Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Dagur Þór Aspar: „Mig langar bara að vera einn af strákunum“

Dagur Þór Aspar: „Mig langar bara að vera einn af strákunum“
Dagur Þór Aspar

„Ég er 44 ára og nýkom­inn út úr skápnum sem trans­maður; það eru tveir til þrír mán­uðir síðan,“ segir Dagur Þór Aspar sem er búinn að láta breyta nafni sínu. Áður hét hann Fanney Ösp Stef­áns­dóttir. Hann segir að það sé erfitt að bíða eftir að fá karl­horm­óna og fara síðan í aðgerðir. Hann vill að þetta verði gert sem fyrst.

Dagur segir að þegar hann var lít­ill hafi hann oft verið að leika sér með gröfur í sand­kass­anum og fimm til sex ára hafi hann oft leikið sér að bílum með besta vini sínum. Hann var líka mikið í fót­bolta og körfu­bolta og hann hjólaði mikið. „Ég fann mig aldrei í þessum týpísku stelpu­leikjum. Ég held ég hafi átt eina Barbie-dúkku.“

Hann seg­ist hafa verið stráka­stelpa og að hann hafi oft talað um það þegar hann var lítil stelpa að hann vildi vera strákur. „Ég held að fólk hafi ekk­ert gert sér grein fyrir þessu. Það var engin umræða um trans á þessum tíma og það var eng­inn sem spáði í hvort þetta gæti verið málið.“

Árin liðu og segir Dagur að sem ung­lingur hafi hann mikið verið í galla­buxum og vinnu­skyrtum.

Allt sem er kven­legt hefur valdið mér van­líðan í und­ir­með­vit­und­inni.

„Ég held að ég hafi alltaf verið með skerta sjálfs­mynd. Allt sem er kven­legt hefur valdið mér van­líðan í und­ir­með­vit­und­inni og mér hefur alltaf fund­ist vera erfitt að klæða mig kven­lega. Ég hef alltaf viljað vera meira í kringum stráka og ég tengdi betur við þá þegar ég var yngri.“ Jú, Degi leið ekki vel í kven­legum fötum og hann hætti fyrir nokkrum árum að ganga í kjólum og að mála sig. „Ég hafði reynt að vera kven­legur en ég fann mig aldrei í því. Þetta var alltaf erfitt.“

Dagur seg­ist hafa glímt við geð­ræn vanda­mál í ára­tugi. „Ég hef verið að glíma við þung­lyndi og kvíð­arask­anir frá því ég var ung­lingur og hef verið hjá geð­lækni. Og ég hef verið á lyfjum við þung­lyndi og kvíða frá því ég var tví­tugur. En það var í raun og veru kannski eng­inn sem náði að setja putt­ann á hvað væri að,“ segir Dagur og játar að mögu­lega hafi það haft áhrif að hann er trans þótt hann hafi ekki gert sér grein fyrir því í ára­tugi enda lítil sem engin umræða um þau mál á þeim tíma. „Und­ir­með­vit­undin var að segja að það væri eitt­hvað rangt. Ég hef oft fengið að heyra að ég sé lesbía af því að ég er svo macho en ég fór að grín­ast með það fyrir mörgum árum að ég væri hommi. Það var kannski byrj­unin á því að ég fatt­aði þetta,“ segir Dagur sem hefur alla tíð heill­ast af karl­mönnum.

Út úr skápnum

„Ég skreið svo­lítið út úr skel­inni þegar ég fór að æfa íshokkí þegar ég var 36 ára og ég upp­lifði það svo­lítið kyn­laust. Ég varð mark­maður í íshokkí og fór að tengja við það. Ég var mark­maður; ekki kona,“ segir Dagur sem er leik­maður, liðs­stjóri og barna­þjálf­ari hjá Skauta­fé­lagi Reykja­víkur.

Svo tók Dagur skrefið núna í haust og kom út úr skápnum sem trans. Hvað varð til þess að hann gerði það núna?

„Ég bara gat ekki feikað lengur. Mér leið illa. Ég er af þeirri kyn­slóð að maður vissi ekk­ert um þetta. Mér hefur aldrei liðið nógu vel en þetta hefur verið í und­ir­með­vit­und­inni. Ég var búinn að hugsa um í nokkur ár hvort ég væri trans. Mamma dó í júlí og ég spurði systur mínar hvort þeim væri sama ef ég myndi kaupa mér jakka­föt og mæta í útför­ina í jakka­fötum. Þá var ég ekki beint að koma út úr skápnum en ég vissi að það væri að fara að ger­ast. Ég mætti í jarð­ar­för­ina í jakka­fötum og sagði sumum frá þessu. Mér leið ótrú­lega vel á þessum erf­iða tíma sem var mjög skrýtin til­finn­ing. Þetta ýtti mér af stað.“

Það hellt­ist yfir mig rosa­leg vellíðan þegar ég steig út úr skápnum.

Dagur segir að hann hafi þó áður velt því fyrir sér hvort þetta hrein­lega tæki sig þar sem hann væri orð­inn fer­tugur. „Ég vissi að þetta yrði erfitt en svo hugs­aði ég með mér að ég myndi ekki vera að missa neitt af því að ég fann fyrir þess­ari van­líðan og ég gerði mér grein fyrir að ég myndi bara græða á þessu. Og það hellt­ist yfir mig rosa­leg vellíðan þegar ég steig út úr skápnum.“

Dagur segir að fólk hafi almennt tekið því vel þegar það vissi að hann væri trans. „Ég hef ekki mætt neinum for­dómum. Sumir þurfa og vilja ræða við mig um þetta og spyrja og ég er svo­lítið að fræða fólk í kringum mig. Það kom mér á óvart hvað fólk var jákvætt og sumir ósk­uðu mér til ham­ingju.“

Það var engin kona

Dagur fór í haust í við­tal hjá starfs­manni Sam­tak­anna 78. „Ég var að vand­ræð­ast með að ég væri núna Dagur en hefði áður verið Fanney og þá var mér bent á að ég hefði alltaf verið Dagur. Og þá sagði ég að fyrstu 44 árin hefðu bara verið mis­skiln­ingur. Og þá fór ég virki­lega að tengja við þetta. Ég hef alltaf verið ég. Ég er ekk­ert að breyt­ast. Og þegar ég fór að tala um mig í karl­kyni í for­tíð­inni þá pass­aði þetta.“

Dagur seg­ist í gegnum árin oft hafa klætt sig almennt í íþrótta­föt en nú sé hann orð­inn fata­sjúkur. „Ég elska að versla. Ég elska að fara í herra­fata­versl­anir og það er tekið mjög vel á móti mér. Ég get ekki keypt föt af slánni heldur þarf að breyta fötum sem ég kaupi á mig. Ég elska að vera í jakka­fötum og er þá í skyrtum og með bindi. Mér líður þá rosa­lega vel.“

Ég er núna miklu sjálfsör­ugg­ari.

Dagur sér ekki eftir Fanneyju. „Það var engin kona. Mér líður mjög illa með lík­amann og það versn­aði bara eftir að ég kom út úr skápnum af því að þetta passar ekki. Fanney var karl­mann­leg og pass­aði ekki inn í boxið. Þetta var bara einn stór mis­skiln­ingur. Ég er núna miklu sjálfsör­ugg­ari, sterk­ari og mér líður betur sem ég.“

Biðin erfið

Dagur seg­ist vera hjá tran­steym­inu og að það sé erfitt að bíða eftir að kyn­leið­rétt­ing­ar­ferlið hefj­ist. „Ég er búinn að breyta um nafn í Þjóðskrá, ég er kom­inn með nýtt öku­skír­teini og nýtt  vega­bréf en ég fæ í raun og veru ekki að halda áfram í ferl­inu. Ég er tvisvar búinn að hitta sál­fræð­ing hjá tran­steym­inu sem sagði að ég væri greini­lega til­bú­inn en regl­urnar hjá teym­inu eru þannig að ég fæ ekki við­tal hjá geð­lækni fyrr en í jan­úar og svo í mars. Þetta eru ein­hverjar verk­lags­reglur sem farið er eftir. Það sem mér finnst vera erf­ið­ast núna er að fólk sem þekkir mig ekki upp­lifir mig sem konu og talar við mig eins og ég sé kona. Mér finnst það vera erfitt en röddin í mér er of kven­leg og útlitið er of kven­legt. Jafnvel þótt ég kynni mig sem Dag þá fer fólk að ávarpa mig í kven­kyni. Það er erfitt að reyna að lifa í sam­fé­lagi sem karl­maður en fólk sér mig ekki sem karl­mann. Ég upp­lifi mig alveg sem karl­mann og ég reyri alltaf brjóstin til að þau virki minni en því miður er ég rosa­lega brjósta­stór.“

Hann seg­ist þegar vera far­inn að setja á sig rakspíra.

Dagur seg­ist hlakka til að fá skegg eftir að hann fer að taka karl­horm­óna, og hann seg­ist þegar vera far­inn að setja á sig rakspíra, og hann seg­ist vilja fara alla leið þegar kemur að aðgerð­unum. „Ég er núna ótrú­lega stoltur af hár­unum á fót­leggj­unum á mér. Ég þarf ekki lengur að raka legg­ina.“

Dagur er líf­einda­fræð­ingur að mennt, tók bæði grunn­nám og svo meist­ara­nám erlendis, en hann breytti fleiru á þessu ári. Hann sagði upp í vinn­unni og stundar núna nám í tölv­un­ar­fræði.

Hvað með fram­tíð­ar­drauma? „Mig langar bara að verða einn af strák­unum; að vera ávarp­aður sem karl og vera tek­inn eins og mér líður. Ég hef verið að spila íshokkí með stráka­liðum og hef verið í bún­ings­klefa með strákum en ég hef aldrei almenni­lega upp­lifað að vera einn af þeim. En það er það sem mig dreymir um.“ Dagur vill sér­stak­lega taka fram hve fólk í íshokkíí­þrótt­inni hér á landi hefur tekið honum vel eftir að hann kom út úr skápnum. „Mót­tök­urnar sem ég hef fengið þar hafa farið fram úr mínum björt­ustu vonum.“

Hann segir að hann sé á byrj­un­ar­reit og núna langi sig til að læra í raun og veru að lifa líf­inu. „Ég vil lifa líf­inu sem ég sjálfur. Núna læri ég að hlusta á hvað ég vil og hvernig mér líður. Ég hef í raun­inni lifað líf­inu hingað til eins og leik­ari og ég er ótrú­lega spenntur fyrir fram­tíð­inni.“

Hvað með nýja nafnið, Dagur? „Ég var búinn að velta þessu nafni fyrir mér í mörg ár. Þetta er eins og nýr dagur.“

Byrjun.

Upphaf.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi