd að þar á bæ berj­ist starfs­mann­eskjur gegn hvers kyns ofbeldi. Þess vegna fá meintir ofbeld­is­menn ekki tón­list sÍna spil­aða hjá RÚV; þeir verða ekki til.

Stjórn­endur Rík­is­út­varps­ins sáu hins vegar ekk­ert athuga­vert við að kaupa sýn­ing­ar­rétt að HM í Katar þar sem ofbeldi og mann­rétt­inda­brot eru dag­legt brauð og mann­virkin sem leikir fara fram byggðir af þrælum, hverra líf var einskis virði. Fyrir stuðn­ing við þessa ofbeld­is­menn kaus RÚV að greiða stórfé gegnum hin spilltu alþjóð­legu knatt­spyrnu sam­tök-FIFA-. Það fé bjuggu stjórn­endur RÚV ekki til heldur eru þeir að styðja ofbeldi með skattfé og aug­lýs­ingafé sem kemur frá fyr­ir­tækjum sem þykj­ast hafa ein­hverja sam­fé­lags­lega ábyrgð en eru með öllu sneidd henni eins og stjórn­endur RÚV sem alltaf eru til í að dansa kringum gull­kálfinn og haga seglum eftir vindi.

Til að kór­óna vit­leys­una og und­ir­strika hræsn­ina hefur RÚV ákveðið að senda lið af íþrótta­deild til Katar þó Ísland eigi þar engan full­trúa, nema kannski for­mann KSÍ, sem seldi aröbum í nágranna ríki Katar nýlega afnot af karla­lands­liði Íslands í nafni bar­áttu sinnar fyrir jafn­rétti og bættri stöðu kvenna í landi kaup­and­ans.

RÚV hefur að sögn ekki náð tali af for­mann­inum til að ræða þessa sölu og árang­ur­inn af jafn­rétt­is­spjalli hennar við arabana, enda fer hún alltaf í felur þegar flett er ofan af getu- og prinsipp­leysi hennar. Kannski nær íþrótta­deild RÚV við­tal við for­mann­inn í sand­inum og sól­inni í Katar, þar sem þau fá sam­eig­in­lega notið afrakstur ofbeldis stjórn­valda þar í landi. Rann­sókn­ar­blaða­menn­irnir á RÚV hafa ekki treyst sér til Katar til að bera við­bjóð­inn sem hefur þar við­geng­ist berum augum. Það er of hættu­legt fyrir þær hetjur að fara mikið út fyrir dyr útvarps­húss­ins.

RÚV ætti fyrir hverja útsend­ingu frá HM í Katar í nafni bar­áttu fyrir bættum heimi að sýna brot af sögu þeirra í það minnsta 6.500 verka­mann sem lét­ust við gerð þeirra mann­virkja sem skapa umgjörð um útsend­ing­una og opna söfn­un­ar­reikn­ing fyrir þá sem ekk­ert eiga en gerðu HM í Katar mögu­legt. Sú saga er nokkuð vel þekkt og hefur verið sýnd í það minnsta á nor­rænum sjón­varps­stöðvum nú í aðdrag­anda HM. HM er ekki hátíð fót­bolt­ans heldur minn­is­varði um spill­ingu og mann­rétt­inda­brot sem RÚV vill hampa.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi