Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Minning: Jóhannes Björn Lúðvíksson 1949-2022

Minning: Jóhannes Björn Lúðvíksson 1949-2022
Jóhannes Björn ásamt syni sínum Róberti

Jóhannes Björn Lúð­víks­son rit­höf­undur og skák­meist­ari lést á heim­ili sínu í New York í apríl s.l. á sjö­tugasta­og­þriðja ald­ursári.  Eft­ir­lif­andi eig­in­kona er Beth Rose bóka­út­gef­andi en sonur hans og Þóru Ásbjörns­dóttur er Robert kerf­is­fræð­ingur.

Gunnar Finnsson skák­kenn­ari, æsku­vinur Jóhann­esar rifjar upp tæp­lega sjö­tíu ára kynni þeirra:

Jóhannes Björn byrj­aði snemma á sam­særis-kenn­ingum sínum í port­inu á Lauga­vegi 19.  Þar mess­aði hann yfir okkur strák­unum, Óla Sig, Sverri Agnars, Sverri Guðjóns og mér og lagði út frá fjár­mála­spill­ingu heims­ins eins og hann átti eftir að gera margoft síðar á lífs­leið­inni með góðum árangri í ræðu og riti.

Í bak­garði bernsk­unnar voru leikir frá morgni til kvölds enda ekki annað að hafa.  Þá var bara ein útvarps­stöð, ekk­ert sjón­varp, engar tölvur, engir gemsar og ekk­ert kyn­slóða­bil.  Stöku sinnum var frið­ur­inn rof­inn af radd­sterkum mæðrum sem til­kynntu mat­máls – og kaffi­tíma

Vað­nes­hring­ur­inn afmark­að­ist af Lauga­vegi, Smiðju­stíg, Hverf­is­götu og Klapp­ar­stíg. Við strák­arnir hlupum gjarnan hring­inn og tókum tím­ann. Jóhannes var snemma léttur á sér og frár á fæti.  Hann setti met sem stendur enn þó illar tungur segi að hann hafi stytt sér leið í gegnum portið á 19 en það er önnur saga!
Hverf­is­gata 32 var æsku­heim­ili Jóhann­esar. Þar ólst hann upp ásamt fimm systk­inum, börnum Jónínu Jóhann­es­dóttur hús­móður og Lúðvíks Egg­erts­sonar fast­eigna­sala. Þuríður, fyrrum eig­andi húss­ins, systir séra Árna Þór­ar­ins­sonar, sigldi með syni sína Eggert og Þórarinn til tón­list­ar­náms í Köben snemma á fyrsta ára­tug síð­ustu aldar.  Þeir voru senni­lega fyrstu Íslend­ingar sem fóru utan til að læra músik.

Í hús­inu voru margar vist­ar­verur og uppi í risi leigði Jónína, móðir Jóhann­esar nokkrum ein­stak­lingum her­bergi.  Meðal minn­is­stæðra leigj­enda var Eggert Gilfer skák­meist­ari og píanó­leik­ari, sonur Þuríðar.  Í bak­hús­inu voru svo Jakob, jafnan kall­aður Kobbi kleina og Lína spá­kona.  Kobbi var bróðir Gilfers og Þórarins fiðlu­leik­ara.  Hann lék þann ljóta grikk að krækja stafnum í granda­laus ung­menni og draga þau til sín.  Því má nærri geta að börnin forð­uð­ust að mæta þessum manni sem var sann­kall­aður krakka­skelfir í hverf­inu. Gilfer, eða Gilli, eins og við krakk­arnir köll­uðum hann, var hins vegar algjört ljúf­menni.  Hann var sífellt að segja gam­an­sögur sem börnin botn­uðu ekk­ert í en hló sjálfur dill­andi hlátri.

1963 stofn­uðum við JBL Smá­meist­ara-klúbb­inn ásamt Jóni Guðmari og Gunnar Birgis.  Seinna bætt­ust fleiri í hóp­inn s.s. Sig­tryggur glímu­kappi, Snorri Þorvalds, Gaui Magg, Harvey Georgs, Helgi Hauks og Bragi Halldórs, hrað­skák­meist­ari Norð­ur­landa, svo nokkrir séu nefndir. Við tefldum grimmt í fyrstu og fögn­uðum fer­tugs – og fimm­tugs­af­mælum með veg­legum skák­mótum.  Á næsta ári verður vafa­laust haldið upp á sex­tugs-afmælið í minn­ingu fall­inna félaga. Jóhannes Björn var einn efni­leg­ast skák­maður sinnar kyn­slóðar og tefldi á Evr­ópu­móti ung­linga 1969 í Amster­dam (og eftir það kall­aður Hollands­far­inn meðal smá­meist­ara).  Nokkrar skákir hans birt­ust í þýska tíma­rit­inu Schach-Echo.

Eftir að Jóhannes byrj­aði að tefla fyrir alvöru og Gilfer fall­inn frá sögðu gár­ungar í Tafl­fé­lag­inu að Gilfer tefldi í gegnum Jóhannes! Einu sinni var Jóhannes að tefla á alþjóð­legu skák­móti í New York og mætti í fyrstu umferð stór­meist­ar­anum Formanek frá Ung­verja­landi.

Flestir töldu að óþekktur skák­maður frá Íslandi yrði auð­veld bráð fyrir stór-meist­ar­ann.  Það fór þó á annan veg því Jóhannes rúll­aði meist­ar­anum upp í 12 leikjum á gambít í franskri vörn! Þegar ein­vígi Fischers og Spasskís 1972 var að ljúka heim­sóttum við JBL Hol­lend­ing­inn dr. Max Euwe for­seta FIDE og heims­meist­ara 1935 á Hótel Esju. Þessi víð­frægi maður var ein­stakt ljúf­menni og höfð­ingi heim að sækja.  Hann bauð okkur upp á þjóð­ar­drykk­inn sjenever úr leir­brúsa og yfir­dóm­ari ein­víg­is­ins Lothar Schmid slóst í hóp­inn. Þetta var ógleym­an­leg stund með minn­is­stæðum manni.  Í kveðju­skyni árit­aði Euwe nokkrar frum­samdar skák­bækur sem JBL hafði með­ferðis.

Jóhann­esi Birni var margt til lista lagt.  Hann var m.a. dans­stjóri í for­föllum í Alþýðu­hús­kjall­ar­anum við lít­inn fögnuð söngv­ar­ans því þegar Jóhannes til­kynnti að næst yrði dans­aður svellandi polki var hljóm­sveitin að spila hægan vals!
Jóhannes var snjall penni og skrif­aði léttan og lipran stíl eins og bækur hans “Falið vald” og fleiri bera með sér.  Eld­skírn­ina fékk hann þó á Mánu­dags­blað­inu hjá Agnari Bogasyni.  Þar var hann lausa­penni um skeið eftir að búið var að reka mig af blað­inu!  Jóhannes reit margar eft­ir­minni­legar greinar í blaðið og tamdi sér hvassan stíl Agnars sem skrif­aði gjarnan þegar hrikti ræki­lega í þjóð­fé­lag­inu; “fólk er orðið lang­þreytt á ástand­inu!”

1974 stofn­uðum við Jóhannes viku­blaðið Hrað­tíð­indi, HT sem við héldum að mundi valda straum­hvörfum í íslenskri blaða­mennsku.  Svo varð þó ekki þrátt fyrir að ýmis­legt væri þar bita­stætt.  Meðal ann­ars bráð­skemmti­leg grein JBL þar sem hann færir sterk rök fyrir því að nýr Gamli sátt­máli milli Íslands og Noregs væri í burð­ar­liðnum!  Þetta var því miður eina tölu­blað HT og kannski var það nóg – nýja­brumið var horfið.

Jóhannes var afar frjór í hugsun og hug­mynda­ríkur.  Hann átti ýmis nýyrði eins og þegar hann kall­aði presta­stétt­ina atvinnu­góð­menni og lögg­una emb­ættið. “Við þessir miklu menn” voru ávarps­orð okkar félag­anna, sögð af með­fæddu lít­il­læti, kannski til að hefja sig hátt yfir pöp­ul­inn “hinn hráa massa” að okkur fannst.

Hermann flösku­sali var áber­andi per­sóna í mið­bænum á sinni tíð.  Hann var ráð­deild­ar­samur í meira lagi … og lifði spart.  Einu  sinni lögðum við Jóhannes gildru fyrir hann. Við sáum hann koma vestur Hverf­is­götu og Jóhannes ákvað í sama mund og karl­inn fór fram­hjá 32 að láta 50 króna járn­hlunk detta við fætur sér.  Það skipti engum togum að Hemmi beygir sig niður eftir spesí­unni en Jóhannes verður fyrri til og nær henni. Þeir fara að deila og á því and­ar­taki kem ég aðvíf­andi og blanda mér í málið.  Hemmi seg­ist hafa slætt niður pen­ingi sem Jóhannes þyk­ist eiga.  Jóhannes full­yrðir að hann eigi pen­ing­inn sem hann hafi misst á gang­stétt­ina.  Þeir karpa um þetta dágóða stund en að lokum segir karl­inn: “En ég heyrði hann klyngja!” Síðan bætti hann við og beindi máli sínu til mín og benti á Jóhannes með þykkju:  “Þetta er svo mik­ill nýj­ari!”

Við bröll­uðum margt í gegnum tíð­ina; tefldum, ortum og skál­uðum. Við sömdum gam­an­þætti og lékum inn á seg­ul­band og leyfðum gestum og gang­andi að hlýða á. Kiljan, Þór­bergur, Tómas, Davíð og Steinn voru okkar menn í skáld­skapnum. 
Jóhannes Björn var mik­ill fag­ur­keri og kunni vel að meta lífs­ins lystisemdir í mat og drykk.  Hann rak áróður fyrir heil­brigðum lífs­stíl þegar kom að matar­æði en stóðst sjaldan óholl­ustu á borð við sæt­indi af ýmsu tagi!  JBL kunni að lifa líf­inu minn­ugur orða Lúthers: “Sá óð ei elskar, vín né víf / hann verður glópur allt sitt líf.” (þýð. séra Guðm. Sveins­son). Það er svo sann­ar­lega sjón­ar­sviptir af vini mínum Jóhann­esi Birni.  Hann var ein­stakur.

Gunnar Finnsson

Minn­ing­ar­grein þessi birt­ist í nýjasta tölu­blaði Mannlífs sem nálg­ast má í Bónus og Hagkaup fríkeypis. Þá má einnig lesa blaðið í raf­rænni útgáfu hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi