Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ísland þorði ekki að taka afstöðu til málstaðs Palestínu: „Ísland endurtekur ranga ákvörðun!“

Fulltrúi Íslands sat hjá í kosn­ingu nefndar Sam­ein­uðu Þjóðanna varð­andi mál­efni Palest­ínu. Var kosið um drög að ályktun Palest­ínu­manna þar sem óskað var eftir ráð­gef­andi áliti Alþjóða­dóm­stóls­ins í Haag varð­andi langvar­andi her­nám Ísraels í Palest­ínu. Voru drögin sam­þykkt en Ísland sat hjá.

Félagið Ísland Palest­ína bendir á þetta í nýlegri færslu á Facebook og má sjá á orðum þeirra að félagið sé afar ósátt við hjá­set­una. Hér má lesa færsl­una í heild:

„FULLTRÚI ÍSLANDS NEITAR AÐ STYÐJA MÁLSTAÐ PALESTÍNUMANNA!
Ísland end­ur­tekur ranga ákvörðun!

Nefnd Sam­ein­uðu þjóð­anna sem m.a fjallar um afnám nýlendu­stefn­unnar sam­þykkti þ. 13. nóv­em­ber s.l. drög að ályktun Palest­ínu­manna þar sem óskað var eftir ráð­gef­andi áliti Alþjóða­dóm­stóls­ins í Haag varð­andi langvar­andi her­nám Ísraels á landi Palest­ínu.
Í álykt­un­inni er Alþjóða­dóm­stóll­inn sér­stak­lega beð­inn um álit á stöðu Jer­úsalem sem er eitt af helstu og umdeild­ustu deilu­málum Ísra­els­manna og Palest­ínu­manna.
Nítíu og átta ríki sam­þykktu til­lög­una, sautján greiddu atkvæði gegn og fimm­tíu og tvö sátu hjá. Þar á meðal Ísland.
Afstaða Íslands, að sitja hjá þegar Palest­ínu­menn leita til alþjóða­sam­fé­lags­ins, er end­ur­tekn­ing á skammar­legu fram­lagi Íslands á vett­vangi SÞ árið 1947 þegar Alls­herj­ar­þingið sam­þykkti til­lögu um að skipta Palest­ínu.
Þá var lögð fram til­laga um að Alls­herj­ar­þing SÞ, áður en þingið legði fram til­lögu að skipt­ingu lands­ins, skyldi leita álits Alþjóða­dóm­stóls­ins á því hvort Sam­ein­uðu þjóð­irnar væru hæfar og hefðu vald til að mæla fyrir eða fram­fylgja aðgerð sem gengi gegn vilja meiri­hluta íbú­anna í Palest­ínu. Þessi til­laga var felld og vó atkvæði Íslands, sem var á móti til­lög­unni, þungt þar sem það mun­aði aðeins tveimur atkvæðum.
Ísland og þau ríki sem felldu til­lög­una sýndu Palest­ínu­mönnum og fram­tíð þeirra lít­ils-virð­ingu með því neita þeim um að fá úr því skorið hvort ríki SÞ hefðu yfir­leitt leyfi til að afhenda hluta af landi þeirra til ann­arra.

Sam­þykktin þ. 13. nóv­em­ber 2022 mun ekki valda neinum vatna­skilum í bar­áttu Palest­ínu­manna fyrir frelsi og mann­rétt­indum. Bæði Alls­herj­ar­þing SÞ og Alþjóða­dóm­stóll­inn hafa áður lýst her­nám Ísraels á Vest­ur­bakk­anum ólög­legt og beri að afnema. Þrátt fyrir sam­þykktir Sam­ein­uðu þjóð­anna hefur Ísrael haldið áfram ofbeldi og árásum gegn Palest­ínu­mönnum í skjóli Banda­ríkj­anna og ýmissa vest­rænna ríkja.
En drop­inn holar stein­inn segir mál­tækið og rétt­lætið sækir hægt og bít­andi fram.
Árið 1945 bjuggu hund­ruð millj­óna manna, nálægt þriðj­ungur allra íbúa heims­ins á þeim tíma, undir oki nýlendu­stefn­unnar. Aðgerðir á vett­vangi Sam­ein­uðu þjóð­anna og bar­átta und­ir­ok­uðu þjóð­anna á síð­ast­liðnum ára­tugum til afnáms nýlendu­stefnu hafa stuðlað að sjálf­stæði fjöl­margra fyrr­ver­andi nýlendna og land­svæða sem lutu stjórn ann­arra ríkja.
Nú end­ur­tekur íslenska utan­rík­is­þjón­ustan sig og greiðir ekki atkvæði með til­raunum Palest­ínu­manna til að ná fram rétt­læti og frelsi.
Í núver­andi rík­is­stjórn Íslands sitja tveir flokkar sem segja í álykt­unum að: „Mann­rétt­inda- og jafn­rétt­is­mál skipi áfram veg­legan sess í utan­rík­is­stefnu Íslands á vett­vangi alþjóða­stofn­ana … Því er mik­il­vægt að Ísland sýni gott for­dæmi í þessum mála­flokki á heims­vísu og beiti sér gegn mann­rétt­inda­brotum.“ (Framsókn)
Og enn­fremur: „Mik­il­vægt að tryggja rétt palest­ínsku þjóð­ar­innar til vatns og ann­arra auð­linda, ferða­frelsis, búsetu, atvinnu og mann­rétt­inda.“ (VG)
Þessi fögru orð eru einskis virði í ljósi þess hvernig full­trúar lands­ins haga sér á vett­vangi Sam­ein­uðu þjóð­anna.“

Ísland er í hópi 52 þjóða sem ekki þorðu að taka afstöðu til máls­ins.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi