Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Vala berst fyrir mannréttindum í Íran: „Við getum ekki og hreinlega megum ekki bregðast þeim“

Vala berst fyrir mannréttindum í Íran: „Við getum ekki og hreinlega megum ekki bregðast þeim“
Vala Karen Við­ars­dóttir

„Staða Sam­ein­uðu þjóð­anna (SÞ) er auð­vitað skýr. Það eru að eiga sér stað gróf mann­rétt­inda­brot gegn almenn­ingi í Íran, þá sér­stak­lega gegn konum og stúlkum og alvar­lega vegið að frelsi þeirra. SÞ for­dæma þessar öfga­fullu aðgerðir íranskra yfir­valda og því ofbeldi sem beitt hefur verið gegn almenn­ingi síð­ustu vikur. Nýjustu tölur segja að yfir 300 manns hafi látið lífið í mót­mæl­unum og þar af 40 börn. Það er þyngra en tárum taki – og mann­réttinda­ráðið verður að bregð­ast við þessu,“ segir Vala Karen Við­ars­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Félags Sam­ein­uðu þjóð­anna á Íslandi.

Það er auð­vitað mik­il­vægt að Ísland taki skýra afstöðu gegn öllu ofbeldi og mann­rétt­inda­brotum.

Mann­réttinda­ráð SÞ fund­aði í dag um Íran að beiðni Íslands og Þýska­lands og er fund­inum ætlað að knýja á um að SÞ hefji mark­vissa gagna­öflun varð­andi fram­göngu yfir­valda í Íran gegn frið­sömum mót­mæl­endum. „Það er auð­vitað mik­il­vægt að Ísland taki skýra afstöðu gegn öllu ofbeldi og mann­rétt­inda­brotum, hvort sem um ræðir hér heima eða á alþjóða­vísu. Utan­rík­is­ráð­herra okkar, Þórdís Kolbrún, hefur allt frá upp­hafi mót­mæl­anna eftir að Mahsa Amini lést, sýnt skýra afstöðu með konum og stúlkum í Íran og notað rödd sína á alþjóða­vett­vangi. Fyrir það er ég þakk­lát. Ég hef verið að fylgj­ast með þessum sér­stöku umræðum í mann­réttinda­ráði SÞ í Genf í dag og bind vonir um að ráðið kjósi með til­lögu að rann­sókn verði hafin á brotum þessum hið allra fyrsta. Við getum ekki og hrein­lega megum ekki bregð­ast þeim.“

Að sýna stuðning

Mörg aðild­ar­ríki hafa haft efa­semdir um að taka þetta fyrir á vett­vangi mann­réttinda­ráðs­ins.

„Ég stend með mann­rétt­indum alls staðar og mun ávallt hafa það við­horf að brot gegn mann­rétt­indum ein­stak­linga, hvort sem um ræðir brot yfir­valda á mann­rétt­indum sinna eigin þegna eða ann­ars staðar, er aldrei í lagi. Með því að vera hluti af alþjóð­legum mann­rétt­inda­samn­ingum þá skiptir það víst máli hvernig við háttum mál­unum inn­an­lands. Alþjóð­legir samn­ingar sem ríki eru aðilar að eru ekki til skrauts og það er mik­il­vægt að for­dæma slík alvar­leg brot – alls staðar. Írönsk yfir­völd hafa lýst mót­mæl­unum sem inn­an­rík­is­máli og telja það „and­stætt efl­ingu mann­rétt­inda“ ef örygg­is­ráð SÞ ræðir málið og nú mann­réttinda­ráðið. Almenn mann­rétt­indi og alþjóð­lega mann­rétt­inda­samn­inga á ekki að virða bara eftir henti­semi.“

Það er eng­inn stikk­frí þegar kemur að því að for­dæma slíkt.

Full­trúi Írans í mann­rétt­inda­ráði SÞ sagði lönd mis­nota stöðu sína í ráð­inu með því að kalla til auka­fund­arins. „Ég fylgd­ist einmitt með yfir­lýs­ingu full­trúa Írans í morgun. Við­kom­andi tók fyrir Þýska­land en vissu­lega fjall­aði hún um og for­dæmdi vest­ræn ríki sem hún sagði að hefðu dreift fals­fréttum um stöð­una í Íran. Ef það að for­dæma ofbeldi og alvar­leg mann­rétt­inda­brot er nú talið vera mis­notkun á stöðu sinni í mann­réttinda­ráð­inu þá skil ég ekki fyrir hvað annað ráðið ætti að vera. Að tala með mann­rétt­inda­brotum eða láta sem ekk­ert sé og láta þar við kyrrt liggja? Það er eng­inn stikk­frí þegar kemur að því að for­dæma slíkt.“

Hvað geta Íslend­ingar gert meira varð­andi ástandið í Íran? „Að sýna stuðn­ing, á blaði og í orði. Að þekkja rétt­indi sín – og ann­arra. Nota rödd sína til stuðn­ings mann­rétt­inda alls staðar. Að styðja mann­rétt­inda­sam­tök og krefja stjórn­völd um að láta sig málið varða.“

Vala er spurð hvaða áhrif allt þetta hafi á hana sem fram­kvæmda­stjóra Félags SÞ hér á landi.

„Við hörmum þessa stöðu sem uppi er nú í Íran og styðjum allt það hug­rakka fólk sem hefur staðið upp með mann­rétt­indum og auknu frelsi sínu og ann­arra og mörg hver látið lífið fyrir það. Félagið og SÞ flytja áreið­an­legar fréttir af stöðu mála en það er alltaf mik­il­vægt að passa sig hvaðan upp­lýs­ingar koma áður en þeim er deilt áfram. Og munum við halda áfram að fylgj­ast grannt með stöð­unni.“

Sterkari saman

Vala segir að hjá Félagi SÞ sé vakin athygli á starf­semi SÞ og stofn­unum þeirra, þró­un­ar­sam­vinnu og þátt­töku Íslands á þessum vett­vangi. „Við sinnum fræðslu í gegnum UNESCO-skóla um mann­rétt­indi, frið og heims­mark­miðin um sjálf­bæra þróun á leik,- grunn- og mennta­skóla­stigi. Einnig eigum við í góðu sam­starfi við önnur félög á hinum Norð­ur­lönd­unum og öðrum Evr­ópu­löndum og viljum auka þekk­ingu Íslend­inga á SÞ, starf­semi og mál­efnum þeirra; sér­stak­lega umhverfis- og þró­un­ar­málum í tengslum við mann­rétt­indi og heims­mark­miðin.“

Vala seg­ist lengi hafa haft áhuga á alþjóða­málum, mann­rétt­indum og að vinna með ólíku fólki að sam­eig­in­legu mark­miði – að gera heim­inn að betri stað fyrir alla.

Er ávallt gott að sjá hvað Íslend­ingar eru vilj­ugir að bjóða fram aðstoð sína þegar á reynir og það sjáum við vel eftir inn­rás Rússa í Úkraínu.

Heim­ur­inn er sífellt að breyt­ast og má þar nefna stríðið í Úkraínu. Hvernig upp­lifir Vala þetta í tengslum við til dæmis starf sitt?

„Já, við lifum í hröðu sam­fé­lagi sem tekur sífelldum breyt­ingum. Áherslur breyt­ast og fók­us­inn á það til að verða óskýr þegar neyðin er víða. Það er ein­fald­lega þannig að fólk sem þrífst í þessum geira brennur fyrir mál­staðnum og sam­vinna milli ólíkra stofn­ana SÞ er undra­verð. Margra ára­tuga reynsla og sú mikla sér­fræði­þekk­ing ólíkra mál­efna innan SÞ sýnir sig í þeirri breiðu sam­stöðu þegar neyð brýst út. Þess utan er ávallt gott að sjá hvað Íslend­ingar eru vilj­ugir að bjóða fram aðstoð sína þegar á reynir og það sjáum við vel eftir inn­rás Rússa í Úkraínu.“

Við erum sterk­ari saman og þannig náum við árangri.

Vala vann hjá UNICEF á Íslandi í nokkur ár og sagði frá sér í við­tali við Mannlíf fyrr á þessu ári (https://gamla.mannlif.is/frettir/vala-karen-vidarsdottir-framkvaemdastjori-felags-sth-eg-vil-setja-mitt-mark-a-veroldina/). Hvernig hefur reynsla hennar í störfum tengdum alþjóða­málum breytt henni eða haft áhrif á hana?

„Hún hefur hrein­lega fengið mig til þess að vilja halda áfram, ná til fleira fólks og þannig virkja breið­ari sam­stöðu til þess að standa vörð um rétt­indi allra, þvert á geira og kerfi, vegna þess að við erum sterk­ari saman og þannig náum við árangri.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi