Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Í góðum málum/Í slæmum málum

Í góðum málum/Í slæmum málum
Allir þurfa góða granna

Í góðum málum

Í góðum málum um þessi dægrin eru auð­vitað tug­þús­undir íslenskra aðdá­enda sápu­óp­er­unnar frá Ástralíu, Nágranna en nýlega var til­kynnt um end­ur­komu þátt­anna, nokkrum mán­uðum eftir að loka­þátt­ur­inn fór í loftið. Mikil sorg greip um sig fyrr á árinu víða um heim, síst minna á Íslandi en ann­ars staðar, er til­kynnt var að fram­leið­endur þátt­anna hyggð­ust hætta með þá eftir 37 far­sæl og skemmti­leg ár á skjánum.

Dramat­ískar ljós­myndir birt­ust í blöð­unum sem sýndu grát­andi leik­ara og örvinglaða starfs­menn Ramsey-strætis þegar frétt­irnar voru að ber­ast um slaufun á þátt­unum, fyrr á árinu. Und­ir­skrift­ar­söfnun var sett af stað þar sem fram­leið­end­urnir voru grát­beðnir um að hætta við að hætta með þætt­ina. Það bara ekki árangur sem skyldi og var loka­þátt­ur­inn sýndur fyrir nokkrum mán­uðum. Þar snéru gam­al­kunnug and­lit til Ramsey-strætis en þætt­irnir eru þekktir sem stökk­pallur fyrir kvik­mynda­stjörnur fram­tíð­ar­innar. Í loka­þætt­inum mátti sjá heims­frægar stjörnur á borð við Kylie Minogue, Guy Pearce, Natalie Imbruglia, Margot Robbie og Jason Donovan. Þar mátti einnig sjá hinn stór­kost­lega Harold Bishop snúa aftur í gömlu göt­una sína.

En nú eru sem sagt blikur á lofti. Amazon Freevee hefur ákveðið að fram­leiða þætt­ina á nýja leik en fyrstu þætt­irnir verða sýndir um mitt næsta ár. Þannig að íslenskir (sem og aðrir) aðdá­endur Nágranna geta svo sann­ar­lega tekið gleði sína á ný og byrjað að hlakka til að sjá Susan og Karl Kennedy aftur á skjánum, sem og Paul Ramsay, Körtuna og hvað sem þau öll heita og óskað sér að þeir ættu slíka nágranna sjálfir.

Í slæmum málum

Ráð­herrar á Íslandi eru í slæmum málum. Mikið hefur mætt á þeim und­an­farið enda mikið gengið á. Fyrsti ráð­herr­ann sem kemur upp í hug­ann er sjálf­sagt Bjarni nokkur Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra. Um dag­inn kom nefni­lega út skýrsla Rík­is­end­ur­skoð­unar á söl­unni á hluta af hluti rík­is­ins í Íslands­banka. Skýrslan var kannski ekki kolsvört en hún að að minnsta kosti stein­grá og varla Bjarna til fram­dráttar þó auð­vitað sýn­ist sitt hverjum.

Jón Gunn­ars­son dóms­mála­ráð­herra hefur líka verið í eld­lín­unni vegna óvæg­innar með­höndl­unar ráðu­neytis hans á flótta­fólki en hann lét eins og þekkt er orðið, reka 13 flótta­menn frá land­inu, þar af einn fatl­aðan mann í hjóla­stól. Og nýjasta dæmið er frá rúss­nesku hjón­unum Anton og Viktoriu sem send voru út í óviss­una til Ítalíu eftir að hafa verið neitað um dval­ar­leyfi hér á landi, þrátt fyrir mikla teng­ingu við landið. Mótmæli hafa verið haldin vegna stefnu Jóns í inn­flytj­enda­málum en ljóst er þó að ráð­herr­ann á sér marga banda­menn í „virkum í athuga­semdum“ fjöl­miðl­anna.

Þá hefur Katrín Jak­obs­dóttir hefur einnig legið undir ámæli í tengslum inn­flytj­enda­mál rík­is­stjórn­ar­innar enda er hún skip­stjór­inn á skút­unni og hefur lengi talað fyrir breyttri stefnu í þeim málum en þykir hafa gefið furðu mikið eftir félögum sínum í Sjálf­stæð­is­flokknum.

Þá er alveg hægt að nefna Svandísi Svav­ars­dóttur líka því hún hefur verið gagn­rýnd af dýra­vinum und­an­farnar vikur fyrir hæga­gang í dýra­vernd­ar­málum á borð við það sem upp kom í Bæj­ar­sveit í Borg­ar­firð­inum en lengi vel virt­ist Mat­væla­stofnun sem heyrir undir mat­væla­ráð­herr­ann, lít­inn áhuga hafa á mál­inu og kvart­aði Steinunn Árna­dóttir hesta­kona og org­anisti yfir svara­leysi Svan­dísar en sú fyrr­nefnda hafði þá sent henni marga pósta varð­andi illa með­ferð dýr­anna á bænum.

Pistill þessi er úr nýjasta tölu­blaði Mannlífs sem hægt er að grípa ókeypis í Bónus og Hag­kaupum á Höf­uð­borg­ar­svæð­inu og nágrenni. Þá er einnig hægt að lesa blaðið í raf­rænni útgáfu hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi