Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Vanda og steintröllin í Katar

Vanda og steintröllin í Katar
Vanda Sig­ur­geirs­dóttir er for­maður KSÍ

Ferðalag topp­anna hjá Knatt­spyrnu­sam­bands Íslands til Katar er lýsandi fyrir þann und­ir­lægju­hátt sem er ríkj­andi í garð þeirra fanta sem ráða ríkjum í þessu ríki for­dómanna. Yfirvöld í Katar hafa grímu­laust látið i ljós andúð sína á sam­kyn­hneigðum og FIFA, Alþjóða­knatt­spyrnu­sam­bandið, tekur undir með þeim. Hug­myndir knatt­spyrnu­manna um að bera arm­band til stuðn­ings hinseg­in­fólki voru slegnar út af borð­inu og þeim hótað refs­ingu með gulu spjaldi ef af þessu yrði. For­svars­menn FIFA eru enn einu sinni að gera upp á bak. Saga sam­bands­ins er stráð spill­ing­ar­málum sem vakið hafa ógeð víða um heims­byggð­ina.

Ástæðu þess að örríkið Katar fékk keppn­ina má rekja til spill­ingar þar sem mútur koma við sögu. Nýir for­svars­menn FÍFA eru litlu skárri. Þeir heiðra skálk­inn með því að sam­þykkja í raun ofsókn­irnar gegn sam­kyn­hneigðum. Samkvæmt til­skipun Katara þá mega sam­kyn­hneigðir vera í land­inu en þeir mega ekki faðm­ast eða láta vel að hverju öðru. Þeir verða að vera ósýni­legir. Stein­tröllin í Katar vaða uppi með ævaforna for­dóma sem lýð­ræð­is­ríki hafa fyrir löngu kveðið niður að mestu. Þau draga með sér þjóðir sem ættu að geta staðið í lapp­irnar gegn mið­alda­sjóna­mið­unum en gera það ekki. Þeirra á meðal eru Íslend­ingar.

Vanda Sig­ur­geirs­dóttir, for­maður KSÍ, lagði leið sína til Katar og gaf þannig öfga­fólk­inu klapp á bakið. Sama er að segja um þá starfs­menn Rík­is­út­varps­ins sem heiðra skálk­ana í Katar með því að mæta í full­komnu til­gangs­leysi. Allt þetta fólk ætti að skamm­ast sín fyrir að ýta undir ómennsku stjórn­valda smá­rík­inu með nær­veru sinni.

Íslenska Knatt­spyrnu­sam­bandið er raunar frægt af endemum. Þar var gerð hall­ar­bylt­ing þegar spillt for­ysta var látin víkja og Vanda kom sem ridd­ari á hvítum hesti til að sið­væða og hreinsa út ófögn­uð­inn. Nú er staðan sú að hún hefur brugð­ist vonum fólks­ins. Lands­lið­skar­lar eru verð­laun­aðir  á hátíð­ar­stundu en kon­urnar ekki. Vanda lætur svo hafa sig í þá óhæfu að fara til Katar þar sem for­dóm­arnir ríkja og spóka sig.

Rík­is­út­varpið er á sama báti. Í stað þess að sitja heima og mót­mæla þannig, væfl­ast þeir um og taka við­töl hvert við annað. Rík­is­sjón­varpið fer til Katar í óþurft­ar­ferð með til­heyr­andi kostn­aði og tekur við­tal við Vöndu sem beygir af og kvartar undan vondum fjöl­miðlum. Sam­ansúrrað banda­lag um að lyfta öfga­lið­inu í Katar á stall. Þetta er ógeðs­legt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi