Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Bryndís er nýtin og hendir ekki mat. „Hef átt rjóma sem er komin mánuð frá síðasta söludegi“

Bryndís er nýtin og hendir ekki mat. „Hef átt rjóma sem er komin mánuð frá síðasta söludegi“
Bryndís og Alda Líf

Neytandi vik­unnar heitir Bryndís Guð­munds­dóttir er 44 ára gift og fimm barna móðir. Börnin eru á aldr­inum 19,17,15,7 og 4 ára.  Fjöl­skyldan býr í Grund­ar­firði á Snæ­fells­nesi.  Bryndís starfar í Grunn­skóla Grund­ar­fjarðar sem stuðn­ings­full­trúi og skóla­liði. Hún er sveita­stelpa sem ólst upp á Mun­að­ar­nesi á Ströndum. Áhugamál hennar eru crossfit, safnar potta­blómum og hefur gaman af að rækta græn­meti í garð­inum. Fjöl­skyldan horfir mikið saman á kvik­myndir.  Börnin hafa fengið gott kvik­mynda­upp­eldi fyrir gömlum og klassíkum bíó­myndum.  Fjöl­skyldan fer svo saman í bíó þegar farið er í höf­uð­borg­ina.

Hvernig sparar þú í mat­ar­inn­kaupum?

Það er ekki lág­vöru­verslun í mínu bæj­ar­fé­lagi. Hér er  Kjör­búðin.  En það er margt hægt að gera til að lækka kostn­að­inn við mat­ar­inn­kaup. Til dæmis nýti ég mjög mikið  að kaupa mat­vörur þegar þær eru komnar á afslátt vegna dag­setn­ingar. Það er mik­ill sparn­aður.  Og ekki er verra að þá er þeim mat ekki hent.  Það er ótrú­legt hvað sumar mat­vörur end­ast lengi eftir sölu­dag. Hef átt rjóma sem er komin mánuð frá síð­asta sölu­degi og það er í fínu lagi. Og skyr geym­ist jafn­vel í marga mán­uði.  En nýti svo allar ferðir til að fara í Bónus þegar maður á ferð þar sem Bónus er.  Bónus er í næsta bæj­ar­fé­lagi og gerir maður sér stundum ferð þangað, en það hefur minnkað  þar sem bens­ínið er dýrt.  Svo ræktum við okkur gul­rætur sem duga nán­ast allt árið. Ræktum líka kart­öflur, grænkál og höfum verið að prófa okkur áfram í græn­met­is­ræktun.  Reyni líka að baka fyrir krakk­ana bakk­elsi til að taka í nesti í skól­ann og fleira í þeim dúr í stað­inn fyrir að kaupa til­búið.  Elda líka frá grunni til dæmis súpur og þess­háttar.

Endurnýtir þú? Ertu með ráð til annarra?

Já hér flokkum við allt rusl. Og við erum mjög dug­leg að flokka.  Ég end­ur­nýti  líka vel föt. Hendi nán­ast engu og hef getað notað fötin af börn­unum aftur og aftur.  Stór fjöl­skyldan býr líka hér í Grund­ar­firði og við erum dug­leg að láta fötin fara á milli barna.  Einnig eru öll okkar hús­gögn í stofu og eld­húsi, keypt notuð eða fengið gef­ins. Geymi poka undan brauði og slíku og nota undir afganga og ýmis­legt sem þarf að nota. Og í garð­inum höfum notað vöru­bretti til að smíða mat­jurta­kassa og kofa fyrir börnin.   Held líka að end­ur­nýtnin komi frá mínum upp­eldi í sveit­inni. Þar var allt nýtt og engu hent. Ráð mitt er að henda ekki mat þó að hann sé komin á síð­asta sölu­dag. Láttu bragð og lykt­ar­skyn skera úr hvort mat­ur­inn sé í lagi.

Hvað hefur þú í huga þegar þú kaupir mat, fatnað og gjafir?

Ég reyni að nýta vel til­boð. Kaupi mat eins og ég sagði á 50 pró­sent afslætti þegar hann er komin á dag­setn­ingu og þegar til­boð koma. Og reyni að kaupa bara föt þegar þau koma á til­boði og jafn­vel gjafir.

Hverju átt þú erfiðast með að draga úr kaupum á?

Við leyfum okkur ekki mikin óþarfa.  Það er bara ekki svig­rúm til þess á stóru heim­ili.

Skiptir umhverfisvernd þig máli?

Já mjög miklu. Á heim­il­inu er allt flokkað.  Mat­ar­af­gangar fara í líf­rænt sem verður svo að moltu. Og reyni að nýta hlut­ina sem lengst og kaupi ekki óþarfa.

Annað sem þú vilt taka fram?

Það er mjög snið­ugt að láta ung­ling­ana sína sem hafa verið í vinnu og eiga pen­ing að kaupa stundum í kvöld­mat­inn. Við höfum gert það stundum og þau læra hell­ing af því og sjá hvað það kostar að kaupa inn mat og hvað þarf að hafa í huga.  Þau eru stundum mjög hissa yfir því hvað hlut­inir kosta mikið og hvað það kostar að halda út heim­ili.

Að lokum deilir Bryndís með okkur þess­ari dýr­indis upp­skrift frá mömmu sinni. En hún er ein af bestu skúffukökum í heimi.  Hér er hún étin upp til agna á engri stund. Þægileg upp­skrift sem ekki mikil fyr­ir­höfn að gera.

300 gr sykur
300 gr hveiti
3 egg
150 gr brætt smjör­líki
6 msk kakó
2 tsk lyfti­duft
1 tsk natrón
3 dl mjólk, smá salt

Allt hrært saman í 5 mín. bak­ist við 200 gr í 25 min.

Krem:  1 pk flór­sykur, 3 msk kakó, 150 gr brætt smjör­líki, smá kaffi, vanillu­dropar og smá heitt vatn til að fá rétta áferð á kremið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi