Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Vinkona Ásdísar Ránar hvarf sporlaust: „Ég vil trúa því að hún sé enn á lífi“

Vinkona Ásdísar Ránar hvarf sporlaust: „Ég vil trúa því að hún sé enn á lífi“

Ísdrottn­ingin, Ásdís Rán Gunn­ars­dóttir, hefur verið á milli tann­anna á Íslend­ingum síðan hún var korn­ung. Hún hefur marga fjör­una sopið síðan hún kom fyrst fram á sjón­ar­sviðið sem fyr­ir­sæta á ung­lings­aldri. Ásdís er nú komin til Íslands, eftir að hafa meira og minna búið erlendis í fjöl­mörg ár, aðal­lega í Búlgaríu. Í kjöl­far alls kyns ævin­týra, verk­efna og við­skipta flutti hún aftur heim í kjöl­far Covid-tíma­bils­ins og er sest hér að í bili. En þó að hún sé komin heim á klak­ann er aug­ljóst að Ásdís er ekki ákveðin í að setj­ast hér alfarið að.


Bryn­varðir bílar, límósínur, dem­antar og líf­verðir


Ásdís fór upp­haf­lega til Búlgaríu með fyrr­ver­andi manni sínum, knatt­spyrnu­mann­inum Garðari Gunn­laugs­syni. Hug­myndin var að lifa rólegu og þægi­legu lífi, þar sem hann fengi athygl­ina, en hún sæi um heim­ilið. En mjög fljótt kom í ljós að fram­vindan ætti eftir að verða önnur. „Þetta byrj­aði allt með því að Garðar fékk til­boð frá CSKA Sofia í Búlgaríu árið 2008. Þá vissum við í raun ekki mikið um landið, en höfðum í ein­hvern tíma verið að hugsa um að okkur lang­aði að flytja í hlýrra land og á end­anum ákváðum við að slá til. Hann skrif­aði undir samn­ing­inn og við ákváðum í kjöl­farið að flytja til Sofiu, höf­uð­borgar Búlgaríu. Maður fann mjög fljótt að knatt­spyrnu­menn­irnir eru algjörar stór­stjörnur þarna, sem olli því að fjöl­miðl­arnir fóru fljótt að skoða hver væri eig­in­kona Garðars. Þá gerð­ist það eig­in­lega á einni nóttu, að fjöl­miðlar fengu mik­inn áhuga á mér. Það var til svo mikið af myndum og greinum um mig, að þær fóru strax að velt­ast um í gulu press­unni og þá varð ekki aftur snúið. Ég hafði séð fyrir mér að ég yrði fót­bolta­eig­in­kona með börn og myndi lifa rólegu lífi í Búlgaríu, en það breytt­ist hratt,“ segir Ásdís bros­andi og heldur áfram: „Ég fékk strax mikla athygli og gat því fljótt búið til minn eigin feril. Ég fékk mjög fljótt vel borgað fyrir þau verk­efni sem ég tók að mér og þetta var eig­in­lega bara draumur í dós. Mér leið mjög fljótt eins og ég væri komin á minn heima­völl og kunni mjög vel við alla athygl­ina sem ég fékk og hvað ég fékk mörg tæki­færi.“ Ásdís neitar því samt ekki að sumt sem þyki eðli­legt í Austur-Evrópu væri litið öðrum augum á Íslandi og hinum Norð­ur­lönd­unum.

„Auðvitað er margt skrýtið og sér­stakt miðað við það sem við þekkjum, sér­stak­lega þegar kemur að þekktu og ríku fólki í Austur-Evrópu. Bryn­varðir bílar, límósínur, dem­antar og líf­verðir eru bara eðli­legur hlutur fyrir fólk sem á pen­inga í Búlgaríu og lífs­stíll­inn er oft og tíðum mjög ýktur. Sumir af þeim sem eiga mestu pen­ing­ana eru ekki í lög­legri starf­semi. Þegar við tölum um austur evr­ópskar mafíur þá erum við að tala um alvöru mafíur. Und­ir­heim­arnir í Búlgaríu eru ekki eins og und­ir­heimar Íslands og sumt er eins og það sé klippt út úr bíó­mynd. En þó að það hafi á köflum verið skraut­legt að vera innan um þessa hluti getur það líka verið mjög skemmti­legt.“


Ásdís segir að mjög margt hafi breyst á und­an­förnum árum í Búlgaríu og að höf­uð­borgin sé orðin mun vest­rænni en hún var. Það sé fjöldi við­burða um alla borg og frá­bærir veit­inga­staðir og kaffi­hús á hverju strái. Þó að hún hafi ferð­ast um allan heim og búið víða, kann hún hvergi betur við sig en í Sofiu. „Mér finnst Búlgaría stór­kost­legt land og ég elska Búlgaríu. Mér hefur alltaf liðið vel þarna og var með­tekin af sam­fé­lag­inu strax og hef alltaf upp­lifað almenna vel­vild frá fólki.“

„Ég vil trúa því að hún sé enn á lífi“

Það er aug­ljóst að Búlgaría er orðin stór hluti af Ásdísi og að hún sér fyrir sér að vera áfram með annan fót­inn þar. Eitt af því áhuga­verð­ara og erf­ið­ara sem Ásdís upp­lifði í Búlgaríu var þegar ein besta vin­kona hennar, Ruja Ignatova, hvarf spor­laust árið 2017, eftir að hafa tengst fjársvika­máli sem vakti heims­at­hygli. Ruja var, þegar hún hvarf, orðin millj­arða­mær­ingur í gegnum raf­mynt­ina OneCoin. Ásdís og Ruja voru í miklu sam­bandi allt þar til dag­inn sem sú síð­ar­nefnda hvarf spor­laust og ekki hefur spurst til hennar síðan. „Við höfðum verið vin­konur alveg frá árinu 2009 og þekkt­umst mjög vel. Hún fjár­festi í fyrsta fyr­ir­tæk­inu mínu í Búlgaríu og við urðum fljótt góðar vin­konur. Hún var alltaf vel stæð, en undir það síð­asta var hún orðin millj­arða­mær­ingur og líf hennar hafði breyst sam­kvæmt því. Ég var með henni síð­ustu tvo mán­uð­ina áður en hún hvarf og þá vildi hún ekki umgang­ast nema örfáa. Þá vorum við mest við Svarta­hafið, þar sem hún var með risa­stóra snekkju á fjórum hæðum. Þó að ég hafi auð­vitað ekki haft hug­mynd um hvað var í vændum, fann ég undir það síð­asta að hún var orðin mjög skrýtin og slæm í skap­inu. Ég hélt að hún væri bara orðin þung­lynd og buguð af álagi, af því að vera að stjórna þessu öllu alein. Hún var orðin mjög vör um sig og ótt­að­ist að fólk væri á eftir henni, en ég hélt að það væri bara af því að hún var orðin svo rosa­lega rík og í Austur- Evrópu eru miklu fleiri hættur fyrir ríkt fólk. En svo hvarf hún bara og ég hef ekk­ert heyrt frá henni síðan, né nokkur annar í kringum hana.“

Þetta brot er úr við­tali sem birt­ist áður í 17. tölu­blaði Mannlífs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi