Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Vopnað rán á Vesturgötu – „Þeir ruddust inn með miklum hávaða og öskruðu“

Vopnað rán á Vesturgötu – „Þeir ruddust inn með miklum hávaða og öskruðu“

Mánu­dags­morg­un­inn 18. des­em­ber árið 1995 réð­ust þrír grímu­klæddir og vopn­aðir menn inn í Bún­að­ar­bank­ann á Vest­ur­götu. Þeir komust burt með rúm­lega eina og hálfa milljón króna með­ferðis.

Þetta er vopnað rán

„Þeir rudd­ust inn með miklum hávaða og öskr­uðu: Þetta er vopnað rán. Ég var staddur inni á skrif­stofu minni baka til og átt­aði mig ekki alveg á alvör­unni í fyrstu.“

Þetta sagði Leifur H. Jósteins­son, úti­bús­stjóri í bank­anum, í sam­tali við DV sem birt­ist í blað­inu dag­inn eftir ránið. Leifur sagð­ist hafa áttað sig á alvar­leika máls­ins þegar hann sá einn mann­anna stökkva yfir afgreiðslu­borðið með hníf í hendi.

Tveir banka­ræn­ingj­anna voru vopn­aðir hnífum en sá þriðji bar hagla­byssu.

Hélt að um grín væri að ræða

Einn við­skipta­vina bank­ans þennan morgun, Ólafur G. Björns­son, lýsti upp­lifun sinni af hinum óhuggu­lega atburði við DV. Þar sagði hann að ræn­ingj­arnir hefðu skipað öllum að horfa niður í gólfið.

„Ég fór eftir því og þess vegna sá ég lítið hvað ræn­ingj­arnir aðhöfð­ust. Þeir voru þó á ferð og flugi og með skip­anir til starfs­fólks­ins,“ sagði Ólafur.

Ólafur sagð­ist í fyrstu hafa haldið að um grín væri að ræða. Annað hafi þó fljót­lega komið í ljós og ekk­ert annað að gera en að hlýða og hreyfa hvorki legg né lið.

Ránið tók aðeins eina mínútu

Leifur úti­bús­stjóri vildi meina að greini­legt hefði verið á allri hegðun og athöfnum ræn­ingj­anna að þeir hefðu skipu­lagt ránið vand­lega. Þeir hefðu gengið fag­mann­lega til verks. Leifur sagði sömu­leiðis að sér hafi virst mað­ur­inn með hagla­byss­una vera höf­uð­paur­inn sem stjórn­aði aðgerð­unum.

Sá maður beið framan við afgreiðslu­borðin á meðan hinir tveir fóru á bak við þau og brutu upp skúffur fjög­urra gjald­kera. Úr skúff­unum náðu þeir, eins og fyrr sagði, um einni og hálfri milljón króna og létu sig svo hverfa jafn skyndi­lega og þeir höfðu birst. Raunar virð­ist ránið varla hafa tekið meira en eina mín­útu, ef marka má orð úti­bús­stjór­ans.

Gjald­ker­arnir fengu aldrei ráð­rúm til að hringja neyð­ar­bjöll­unum en Leifi tókst það hins­vegar. Einnig var maður að nafni Eyjólfur Ein­ars­son sem hringdi á lög­regl­una, en hann var hinumegin við göt­una og sá þegar ræn­ingj­arnir létu til skarar skríða. Eyjólfur sá menn­ina stíga út úr lít­illi Toyotu, einn þeirra með hagla­byss­una í hendi. Hann horfði síðan á eftir þeim inn í bank­ann og sá því strax að ekki var allt með felldu og hljóp inn til sín til að hringja á lög­regl­una. Skjót við­brögð Eyjólfs dugðu þó ekki til – ræn­ingj­arnir voru of snöggir. Litlu Toyotuna skyldu þeir eftir í gangi fyrir utan bank­ann og létu sig hverfa með öðrum leiðum.

Bæði Leifur úti­bús­stjóri og Eyjólfur vildu meina að ræn­ingj­arnir hefðu senni­lega verið í kringum tví­tugt.

„Af hreyf­ingum mann­anna virt­ist mér sem þeir væru um tví­tugt. Það er þó erfitt að átta sig á slíku enda menn­irnir með lamb­hús­hettur á höfðum og í vinnu­göllum,“ sagði Eyjólfur.

„Þetta voru ungir menn þótt erfitt væri að átta sig á aldri þeirra í sam­fest­ing­unum og með lamb­hús­hett­urnar. Ég giska á að þeir hafi verið um eða rétt yfir tví­tugt. Þeir voru mjög vel þjálfaðir sem sést af því að þeir undu sér yfir afgreiðslu­borðin eins og ekk­ert væri,“ sagði Leifur.

Starfsfólk fékk áfallahjálp og öryggismál tekin til skoðunar

Starfs­fólk Bún­að­ar­bank­ans í Vest­ur­götu, sem var við störf í úti­bú­inu þegar ránið var framið, fékk áfalla­hjálp í kjöl­farið. Hanna Páls­dóttir, aðal­fé­hirðir Bún­að­ar­bank­ans, hafði áhyggjur af starfs­fólk­inu og sagði atburð­inn hafa valdið því mik­illi and­legri áreynslu.

„Það er ólýs­an­legt að lenda í þessu. Ég hugsa að það taki langan tíma fyrir starfs­fólkið að átta sig á hvaða var­an­leg áhrif þetta kann að hafa. Við leggjum því mikla áherslu á að hlúa sem best að fólk­inu,“ sagði Hanna í sam­tali við Morg­un­blaðið.

Daginn eftir ránið var útibú bank­ans í Vest­ur­götu opið eins og venju­lega. Engar sér­stakar örygg­is­ráð­staf­anir höfðu verið gerðar. Leifur úti­bús­stjóri sagð­ist ekki eiga von á sömu mönn­unum tvisvar. Þessi afstaða bank­ans til örygg­is­mála virð­ist þó strax hafa verið end­ur­skoðuð, því tveimur dögum eftir ránið var verið að setja upp eft­ir­lits­mynda­vélar í bank­anum. Slíkar mynda­vélar höfðu aldrei áður verið not­aðar sem hluti af öryggi­kerfi í úti­búum Bún­að­ar­bank­ans.

„Aðal­at­riðið er að reyna að ná þessum mönnum. Það er vont ef menn kom­ast upp með svona athæfi,“ sagði Sólon Sig­urðs­son, banka­stjóri Bún­að­ar­bank­ans, í sam­tali við Morg­un­blaðið þann 20. des­em­ber 1995, þegar verið var að herða gæsl­una og setja upp mynda­vél­arnar.

Þaulskipulagt og vasklega gengið til verks

Ýmis atriði benda til þess að ræn­ingj­arnir þrír hafi und­ir­búið ránið í Bún­að­ar­bank­anum á Vest­ur­götu afar vel. Þeir gengu hratt og vask­lega til verks, völdu tíma­setn­ingu þar sem minnst var um að vera í bank­anum, komu á far­ar­tæki sem þeir gátu skilið eftir við bank­ann og guf­uðu svo nán­ast strax upp án þess að skilja eftir sig neina slóð.

Bíllinn sem þeir komu á, sem skil­inn var eftir í gangi fyrir utan bank­ann, reynd­ist stol­inn og í honum voru engin sönn­un­ar­gögn sem leitt gátu lög­reglu á slóð mann­anna.

Það eina sem vitni sáu af þre­menn­ing­unum eftir að þeir yfir­gáfu bank­ann var þegar þeir hlupu niður á Nýlendu­götu. Eftir það virð­ist eng­inn hafa orðið þeirra var en spor­hundar lög­reglu röktu slóð þeirra þó áfram yfir Garða­stræti. Svo varð slóðin köld – það var hrein­lega eins og jörðin hefði gleypt þá. Taldi lög­regla að þar hefði önnur bif­reið beðið ræn­ingj­anna. Toyota-bif­reið fannst síðan á Blóm­valla­götu. Í henni var einn hnífur sem var tal­inn hafa til­heyrt einum mann­anna.

Fjórir menn grunaðir

Í júlí árið 1996 sagði Hörður Jóhann­es­son, þáver­andi yfir­lög­reglu­þjónn hjá Rann­sókn­ar­lög­reglu rík­is­ins, að málið væri „óupp­lýst ennþá en ekki búið.“ Þá hafði Bún­að­ar­bank­inn sjálfur reynt að halda mál­inu á lofti með því að heita einni milljón króna fyrir upp­lýs­ingar sem gætu leitt til hand­töku ræn­ingj­anna.

Það er þó ekki svo að eng­inn hafi nokkurn tíma verið grun­aður um verkn­að­inn. Þannig voru fjórir ungir menn með rétt­ar­stöðu grun­aðra í mál­inu um nokkurn tíma. Í ljós kom að sömu menn höfðu lagt á ráðin um rán sem svip­aði mjög til Bún­að­ar­banka­ráns­ins. Rann­sókn­ar­lög­regla rík­is­ins gekk svo langt að lýsa yfir vissu um að fjór­menn­ing­arnir tengd­ust mál­inu. Allir fjórir sátu þeir um tíma í gæslu­varð­haldi vegna máls­ins. Þeir voru lög­reglu ekki ókunn­ugir, heldur höfðu þeir áður kom­ist í kast við lögin fyrir bæði fjár- og trygg­inga­svik. Þeir höfðu reynt að beita blekk­ingum til að svíkja fé út úr trygg­inga­fé­lög­unum, til að mynda með því að svið­setja inn­brot og bílslys.

Líkindi við Skeljungsránið

Ráninu í Bún­að­ar­bank­anum svip­aði mjög til ann­ars ráns, svo­kall­aðs Skelj­ungs­ráns. Þar voru ræn­ingj­arnir líka þrír og vopn­aðir hnífum. Þeir voru klæddir á svip­aðan hátt og ræn­ingj­arnir í Bún­að­ar­bankarán­inu og komu sömu­leiðis á vett­vang glæps­ins á stolnum bíl sem hafði verið stolið nótt­ina áður.

Allt kom þó fyrir ekki. Þrátt fyrir að rann­sókn­ar­lög­regla hafi virst ansi viss í sinni sök voru sann­anir á hendur mönn­unum fjórum ekki nógu sterkar til að hægt væri að fara með málið fyrir dóm­stóla. Þeir voru þó ákærðir fyrir ýmis önnur brot, til að mynda fram­an­greind fjár­svik og trygg­inga­svik. Allir hlutu þeir dóm fyrir þau mál, þó mis­langir væru.

„Það liggur fyrir að þessir menn hafa planað svona atburð með mjög áþekkum hætti og raunin varð á Bún­að­ar­banka­mál­inu. Það er enn til rann­sóknar að hve miklu leyti þeirra und­ir­bún­ingur kom við sögu varð­andi ránið. Bankaránið er stað­reynd og þeirra und­ir­bún­ingur er stað­reynd. En urðu ein­hverjir á undan þeim eða hvað?“

sagði Hörður Jóhann­es­son í sam­tali við Helg­ar­póst­inn í febr­úar árið 1996.

Fjór­menn­ing­arnir neit­uðu ávallt sök í Bún­að­ar­banka­mál­inu. Bankaránið þennan mánu­dags­morgun í Vest­ur­götu er óupp­lýst enn þann dag í dag.

Þessi baksýnisspegill birtist fyrst hjá Mannlífi 13. desember 2021

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi