Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Luca Moi Forte:„Ósammála því að transfólk þurfi „allar aðgerðir“ eða hormón til að vera það sjálft“

Luca Moi Forte:„Ósammála því að transfólk þurfi „allar aðgerðir“ eða hormón til að vera það sjálft“
Luca Moi Forte

„Ég vinn í Félags­mið­stöð­inni 100og 1 og Hinsegin félags­mið­stöð og ætla að læra tóm­stunda- og félags­mála­fræði. Starf mitt er það skemmti­leg­asta sem ég veit um og að vinna með krökkum hefur verið gef­andi lífs­reynsla. Við spilum og höldum við­burði og stundum tölum við um alvar­leg mál­efni og finnum út leiðir til að hjálpa þeim. Fyrir utan þetta hef ég gaman af tölvu­leikjum, förðun og íþróttum. Ég elska allt sem er bleikt og sætt og ég er að læra að njóta þess sem karl­maður,“ segir Luca Moi Forte sem fædd­ist í lík­ama stúlku í Lissabon í Portúgal og flutti til Íslands þegar hann var 13 ára.

„Þegar ég var krakki vissi ég ekki einu sinni að það væri val­kostur að vera trans. Þegar ég var barn ímynd­aði ég mig sem far­sæla konu í við­skipta­líf­inu og jafn­vel þegar ég var fimm ára hugs­aði ég með mér hvort það væri ekki fyndið ef ég yrði strákur þegar ég yrði stór. Ég hafði alltaf gaman af „stráka­hlutum“ eins og bílum, fót­bolta og tölvu­leikjum og ég skildi ekki af hverju ég ætti ekki að leika við strák­ana í skól­anum. Þessi kynja­hlut­verk voru mjög ríkj­andi í portú­gölsku sam­fé­lagi þegar ég var barn en mamma leyfði mér alltaf að gera til­raunir með hvaða leik­föng og fatnað sem ég vildi.

Þegar ég átt­aði mig á því að ég væri trans þá breytt­ist sýn mín á lífið.

Ég hélt að gangur lífs­ins væri að standa sig vel í skól­anum, fá vinnu og eign­ast maka; gift­ast og eign­ast börn. Þegar ég átt­aði mig á því að ég væri trans þá breytt­ist sýn mín á lífið.“

Stutt pils og mikið málaður

Luca kom út sem trans­maður þegar hann var 19 ára en seg­ist hafa gert sér grein fyrir því að hann væri trans miklu fyrr. „Þegar ég var í leik­skóla var alltaf eitt­hvað sem pass­aði ekki og mér leið eins og ég væri að leika hlut­verk stelpu. Ég man að ég var í þriðja bekk þegar ég spurði mömmu hvort ég mætti verða strákur og þegar hún spurði mig áhyggju­full af hverju ég segði þetta þá sagði ég: „Gera það ekki allar stelpur?“ Ég hugs­aði aldrei mikið um kyn eða að passa inn þegar ég var krakki. Ég var alltaf í stutt­buxum og hjóla­bretta­skyrtum.“

13 ára flutti Luca til Íslands eins og þegar hefur komið fram. Hann segir að hann hafi reynt að haga sér og klæða sig eins og dæmi­gerð íslensk stelpa en segir að hann hafi haft á til­finn­ing­unni að allir hafi vitað að eitt­hvað væri að.

„Það var mjög erfitt að vera inn­flytj­andi og reyna að upp­götva sjálfan sig. Ég öfunda krakka sem þekkja sjálfa sig á þessum aldri. Ég pass­aði ekki á meðal stelpn­anna, í hópi erlendu strák­anna í skól­anum né í íslensku þjóð­fé­lagi. Ég kom fyrst út sem lesbía og síðan tví­kyn­hneigð og var ein af tveimur eða þremur krökkum í skólnum. Ég var lagður í ein­elti í kjöl­farið en ég var mest heima og ein­angr­aður.

Ég fór í skól­ann í stuttum pilsum og mikið mál­aður og með sítt, bleikt hár.

Ég hélt á mennta­skóla­ár­unum að ég hefði svarið við vanda­mál­unum tengdum sjálfs­mynd minni. Ég lit­aði hárið á mér í öllum regn­bog­ans litum og gekk í skraut­legum fötum. Þetta var góður tími og ég eign­að­ist loks­ins góða vini en ég sá ekki stelpu þegar ég leit í spegil. Í heilt ár reyndi ég mikið að líta á sjálfa mig sem stelpu. Ég fór í skól­ann í stuttum pilsum og mikið mál­aður og með sítt, bleikt hár. Ég henti bux­unum mínum af því að í huga mínum gengu konur bara í kjólum eða pilsum. Samt fannst mér ég vera strákur með hár­kollu.“

Luca var 17 ára þegar hann lærði um trans. „Vinur minn var trans­strákur og hann kynnti mig fyrir Sam­tök­unum 78 og ég átti mörg áhuga­verð sam­töl við starfs­fólkið þar og annað trans­fólk og þetta skipti máli í að finna sjálfan mig.“

Ég þurfti ekki að leika ein­hvern annan.

Það var svo árið 2019 eftir erfið sam­bands­slit sem Luca ákvað eftir að hafa reynt að vera eins og kona nógu lengi að reyna að verða karl­maður til að sjá hvernig það væri. „Ég klippti hárið á mér stutt og fór í buxur sem ég hafði átt í fata­skápnum og þetta var eitt­hvað svo rétt. Þetta var léttir. Ég þurfti ekki að leika ein­hvern annan.“

Luca seg­ist ekki hafa sagt vinum sínum frá þessu en hann gerði það ekki fyrr en eftir útskrift. Og hann segir að fólk hafi almennt tekið þessu vel.

„Það var mik­ill léttir að koma út. Hluti af þessu eru félags­legar kröfur sem settar eru á konur. Mér var til dæmis létt að þurfa ekki lengur að raka fæt­urna. Þessu fylgdi þó mik­ill ótti um fram­tíð­ina.

Meira ég

Luca er byrj­aður í kyn­leið­rétt­ing­ar­ferli og hefur tekið testosteron í um 10 mán­uði. „Þetta er besta ákvörðun sem ég hef tekið á ævinni. Ég var aldrei ánægður með rödd­ina í mér en nú þegar hún er orðin dýpri þá finnst mér það vera ég sjálfur sem er að tala. Mér finnst ég vera meira ég með hverjum deg­inum sem líður. En þetta hefur ekki verið auð­velt ferli svo sem þegar kemur að því þegar brjóstin voru fjar­lægð en ég fór í þá aðgerð í sumar. Það er ynd­is­legt fólk í tran­steym­inu,“ segir Luca en talar um að hann hafi ekki fengið nægi­legar upp­lýs­ingar frá því varð­andi ýmis­legt.

Hann er ánægður með að vera kom­inn með dýpri rödd og að búið sé að fjar­lægja brjóstin en er ekki viss um að hann vilji fara í aðgerð á kyn­færum. „Ég er ósam­mála því að trans­fólk þurfi „allar aðgerðir“ eða hormón til að vera það sjálft. Í mínum huga er ég í lagi núna, ég hef rödd­ina sem ég vil, and­litið sem er mitt og brjóst­kass­inn passar núna við lík­ama minn. Ég veit ekki hvort ég vilji í fram­tíð­inni fara í aðgerð á kyn­færum en vís­ind­unum fleygir svo hratt fram á trans­deild­inni að ég vil gjarnan sjá fyrst hvernig þetta verður.“

Ónæm­is­kerfið í mér var við­kvæmt eftir aðgerð­ina og horm­ón­ana.

Luca talar um að það hafi verið erfitt að ganga í gegnum brjóst­námið og að ná sér eftir aðgerð­ina. Hann segir að það hafi til dæmis tekið á að þurfa að liggja í rúm­inu og geta ekki unnið. „Ónæm­is­kerfið í mér var við­kvæmt eftir aðgerð­ina og horm­ón­ana og það var ekki gott fyrir and­lega heilsu mína að vera fastur heima. Þrátt fyrir þetta myndi ég ekki vilja hafa þetta öðru­vísi. Þetta sýnir hvað svona breytir fyrir trans­fólk en við viljum ganga í gegnum þetta þrátt fyrir sárs­auk­ann sem fylgir þessu.“

Tekinn alvarlegar

Hvað með for­dóma? „Verstu stað­irnir fyrir mig er ræktin, sund­laugin og sal­ernin. Það er glápt á mig hvort sem ég fer á karlakló­sett eða kvennakló­sett. Ég fór að minnka það að fara í rækt­ina og í sund þar sem ég var hræddur um að eitt­hvað yrði sagt sem myndi eyði­leggja fyrir mér dag­inn. Ég er feg­inn að það er reglu­lega talað um mál­efni tengt hinsegin fólki og ein­elti í vinn­unni, ekki bara til að fræða krakk­ana heldur líka starfs­fólk. Ég hef því miður upp­lifað meiri for­dóma í tengslum við að vera inn­flytj­andi heldur en að vera trans.“

Luca seg­ist ekki geta breytt nafni sínu þar sem hann er ekki íslenskur rík­is­borg­ari og þar sem ekki er portú­galskt sendi­ráð hér á landi. „Það er erfitt að fara í gegnum örygg­is­hlið á flug­völlum eða á bar og sýna skil­ríki með kven­manns­nafni. Það er þreyt­andi ferli að taka horm­óna og fara í aðgerð sem og félags­leg umskipti. Allt trans­fólk sem ég þekki eru afskap­lega sterkir ein­stak­lingar.“

Mér finnst vera flott að lakka negl­urnar og mála mig.

Luca er spurður hvað hann hafi lært af þessu öllu. „Ég hef lært mikið um kyn og þjóð­fé­lagið. Það að vera karl skiptir mig miklu máli en ég veit að fólk meinar ekk­ert illt ef ég er kven­legur og ókunn­ugir halda að ég sé stelpa. Mér finnst vera flott að lakka negl­urnar og mála mig og ýmis­legt annað sem stelpur gera núna þegar ég get verið ég sjálfur.“

Það breytt­ist þó ýmis­legt eftir að rödd Luca varð dýpri í kjöl­far þess að hann fór að taka karl­horm­óna og nú ger­ist það mun sjaldnar að fólk haldi að hann sé stelpa. „Það er áhuga­vert hversu miklu máli rödd skiptir varð­andi það hvernig fólk lítur á mann og það er leið­in­legt hvað þetta er auð­veld­ara fyrir trans­menn en trans­konur. Rödd okkar breyt­ist eftir að við tökum karl­horm­óna en það ger­ist ekki þegar trans­konur taka kven­horm­óna.“

Luca segir að aðrir strákar og menn séu farnir að taka hann alvar­lega nú þegar hann sé karl og hann segir að sér þyki það vera leið­in­legt. „Ég myndi vilja að allir myndu virða aðra sama hvernig röddin þeirra er eða hvernig þeir líta út.“

Vinir lengi

Luca er í sam­bandi með manni.

„Ég er mjög hepp­inn með kærasta minn. Það getur verið martröð að deita þegar maður er trans og það er eins og maður þurfi að útskýra svo margt þegar maður hittir nýtt fólk og það er erfitt að sjá hvort við­kom­andi er virki­lega áhuga­samur eða ekki. Það er ný og ynd­is­leg reynsla að vera karl og elska annan karl. Við höfðum verið vinir lengi og hann bar alltaf virð­ingu fyrir mér og sá mig alltaf eins og ég var. Ég gleymi oft að ég er í sam­kyn­hneigðu sam­bandi og velti því fyrir mér af hverju fólk starir á okkur þegar við höld­umst í hendur. Ég lít bara á þetta sem ást eins og í öðrum sam­böndum.“

Hverjir eru fram­tíð­ar­draum­arnir?

„Núna þegar ég er kom­inn lengra áleiðis í kyn­leið­rétt­ing­ar­ferl­inu þá get ég ein­beitt mér meira að fram­tíð­ar­mark­mið­unum. Mig langar að fara að búa með kærasta mínum og halda áfram í vinn­unni. Ég hef mik­inn áhuga á að mennta mig og ég læri svo mikið af krökk­unum sem ég vinn með. Mig langar til að geta það sem eftir er hjálpað til að krakkar upp­lifi glað­ari dag.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi